Sóttvarnalæknir bloggar og segir faraldurinn í veldisvexti

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir á nýjum vett­vangi sínum á covid.is að reynslan sýni að sam­fé­lags­legum smitum fækki ekki „fyrr en gripið er til tak­mark­andi aðgerða í sam­fé­lag­inu.“ Á sama tíma er stefnt að aflétt­ingu allra tak­mark­ana 18. nóv­em­ber.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Sú nýbreytni í upp­lýs­inga­miðlun yfir­valda vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var kynnt til sög­unnar í upp­hafi viku að á vefnum covid.is er nú búið að koma upp dálki þar sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir mun koma skrif­legum skila­boðum áleiðis til almenn­ings.

Í dag gerir hann það í annað sinn og lýsir yfir áhyggjum af stöðu mála, en hart­nær hund­rað smit greindust inn­an­lands í gær. Þórólfur rekur á hinum nýja vett­vangi sínum að ein­ungis um 40 pró­sent hafi verið í sótt­kví við grein­ingu og um helm­ingur smit­aðra hafi verið full­bólu­sett fólk, allt frá unga­börnum til 92 ára ein­stak­lings.

„Síð­ast­lið­inn sól­ar­hring lögð­ust þrír inn á Land­spít­al­ann vegna COVID-19 og eru nú alls 15 inniliggj­andi vegna COVID og þrír á gjör­gæslu­deild, þar af einn á önd­un­ar­vél,“ skrifar sótt­varna­læknir.

„Þróun far­ald­urs­ins hér er því enn versn­andi og far­ald­ur­inn í veld­is­vexti. Líklegt er að þessi þróun hvað varðar heild­ar­fjölda smita haldi áfram sem mun leiða til versn­andi ástands á Lands­spít­al­anum,“ segir í færslu Þórólfs, sem biðlar til almenn­ings um að leggja sitt af mörkum til að hindra útbreiðslu veirunnar þrátt fyrir að litlar opin­berar tak­mark­anir séu nú í gildi.

„Við getum forð­ast hópa­mynd­anir með ókunn­ugum, við­haft eins metra nánd­ar­reglu, notað and­lits­grímur í aðstæðum þar sem nánd við ókunn­uga er undir einum metra og gætt að góðri sótt­hreinsun handa,“ skrifar Þórólfur og bætir því við að ef fólk finni fyrir ein­kennum sem bent gætu til COVID-19 ætti fólk að halda sig til hlés, forð­ast marg­menni og umgengni við við­kvæma ein­stak­linga og fara í sýna­töku.

„Hollt er hins vegar að hafa í huga þá reynslu okkar að sam­fé­lags­legum smitum fækkar ekki fyrr en gripið er til tak­mark­andi aðgerða í sam­fé­lag­inu,“ skrifar Þórólfur Guðnason að lokum.

Stefnt að afléttingu allra aðgerða 18. nóvember

Einungis níu dagar eru frá því að rík­is­stjórnin ákvað að létta á sam­komu­tak­mörk­unum, meðal ann­ars aflétta grímu­skyldu á flestum þeim stöðum þar sem hún átti við og leyfa 2.000 manns að koma saman á við­burðum. Við sama til­efni var boðað að til stæði að aflétta öllum sam­komu­tak­mörk­unum inn­an­lands þann 18. nóv­em­ber.

Það var þó til­kynnt með þeim fyr­ir­vara að allt gengi vel, sam­kvæmt því sem Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði er hún kynnti ákvörðun stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár