Sértæk bóluefni gegn delta-afbrigði „okkar helsta von“

Frá því að fjórða bylgja far­ald­urs­ins hófst hér á landi hafa sextán sjúk­lingar legið á Land­spít­ala með COVID-19. Tíu eru inniliggj­andi í dag, þar af tveir á gjör­gæslu.

Kamilla Jósefsdóttir og Alma Möller landlæknir.
Kamilla Jós­efs­dóttir og Alma Möller land­læknir. Mynd: Almannavarnir

Frá 1. júlí hafa 1.024 greinst með kór­ónu­veiruna á Íslandi, þar af 88 á landa­mær­unum. Róðurinn hefur heldur þyngst síð­ustu daga, sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi í dag. Sextán hafa þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús í fjórðu bylgj­unni, þar af þrír frá því í gær. Inniliggj­andi sjúk­lingar með COVID-19 eru því nú tíu tals­ins og tveir þeirra eru á gjör­gæslu­deild.

Að minnsta kosti 118 greindust inn­an­lands í gær. Af þeim voru 34 óbólu­settir. Meiri­hluti nýgreindra var utan sótt­kvíar.

[adspot]

Alma minnti á að rann­sóknir sýndu að bólu­setn­ing dragi „sem betur fer“ mikið úr veik­indum og því „alveg ljóst“ að staðan væri mun alvar­legri ef ekki væri vegna bólu­setn­inga.

„Við erum öll búin að leggja mikið á okkur og árangur hefur verið góður og þess vegna viljum við ekki hætta á neitt og biðjum fólk að fara var­lega, virða óviss­una þannig að við missum ekki þennan góða árangur.“

Alma sagði að auð­vitað hefðu heil­brigð­is­yf­ir­völd áhyggjur af stöð­unni. Vonir standi þó til að „línur skýrist“ á næstu dögum eða viku en að við séum enn á þeim stað að meta hversu mikil veik­indi þeirra sem eru að sýkj­ast nú verða. Vonir væru bundnar við að veik­indi fólks verði minni en í fyrri bylgju og legu­tím­inn styttri. „Við tökum einn dag í einu,“ sagði hún, og „þangað til stöndum við auð­vitað áfram saman, hugsum hvert um annað og reynum að gera það besta úr hlut­unum.“

Ekki tímabært að segja hvort takmörkunum verði aflétt

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði „ómögu­legt að segja“ á þess­ari stundu hvort að tak­mörk­unum inn­an­lands verði aflétt 13. ágúst. Daglega sé gert hættu­mat og ráð­herrum haldið upp­lýstum. Ekki sé því tíma­bært að taka ákvarð­anir um fram­haldið enda „þónokkrir dagar“ enn í að reglu­gerðin falli úr gildi. „Við skulum bara bíða og sjá.“

Kamilla Jós­efs­dóttir, stað­geng­ill sótt­varna­læknis á fund­inum, sagði spurð um hvort hægt verði að halda menn­ing­arnótt og Reykja­vík­ur­mara­þon að það muni taka ein­hverjar vikur að vita „nákvæm­lega hvert stefnir“ og hvað það muni taka langan tíma að kveða niður bylgj­una sem nú gengur yfir.

Hún sagði einnig að „okkar helsta von“ til fram­tíðar væri í raun að fram komi sér­tæk bólu­efni sem virki álíka vel gegn delta-afbrigði veirunnar og upp­haf­legu veirunni sem upp­götv­að­ist í Wuhan-borg í Kína. Hún sagði að þar sem smit væru útbreidd um heim­inn væri hætta á því að fleiri ný afbrigði komi fram sem nái einnig mik­illi útbreiðslu.

[adspot]

Alma sagði að enn vant­aði nýjar upp­lýs­ingar erlendis frá um veik­indi smit­aðra eftir því hvort þeir eru bólu­settir eða ekki. Um 5 pró­sent óbólu­settra þurftu að leggj­ast inn á sjúkra­hús í kjöl­far sýk­inga í fyrri bylgjum áður en delta-afbrigðið kom fram. Vís­bend­ingar séu svo um að inn­lagnir séu algeng­ari af völdum delta. Því gætu um 5 pró­sent óbólu­settra og jafn­vel hærra hlut­fall, þurft inn­lögn.

Hún seg­ist ekki halda að komið hafi til umræðu hjá yfir­völdum að hafa harð­ari reglur hér á landi fyrir óbólu­setta en sú leið hefur verið farin víða erlendis, m.a. í Ísrael.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár