Íslendingar fá að flytja út rúmlega tíu sinnum meira af skyri til Evrópu

Ef nýr samn­ingur Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um við­skipti með land­búnað, sem um samd­ist í vik­unni, tekur gildi gæti verð á vissum inn­fluttum mat­vörum lækkað um tugi pró­senta. Samhliða gild­is­töku samn­ings­ins mun inn­flutn­ings­kvóti Íslend­inga á lamba­kjöti inn á innri markað Evrópu, næstum tvö­fald­ast, fara úr 1.850 tonnum á ári í 3.350 tonn. Íslenskir fram­leið­endur Skyrs fá auk þess að flytja út tíu sinnum meira en áður inn á mark­aði í Evr­ópu­sam­bands­lönd­un­unum. Í dag mega þeir selja 380 tonn af skyri þar án tolla en það magn fer upp í 4.000 tonn með nýja samn­ingnum. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Tilkynnt var um það á fimmtu­dag að nýir samn­ingar Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um við­skipti með land­bún­að­ar­vörur hefðu náðst á samn­inga­fundi sem staðið hafði í tvo daga í Reykja­vík. í til­kynn­ingu sagði að "samn­ing­arnir munu stuðla að auknu vöru­úr­vali og lægra vöru­verði á Íslandi til hags­bóta fyrir neyt­endur. Jafn­framt fela samn­ing­arnir í sér veru­leg ný tæki­færi fyrir útflytj­endur." Vonir standa til að samn­ing­arnir geti tekið gildi í árs­lok 2016 eða byrjun árs 2017, að feng­inni stað­fest­ingu stofn­ana ESB og Íslands.

Kjúklingabændur ásaka stjórnvöld um "baktjaldarmakk"


Þar er meðal ann­ars rætt við Sindra Sig­ur­geirs­son, for­mann Bænda­sam­tak­anna, sem segir jákvætt að fá auk­inn aðgang að innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins. Þó sé ljóst að staðan verði erfið fyrir sumar búgreinar, meðal ann­ars ali­fugla- og svína­rækt. Kvótar á inn­flutn­ing kjúklinga um nán­ast fjór­fald­ast með nýja sam­komu­lag­inu auk þess sem heim­ilt verður að flytja inn 200 tonn af líf­rænum alífuglum, en inn­flutn­ingur á þeim er óheim­ill í dag. Þá mun íslenskum inn­flytj­endum vera heim­ilt að flytja inn sjö sinnum meira nauta­kjöt en þeir gera í dag og 3,5 sinnum meira svína­kjöt. Auk þess verða heim­ildir til að flytja inn osta stór­auknar.

Ingi­mundur Bergmann, for­maður Félags kjúklinga­bænda, gagn­rýnir vinnu­brögð stjórn­valda harð­lega í sam­tali við blaðið. "Þetta er bak­tjalda­makk. Það var látið í veðri vaka við okkur að þetta væri í und­ir­bún­ingi og hugs­an­lega inni í mynd­inni, ekki að málið væri komið á þetta stig."

Verslunin sátt en vill meira


Talsmenn versl­un­ar­innar á Íslandi eru hins vegar mun kát­ari með breyt­ing­arnar. Finnur Árnason, for­stjóri Haga, segir breyt­ing­arnar frá­bærar fréttir fyrir neyt­endur og versl­un­ina. Þær geti lækkað verð á ákveðnum vöru­teg­undum um tugi pró­senta. En eigi þó eftir að taka mjög stór skref í þessum efnum. "Okkur sýn­ist sem breyt­ing­arnar nái ekki til allra unn­inna land­bún­að­ar­vara. Samkvæmt mínum upp­lýs­ingum hafa breyt­ing­arnar þannig ekki áhrif á skinku, parmesa­nost og pylsur almennt, svo dæmi sé tekið. Þetta eru ef til vill minni breyt­ingar en vænt­ingar stóðu til varð­andi unnar land­bún­að­ar­vörur."

Gæti aukið verðbólgu


Ingólfur H. Bender, for­stöðu­maður Grein­ingar Íslands­banka, segir að óljóst sé hversu mikið verð á mat­vöru muni lækka. Afnám tolla, sem sé lækkun óbeinna skatta, leiði til lægra verðs og auki kaup­mátt. Aðgerðið sé hins vegar einnig eft­ir­spurn­ar­hvetj­andi fyrir hag­kerfið, ef ekki komi til mót­væg­is­að­gerðir af hálfu stjórn­valda. "Án mót­væg­is­að­gerða hefur þetta þannig þenslu­á­hrif fyrir hag­kerfið á tímum þegar spenna er í kerf­inu. Þau áhrif eru til að auka verð­bólg­una."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár