Höfuðborgarbúar færa sig til Suðurlands og Suðurnesja

Enn flytja mun fleiri til Reykja­víkur heldur en frá henni, en á síð­ustu árum hefur sá aðflutn­ingur ein­ungis verið erlendis frá. Þeir sem búsettir eru inn­an­lands hafa aftur á móti fært sig frá höf­uð­borg­inni og að nær­liggj­andi lands­hlutum.

Suðurlandið, ásamt Suðurnesjum, virðist heilla marga höfuðborgarbúa.
Suð­ur­landið, ásamt Suð­ur­nesjum, virð­ist heilla marga höf­uð­borg­ar­búa. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íbúum Suð­ur­lands og Suð­ur­nesja hefur fjölgað um alls 2.300 manns á síð­ustu fimm árum vegna aðflutn­ings fólks úr öðrum lands­hlutum. Á sama tíma hafa rúm­lega þús­und fleiri íbúar flutt frá höf­uð­borg­inni og á lands­byggð­ina heldur en frá lands­byggð­inni til höf­uð­borg­ar­innar. Þetta kemur fram í fólks­flutn­ings­tölum Hagstofu, sem birtar voru í síð­ustu viku.

Fjölgar í öllum landshlutum

Samkvæmt töl­unum hefur íbúum fjölgað í öllum lands­hlutum vegna aðflutn­ings á tíma­bil­inu 2017-2021. Mest hefur nettó aðflutn­ing­ur­inn verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þar eru aðfluttir rúm­lega 16 þús­undum fleiri heldur en brott­fluttir.

Sömu­leiðis hefur aðfluttum fjölgað mikið á Suð­ur­landi og á Suð­ur­nesjum, en í hvorum lands­hluta fyrir sig voru þeir fjórum þús­undum fleiri en brott­fluttir. Í hinum lands­hlut­unum var nettó aðflutn­ingur fólks undir þús­und manns.

Nær allur þessur aðflutn­ingur kemur erlendis frá, en á tíma­bil­inu 2017-2021 fjölg­aði aðfluttum um rúm 27 þús­undum umfram brott­fluttra. 64 pró­sent þeirra sett­ust að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en 12 pró­sent þeirra sett­ust að á Suð­ur­nesjum og önnur 10 pró­sent þeirra fluttu á Suð­ur­landið. Fæstir þeirra, eða um 1,3 pró­sent af heild­ar­fjölda nettó aðfluttra, sett­ust að á Norð­ur­landi Eystra.

Höfuðborgin ekki vinsæl hjá íbúum landsbyggðar

Ef litið er fram­hjá aðflutn­ingi þeirra sem koma erlendis frá sést að höf­uð­borg­ar­svæðið hefur orðið minna ákjós­an­legur staður til að búa á í augum íbúa ann­arra sveit­ar­fé­laga. Líkt og myndin hér að neðan sýnir fluttu rúm­lega þús­und fleiri úr höf­uð­borg­inni á lands­byggð­ina heldur en öfugt.

Á sama tíma fluttu tæp­lega 1.500 fleiri íbúar á Suð­ur­landið heldur en frá því, en nettó aðflutn­ingur íbúa hér­lendis á Suð­ur­nesin var tæp­lega helm­ingi minni. Í öllum hinum lands­hlutum var nettó aðflutn­ing­ur­inn nei­kvæður.

Myndin hér að neðan sýnir mis­mun þeirra sem fluttu frá lands­byggð­inni á höf­uð­borg­ar­svæðið og þeirra sem fluttu frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu á lands­byggð­ina. Líkt og sést hefur nettó aðflutn­ingur inn­an­lands lengst af verið jákvæður í höf­uð­borg­inni, þannig að hluti af fólks­fjölgun hennar hefur verið vegna aðflutn­ings fólks sem bjó áður í öðrum lands­hlutum.

Fyrir tólf árum síðan byrj­aði svo að hægja á þess­ari þróun, en árið 2017 var svo að minnsta kosti 30 ára met slegið í nettó brott­flutn­ingi, þegar 427 fleiri íbúar fóru frá borg­inni og til ann­arra lands­hluta heldur en öfugt. Þetta met var svo slegið aftur í fyrra, en þá nam nettó brott­flutn­ingur íbúa hér­lendis úr borg­inni 640 manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár