Stjórnvöld skoða að auka heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta í nýsköpun

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið er með til skoð­unar breyt­ingar á fjár­fest­inga­heim­ildum líf­eyr­is­sjóða lands­ins. Á meðal þess sem verið er að skoða eru auknar heim­ildir sjóð­anna til fjár­fest­inga í nýsköpun til að auka fram­leiðni hag­kerf­is­ins. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016, sem lagt var fram fyrr í þessum mán­uði, og sagt að aukn­ing slíkra heim­ilda gætu reynst nauð­syn­legar.

Líf­eyr­is­sjóðir hafa haft tak­mark­aða heim­ild til að fjár­festa með beinum hætti í nýsköpun og sprota­starf­semi hér­lendis. Slíkir fjár­fest­ingu fylgir enda meiri áhætta en hefð­bundnum fjár­fest­ingum sjóð­anna,enda mun fleiri nýsköp­unar- og sprota­fyr­ir­tæki sem ná ekki að lifa af en þau sem það gera. Hins vegar gæti verið mik­ill ávinn­ingur fólgin í því að fjár­festa í slíkum fyr­ir­tækjum sem ná árangri og festa sig í sessi.

Auk þess skiptir máli að auka fram­leiðni í íslenska hag­kerf­inu og það er fyrst og síð­ast gert með auknum stuðn­ingi við nýsköpun. Því skiptir máli að stærstu stofn­ana­fjár­festar á Íslandi, líf­eyr­is­sjóðir lands­manna, geti komið að slíkri fjár­fest­ingu.

Auka þarf framleiðni


Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar segir að til skoð­unar sé að auka heim­ildir líf­eyr­is­sjóð­anna til fjár­fest­inga í nýsköpun. Það sé und­ir­staða auk­innar fram­leiðni í hag­kerf­inu og gæti því reynst nauð­syn­legt. „Ef fram fer sem horfir og hægja fer á fólks­fjölgun verður fram­leiðslu­hlut­fallið óhag­stætt, þ.e. líf­eyr­is­þegar verða fleiri en hópur vinn­andi fólks á sama tíma. Þá falla þau verð­mæti sem standa eiga undir líf­eyr­is­greiðslum því aðeins til, að fram­leiðni hag­kerf­is­ins hafi vaxið á fjár­fest­ing­ar­tím­anum. Þó að þetta vanda­mál sé gjarnan tengt við gegn­um­streym­is­kerfi, þar sem ótt­ast er að skatt­greiðslur fram­tíð­ar­innar nægi ekki til að standa undir sífellt stækk­andi hópi elli­líf­eyr­is­þega, á sjóð­streym­is­kerfið sem þekk­ist hér á landi einnig við þennan vanda að etja. Þar þurfa fjár­fest­ingar fram­tíð­ar­innar að standa undir þessum stækk­andi hópi.“

Síðasta sumar var tekið skref í átt að auka þátt­töku líf­eyr­is­sjóð­anna í fjár­mögn­un­ar­um­hverfi minni fyr­ir­tækja. Fyrir þá breyt­ingu, sem tók gildi 1. júlí 2015, máttu líf­eyr­is­sjóðir fjár­festa allt að 20 pró­sent af hreinni eign sinni í óskráðum bréfum, þar á meðal á mark­aðs­torgi fjár­mála­gern­inga. Nú má fjár­festa allt að 5 pró­sent af hreinni eign á mark­aðs­torgi fjár­mála­gern­inga auk 20 pró­sent í óskráðum bréfum.

Vilja auðvelda skráningu á First North


Þá er fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið að móta lög­gjöf sem auð­veldar fyr­ir­tækjum sem eru á síð­ari stigum nýsköp­unar að skrá sig á hluta­bréfa­mark­að­inn First North og sækja sér fjár­magn þar. Skráning á First North er mun ódýr­ari en skrán­ing á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar en kostn­aður við skrán­ingu þar getur samt sem áður verið meiri en minni nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki ráða við, sér­stak­lega vegna kostn­aðar við gerð skrán­ing­ar­lýs­ingar. Auk þess mega ein­göngu fjár­mála­fyr­ir­tæki hafa umsjón með töku fjár­mála­gern­inga til við­skipta sem tak­markar sam­keppni á þeim mark­aði. Í nágranna­löndum okkar væri ekki gerð sams konar krafa.

[caption id="attachment_24197" align="alignnone" width="1000"] Mun ódýr­ara er að skrá sig á First North mark­að­inn en aðal­markað Kaup­hall­ar­innar. Það hentar því minni fyr­ir­tækjum mun betur.[/caption]

Mun ódýrara er að skrá sig á First North markaðinn en aðalmarkað Kauphallarinnar. Það hentar því minni fyrirtækjum mun betur.
Mun ódýr­ara er að skrá sig á First North mark­að­inn en aðal­markað Kaup­hall­ar­innar. Það hentar því minni fyr­ir­tækjum mun betur.

Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar segir að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi sent bréf til Kaup­hall­ar­innar 2. júlí síð­ast­lið­inn. Það hafi komið fram að ráðu­neytið teldi rétt að færa umhverfi á verð­bréfa­mark­aði hvað þessi atriði varðar nær því sem þekk­ist ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum og það yrði gert með aðstoð Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. „Ráðu­neytið mun horfa til þessa við mótun lög­gjafar á næstu miss­erum“.

Þegar hafa þrír rekstr­ar­að­ilar sjóða lokið fjár­mögnun á sjóðum sem ætl­aðir eru til fjár­fest­inga í nýsköp­unar- og fjár­fest­inga­fyr­ir­tækjum. Alls er heild­ar­um­fang þess fjár sem sjóð­irnir þrír (Frumtak 2, Eyrir Sprotar og Brunnur) ætla að fjár­festa fyrir 11,5 millj­arðar króna. Stærð fjár­fest­inga er á bil­inu 50 til 625 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár