Skoða nauðsynlegar breytingar á lagaramma vindorku

Talið er að núver­andi ramma­á­ætlun stjórn­valda henti ekki gagn­vart vind­orku vegna sér­stöðu hennar sem orku­gjafa. Rík­is­stjórnin stefnir á leggja til laga­breyt­ingar er varða vind­orku strax á næsta vor­þingi.

Starfs­hópur á vegum þriggja ráðu­neyta hefur verið falið að skila af sér mati á hvort aðferða­fræði ramma­á­ætl­unar henti vind­orku­kostum fyrir lok árs sem og til­lögum að breyt­ingum á lögum ef hóp­ur­inn telur þess þarft. Ráð­herr­arnir þrír, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, umhverfis-og auð­linda­ráð­herra og sam­göngu-og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, hafa það fyrir augum að leggja til laga­breyt­ingar er varða vind­orku strax á næst vor­þingi.

Vindorka hagkvæmur og sveigjanlegur kostur

[links]Vindorka hefur hingað til lítið verið notuð til raf­orku­fram­leiðslu á Íslandi en gætt hefur vax­andi áhuga á und­an­förnum árum á slíkum fram­kvæmdum.

Í skýrslu ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra um nýjar aðferðir við orku­öflun sem birt var í nóv­em­ber í fyrra kemur fram að vind­orka skeri sig úr öðrum kostum vegna hag­kvæmni og sveigj­an­leika.

Vindorka henti til orku­fram­leiðslu þar sem þörf er fyrir lítið upp­sett afl, til að mynda innan við 10 mega­vött, og einnig til að mæta þörf sem er yfir 200 mega­vött í stóru vind­orku­veri. Í skýrsl­unni segir að þarna á milli séu ótal mögu­leik­ar, meðal ann­ars upp­bygg­ing í hag­kvæmum áföng­um. Ekki er þó hægt að reka raf­orku­kerfi sem bygg­ist ein­göngu á vind­orku. Annar stöð­ugur orku­gjafi, eins og vatns­orka, þurfi að tryggja grunnafl og mæta álagstopp­um. Þegar vind­orkan kemur inn minnki vatns­orku­fram­leiðslan jafnt og þétt.

Lagaramminn verið til skoðunar

Í rík­is­stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar segir að setja þurfi lög um vind­orku­ver ásamt því að vinna með sveit­ar­fé­lögum leið­bein­ingar um skipu­lags­á­kvarð­anir og leyf­is­veit­ingar. Lag­ara­mmi vind­orku hefur því verið til skoð­unar hjá starfs­hópi skip­uðum af ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, umhverfis-og auð­linda­ráð­herra og sam­göngu-og sveita­stjórn­ar­ráð­herra að und­an­förnu.

Samkvæmt svari frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans sam­þykkti rík­is­stjórnin á fundi síð­asta föstu­dag að fela starfs­hópnum að ljúka skoðun sinni og skila mati fyrir árs­lok með fyrir augum að hægt veðri að leggja til laga­breyt­ingar snemma á næsta vor­þingi.

Minna óafturkræft rask en hefðbundnir orkukostir

Starfs­hópnum hefur verið falið að skoða máls­með­ferð, aðferða­fræði, og leyf­is­veit­ing­ar­ferli núver­andi ramma­á­ætl­unar en bent hefur verð á að hún henti ekki endi­lega gagn­vart vind­orku vegna sér­stöðu þess orku­gjafa

Vind­orkan er svo að segja óþrjót­andi og tak­markast helst af land­rými. Þá er hún ekki jafn­stað­bundin og aðrir hefð­bundn­ari virkj­un­ar­kostir og fljót­legra er að byggja vind­orku­ver en hefð­bundnar virkj­anir. Jafn­framt er til­tölu­lega auð­velt að taka verin niður og þau hafa almennt í för með sér minna óaft­ur­kræft rask en hefð­bundn­ari orku­kostir

Því hafa rök verið færð fyrir því að núver­andi máls­með­ferð ramma­á­ætl­unar henti ekki endi­lega gagn­vart vind­orku vegna sér­stöðu hennar.

Ákveðin svæði sem henta betur en önnur

Starfs­hópnum var einnig falið að skoða hvort að rétt sé að bæta við lögin sér­reglum um með­ferð vind­orku­kosta og þá á grund­velli hug­mynda um svæða­skipt­ingu lands­ins með til­liti til þess hvort þau henti til upp­bygg­ingar vind­orku eða ekki.

Samkvæmt Veð­ur­stofu Íslands þarf að hafa gott mat á vinda­fari, sem sé afar svæð­is­bundin, til að kanna íslensku vindauð­lind­ina. Svæð­is­bundnar breyt­ingar ráð­ist mest af hæð í landi, en vindur sé alla jafna meiri á hálendi en lág­lendi og mestur við fjallstinda.

Ef starfs­hóp­ur­inn kemst að þeirri nið­ur­stöðu að bæta eigi við sér­reglum við lögin þá skal hóp­ur­inn enn fremur að vinna drög að stefnu­mörkun rík­is­ins varð­andi þá umhverf­is­legu og sam­fé­lags­legu þætti sem ættu að vera ráð­andi við slíka svæða­skipt­ingu, auk mót­aðra hug­mynda um hvaða stofnun eða aðili væri best til þess fall­inn að fram­kvæma hana.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að horft hefur verið til Noregs í þessum málum en þar í landi hefur verið lagt í umtals­verða vinnu við gerð sér­stakra vind­orku­korta fyrir landið, sem sýna hvaða svæði henta til nýt­ingar og hvar ætti að forð­ast hana.

Að lokum á starfs­hóps­ins á að leggja til nauð­syn­legar breyt­ingar á lögum um ramma­á­ætlun ef hóp­ur­inn telur þess þörf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár