Tveir rússneskir hermenn sem björguðu heiminum

Sögur úr kalda stríð­inu eru margar og dramat­ískar. Sagan af mönn­unum tveimur, sem tók þátt í því að afstýra kjarn­orku­styrj­öld, er merki­leg.

Kalda stríðið var í raun ekki alltaf kalt. Robert McNamara, sem var varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna 1961 – 1968, sagði reyndar eitt sinn að það hefði á köflum verið alveg sjóð­andi heitt. Sér­stak­lega var ástandið við­sjár­vert í Kúbu-deil­unni í októ­ber 1962. Hér verður rakin saga tveggja manna sem komu við sögu í kalda stríð­inu og hvernig ákvarð­anir þeirra höfðu áhrif á gang ver­ald­ar­sög­unnar. Nöfn þess­ara manna eru lítt þekkt meðal almenn­ings en aðrir sem tóku virkan þátt í kjarn­orku­kapp­hlaupi stór­veld­anna hafa nefnt þá, og gjörðir þeirra, sem mik­il­vægan þátt í að afstýra kjarn­orku­styrj­öld. Arthur Schlesinger, einn af ráð­gjöfum John F. Kennedy, sagði eitt sinn að það væri ekki alls kostar rétt að Kúbu-deilan hefði verið hættu­leg­asta stund kalda stríðs­ins, nær væri að segja að þetta hefði verið hættu­leg­asta stund í gjör­vallri mann­kyns­sög­unni.

Banda­ríkin höfðu sett upp skot­palla fyrir kjarnaflaugar á Ítalíu og Tyrk­landi, nokkuð sem Sov­ét­ríkin gátu illa sætt sig við enda ógn­aði það öryggi þeirra veru­lega. Sov­ét­menn brugð­ust við þessu með því að að setja upp skot­palla í bak­garði Banda­ríkj­anna, á Kúbu. Það hleypti öllu í bál og brand í Washington. Kennedy ákvað að ráð­ast ekki inn í Kúbu, þrátt fyrir að í skrif­stofu hans væru öllum stundum froðu­fellandi her­for­ingjar sem heimt­uðu aðgerðir. Þess í stað var flot­inn lát­inn umkringja eyj­una til að varna sov­éskum skipum að kom­ast áleiðis með sinn hættu­lega farm. Í Moskvu þurfti Kruschev einnig að eiga við bál­reiða her­for­ingja í víga­hug og aðra sem vildu hóf­sam­ari leiðir. Á end­anum ákváðu Banda­ríkin að fjar­lægja kjarnaflaugar sínar frá Tyrk­landi og Sov­ét­menn fjar­lægðu sínar frá Kúbu. En ráða­mönnum stór­veld­anna var ókunn­ugt um að á meðan á þessu stóð voru alvar­legir hlutir að eiga sér stað rétt hjá Banda­ríkj­unum, djúpt undir yfir­borði sjávar.

Vasili Arkhipov var for­ingi í sov­éska kjarn­orkukaf­bátnum B-19 sem var stað­settur í Karí­ba­hafi. Banda­ríski flot­inn hafði fundið kaf­bát­inn og kastað djúp­sprengjum í þeirri von að hann myndi koma upp á yfir­borðið svo hægt væri að bera kennsl á hann. Þetta voru ekki djúp­sprengjur sem ollu skaða en þær ollu skelf­ingu meðal kaf­báts­manna. Það sem verra var, B-19 hafði ekki verið í sam­bandi við Moskvu dögum saman og báts­verjar höfðu ekki hug­mynd um þá þróun sem hafði átt sér stað í sam­skiptum stór­veld­anna und­an­farið. Sumir töldu að styrj­öld hefði að öllum lík­indum þegar brot­ist út. Til að auka á skelf­ingu og dóm­greind áhafn­ar­innar, þá var loft­ræst­ingin biluð , loft var heitt og daun­illt og aðstæður um borð því væg­ast sagt óþægi­legar. Kaf­bát­ur­inn var ekki með kjarnaflaugar um borð en hann var útbú­inn öðru skelfi­legu vopni: 10 kílótonna kjarna­tund­ur­skeyti. Yfirmenn kaf­báts­ins höfðu heim­ild til að skjóta því án þess að þurfa grænt ljós frá Morskvu. Kaf­báts­for­ing­inn Savitsky vildi skjóta því og allir hinir for­ingj­arnir voru sam­mála honum, allir nema Vasili Arkhipov.

Samkvæmt reglum urðu þrír æðstu for­ingjar að vera sam­mála um þetta en Arkhipov stóð fastur á sínu. Áhættan og óvissan var of mikil, taldi hann. Þeir yrðu að kom­ast að því hvað væri á seyði á yfir­borð­inu áður en þeir gerðu eitt­hvað sem mögu­lega gerði bara illt miklu verra. Nærri kom til handa­lög­mála í kaf­bátnum vegna þessa en Arkhipov gaf sig ekki. Hann var frekar ófram­fær­inn rólynd­is­maður en þeir eig­in­leikar voru hans styrkur núna í þessum aðstæðum. Það hjálp­aði einnig að Savitsky bar ákveðna virð­ingu fyrir Arkhipov, því Arkhipov hafði áður verið í erf­iðum aðstæðum en hann var for­ingi um borð í kaf­bátnum K-19 sem hafði lent í miklum vand­ræðum árið áður. Það er saga út af fyrir sig og má benda les­endum á kvik­mynd­ina K-19: The Widowmaker frá 2002 með þeim Harrison Ford og Liam Neeson í aðal­hlut­verki og bregður þar einnig fyrir íslenska leik­ar­anum Ingvari Sig­urðs­syni.

Á end­anum sigr­aði Arkhipov þetta tauga­stríð, kaf­bát­ur­inn fór upp á yfir­borðið og komust báts­verjar þá að því að styrj­öld var ekki skollin á, þvert á móti. Flestir eru nú sam­mála um að það hefði haft hræði­legar afleið­ingar ef kaf­bát­ur­inn hefði skotið kjarna­skeyt­inu og verið þungt vatn á myllu froðu­fellandi her­for­ingj­anna í skrif­stofu Banda­ríkja­for­seta. Árið 2002 var haldin ráð­stefna um þetta atvik í Washington og í lok hennar sagði Thomas Blanton, yfir­maður skjala­safns sem geymir skjöl tengd þjóðar­ör­yggi (National Security Archives) þessi fleygu orð: „Hvað gerð­ist í raun? Það er ein­falt. Náungi sem hét Vasili Arkhipov bjarg­aði heim­inum.“

Stanislav Petrov

Á níunda ára­tug síð­ustu aldar voru Sov­ét­ríkin í vanda stödd. Efna­hagur lands­ins hafði versnað og tök þeirra á lepp­ríkjum sínum í Evrópu minnkað veru­lega. Í Hvíta húsið í Washington var kom­inn fyrr­ver­andi Hollywood-leik­ari, Ronald Reagan, og hann tók harða afstöðu gegn Sov­ét­ríkj­unum. Í sept­em­ber 1983 skaut sov­ésk orr­ustu­þota niður kóreska far­þega­þotu sem hafði villst af leið, með þeim afleið­ingum að 269 far­þegar týndu líf­inu.

Banda­ríkin og fleiri ríki for­dæmdu Sov­ét­ríkin en í Moskvu brugð­ust menn ókvæða við og lýstu því yfir að kóreska vélin hefði verið í njósn­a­flugi. Sam­skipti stór­veld­anna höfðu sjaldan verið jafn slæm og mörgum fannst sem það mætti lítið út af bera til að allt færi í bál og brand. Kalda stríðið var sann­ar­lega kalt á þeim tíma. Margir ótt­uð­ust upp­lausn í Sov­ét­ríkj­unum. Þar voru enn við völd menn sem héldu dauða­haldi í gamla komm­ún­ismann og virt­ust ekk­ert ætla að gefa eftir í kjarn­orku­kapp­hlaup­inu við Banda­ríkin. Óttinn við kjarn­orku­styrj­öld var veru­legur á þessum árum og höfðu ýmsir áhyggjur af því að það gæti jafn­vel orðið fyrir mis­tök, annað hvort mann­leg eða tækni­leg, eða hvort tveggja. Reyndar urðu mis­tök og heim­ur­inn var sek­úndu­broti frá því að steyp­ast í ófrið­ar­bál en eins og með Arkhipov rúmum tveimur ára­tugum áður, þá var það rósemi og var­kárni eins manns sem kom í veg fyrir það.

Þann 26. sept­em­ber 1983, um þremur vikum eftir að kóreska flug­vélin var skotin niður, var und­ir­ofur­st­inn Stan­islav Petrov á vakt sinni við loft­varn­ar­eft­ir­lit Sov­ét­ríkj­anna. Hann var stað­settur í neð­an­jarð­ar­byrgi rétt fyrir utan Moskvu. Allt virt­ist með kyrrum kjörum. Hlutverk Petrovs var að fylgj­ast með gervi­hnöttum sem áttu að til­kynna sam­stundis ef kjarn­orku­árás væri yfir­vof­andi. Ef slíkt ætti sér stað, átti Petrov sam­stundis að til­kynna það yfir­mönnum í Moskvu svo hægt væri að svara fljótt í sömu mynt. Skömmu eftir mið­nætti dró til tíð­inda. Skyndi­lega kvikn­uðu aðvör­un­ar­ljós sem til­kynntu að kjarn­orkuflaug hefði verið skotið frá Banda­ríkj­unum og hún stefndi á Sov­ét­ríkin. Petrov féll allur ket­ill í eld og til að bæta gráu ofan á svart þá til­kynnti tölvan aftur að fjórum öðrum flaugum hefði verið skotið á loft. Augna­blikið sem allir ótt­uð­ust var komið, Banda­ríkin höfðu ráð­ist á Sov­ét­ríkin.

Petrov varð að til­kynna það strax og Sov­ét­ríkin myndu snar­lega bregð­ast við með gagnárás. Hann lyfti upp sím­tól­inu en eitt­hvað fékk hann til að hika, hann hrein­lega trúði því ekki að þetta væri að ger­ast og það var einmitt þá sem rósemi og var­færni tók yfir­hönd­ina: Petrov varð sann­færður um að þetta hlyti að vera bilun. Ef Banda­ríkin ætl­uðu sér að ráð­ast á Sov­ét­ríkin, þá myndu þau ekki láta fimm flaugar duga heldur yrði öllum vopnum hleypt af í einu. Auk þess var varn­ar­kerfið nýtt og hafði bilað áður, þó ekki á þennan máta. Petrov horfði á tölv­una sem sagði honum að kjarnaflaugar stefndu í átt að heima­landi hans. Síðan hringdi hann í aðal­stöðvar hers­ins og til­kynnti að bilun hefði átt sér stað í kerf­inu.

Er hann lagði tólið á þá varð honum hugsað til þess hvað væri í húfi. Ef hann hefði rangt fyrir sér þá myndu flaug­arnar skella á Sov­ét­ríkj­unum innan hálf­tíma. Mín­út­urnar liðu og rauða ljósið log­aði en ekk­ert gerð­ist. Petrov hafði haft rétt fyrir sér. Það voru engar flaugar á leið­inni. Hann hafði vissu­lega óhlýðn­ast skip­unum en var ekki refsað fyrir það, ekki var honum þó heldur hrósað fyrir yfir­vegun sína.

Lengi vel hafði eng­inn á Vest­ur­löndum hug­mynd um að þessa sept­em­bernótt hafði yfir­vegun eins manns bjargað heim­inum frá glötun. Það var ekki fyrr en eftir fall Sov­ét­ríkj­anna nærri ára­tug síðar sem það varð opin­bert. Bæði rúss­neskir og banda­rískir sér­fræð­ingar eru flestir sam­mála um að mjög lík­lega hefðu sov­ésk stjórn­völd brugð­ist harka­lega við ef Petrov hefði til­kynnt þetta atvik eins og honum bar skylda til. Sem betur fer þá ákvað Petrov frekar að treysta eigin inn­sæi en fylgja hand­bók­inni í blindni, ann­ars hefði ver­ald­ar­sagan mjög lík­lega tekið allt aðra stefnu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár