Vindorka er áhugaverðari en Kvika áætlar

Vind­ur­inn og rokið getur verið Íslandi afar mik­il­vægt til fram­tíðar litið, eins og Ketill Sig­ur­jóns­son, lög­fræð­ingur og MBA, rekur í grein sinni.

Um mitt ár 2016 kom út ítar­leg skýrsla unnin af Kviku banka um kostn­aðar- og ábata­grein­ingu vegna raf­orku­sæ­strengs milli Íslands og Bret­lands. Þetta er um margt mjög vel unnin og fróð­leg skýrsla. En því miður gefur skýrslan skakkt mat á því hversu mikil vind­orka er lík­leg til að verða virkjuð á Íslandi á kom­andi árum og ára­tugum. Þar er byggt á röngum eða í besta falli óná­kvæmum for­sendum og fyrir vikið gefur nið­ur­staða bank­ans um orku­öflun hér á landi til fram­tíðar fremur óraun­sæja mynd af lík­legri þróun orku­geirans. Nýting vind­orku á Íslandi er m.ö.o. mun áhuga­verð­ari kostur en skýrsla Kviku banka gefur til kynna.

Yfirborðskennd umfjöllun Kviku banka um vindorku

Umrædd skýrsla Kviku banka hefur að geyma mikið magn upp­lýs­inga og varla til önnur dæmi um jafn ítar­lega umfjöllun um kostnað við raf­orku­öflun á Íslandi. Sem gerir skýrsl­una afar áhuga­verða og merki­legt inn­legg bæði í umræðu um mögu­legan sæstreng og um upp­bygg­ingu nýrra virkj­ana.

Það er engu að síður svo að miðað við það hversu ítar­leg skýrslan er, vekur það nokkra furðu hversu umfjöllun skýrslu­höf­unda um vind­orku er yfir­borðs­kennd. Sú umfjöllun er að mestu tak­mörkuð við einn stuttan kafla með fáeinum skýr­ing­ar­myndum/gröfum sem eru nán­ast vand­ræða­lega almenns eðlis og þýð­inga­lítil (kafli 15.3.3). Skýrsl­una í heild má nálg­ast á vef atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyts­ins, svo og á vef Kviku banka.

Engin vindorka án sæstrengs?

Í ljósi fábrot­innar umfjöll­unar skýrsl­unnar um vind­orku kemur kannski ekki á óvart að nið­ur­staða skýrslu­höf­unda um mögu­leika í virkjun vind­orku á Íslandi er hvorki skyn­sam­leg né raunsæ. Í stuttu máli þá gerir Kvika banki ráð fyrir því að ef ekki kemur til lagn­ingar sæstrengs (raf­strengs) milli Íslands og Evrópu, sé ólík­legt að vind­orka verði virkjuð hér á landi. Sbr. miðsviðs­mynd skýrslu­höf­unda, sem sjá má á þessu grafi úr skýrsl­unni.

Skýr­ingin á þessu ein­kenni­lega mati Kviku banka á tæki­færum í vind­orku virð­ist fyrst og fremst vera sú að vind­orka sé álitin of dýr til að vera áhuga­verð hér nema til lagn­ingar sæstrengs komi (sæstreng­ur­inn skapar rétti­lega mögu­leika á að fá hærra verð fyrir raf­ork­una en ella). Þetta mat Kviku banka er byggt á veikum for­sendum, eins og lýst er nánar í þess­ari grein.

Lyk­il­at­riðið er að höf­undar að skýrslu Kviku banka beittu skakkri aðferða­fræði við mat á kostn­aði vind­orku í sam­an­burði við kostnað nýrra hefð­bund­inna virkj­ana og van­mátu þar með tæki­færin sem í vind­orkunni fel­ast. Þetta kemur nokkuð á óvart, enda naut Kvika banki ráð­gjafar frá ráð­gjafa- og grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Pöyry. Sem er „eitt virtasta ráð­gjafa­fyr­ir­tæki á sviði orku­mála í Evrópu“, eins og segir á vef Kviku banka.

Kostnaður vindorku liggur á mjög breiðu bili

Helsta ástæða þess að Kvika banki van­mat tæki­færin í vind­orku er sú að bank­inn setti eina fasta kostn­að­ar­tölu á alla virkj­an­lega vind­orku upp að 6 TWst, sbr. graf sem sjá má hér á vef Icelandic Energy Portal (rauðu hringj­unum þar er bætt við inn á upp­haf­legt graf Kviku til áherslu­auka). Sú fasta kostn­að­ar­tala var rétt yfir 50 EUR/MWst. Sá kostn­aður er vissu­lega hærri en kostn­aður almennt við nýjar vatns­afls- og jarð­varma­virkj­anir á Íslandi. En þessi aðferða­fræði Kviku banka gengur samt ekki upp í þessu sam­hengi.

Þarna hefði vind­orkan átt að fá sams­konar umfjöllun eins og beitt var um virkj­un­ar­kosti í vatns­afli og jarð­varma. Þar sem hver virkj­un­ar­kostur var kostn­að­ar­met­inn og þeim svo raðað þannig að ódýr­ustu virkj­un­ar­kost­irnir væru lík­legir til að verða virkj­aðir fyrst og svo koll af kolli.

Eðlilegt hefði verið að kostn­að­ar­meta vind­orku með svip­uðum hætti. þ.e. gera ráð fyrir að hluti hennar væri undir með­al­kostn­aði (og hluti hennar yfir með­al­kostn­aði). Rétt eins bæði IRENA og Lazard gera við mat á kostnað vind­orku, en kostn­aður vind­orku er jú mjög breyti­legur; ekki síst vegna mis­mun­andi vind­að­stæðna á hverjum stað.

Mismunandi aðferðafræði skekkti samanburðinn

Kostn­aður við að virkja vind­orku og fram­leiða þannig raf­magn er sem sagt langt frá því að vera ein til­tekin upp­hæð. Með því að beita sömu eða svip­aðri aðferða­fræði um vind­ork­una eins og gert var með vatns­aflið og jarð­var­mann, hefði nið­ur­staða Kviku banka orðið tals­vert öðru­vísi heldur en sú sem fyr­ir­tækið kynnti (þá nið­ur­stöðu bank­ans má sjá hér á vef Icelandic Energy Portal).

Ef Kvika hefði þarna notað sam­bæri­lega aðferða­fræði hefði glögg­lega mátt sjá að ódýr­ustu kost­irnir í vind­orku eru nokkru kostn­að­ar­minni en margir kostir í jarð­varma, sbr. einnig grein um þetta á vef Icelandic Energy Portal. Það er m.ö.o. óheppi­legt og raunar frá­leitt að afgreiða alla virkj­un­ar­kosti í vind­orku með einni kostn­að­ar­tölu, enda beitti Kvika banki að sjálf­sögðu ekki þeirri aðferð við mat á kostn­aði nýrra vatns­afls- og jarð­varma­virkj­ana. Þessi mis­mun­andi aðferða­fræði skekkir sam­an­burð­inn í skýrsl­unni.

Kostnaður einstakra verkefna er afgerandi atriði

Eðli­leg­ast er að gera ráð fyrir því að röðun virkjuna­fram­kvæmda muni fyrst og fremst ráð­ast af kostn­aði ein­stakra verk­efna (svo og umhverf­is­á­hrifum og skipu­lagi). Það merkir að ódýrir kostir í vind­orku munu í a.m.k. ein­hverjum til­vikum verða byggðir upp á undan mun dýr­ari kostum í jarð­varma (og jafn­vel vatns­afli).

Við þetta bæt­ist svo að sam­spil eldri vatns­afls­virkj­ana og nýrra vind­myllu­garða geta gert vind­orku­verk­efni ennþá hag­stæð­ari en ella. Sem kann að flýta ennþá meira fyrir upp­bygg­ingu vind­myllu­garða. Eftir stendur svo auð­vitað spurn­ingin um kostnað vegna vara­afls fyrir íslenska vind­myllu­garða, en þann kostnað er snúið að meta vegna þess að hér á landi er ekki ennþá til slíkur mark­aður.

Kostnaður við vindorku oft töluvert lægri en kostnaður jarðvarma

Eins og áður sagði er í skýrslu Kviku banka miðað við að kostn­aður vind­orku sé almennt nokkuð yfir 50 EUR/MWst (kostn­aður sem byggir á efna­hags­legum líftíma virkj­unar, stofn­kostn­aði, rekstr­ar­kostn­aði og vegnum með­al­fjár­magns­kostn­aði). Hafa ber í huga að skv. upp­lýs­ingum frá Kviku banka er tengi­kostn­aður virkj­ana við flutn­ings­netið inni­fal­inn í umræddri kostn­að­ar­tölu.

Umrædd tala er með­al­kostn­aður, en Kvika banki leit ekki til þess að mörg vind­orku­verk­efni eru langt undir með­al­kostn­aði (og önnur langt yfir). Ef Kvika hefði beitt sömu aðferða­fræði gagn­vart vind­orku eins og vatns­afli og jarð­varma, hefði kostn­aður ódýr­ustu vind­myllu­garð­anna senni­lega verið met­inn u.þ.b. 25–30% lægri en með­al­tals­kostn­að­ur­inn sem Kvika banki mið­aði við.

Þetta hefði skipt veru­legu máli fyrir mat á sam­keppn­is­hæfni vind­orku. Því þá hefði nið­ur­staðan vafa­lítið orðið sú að hund­ruð MW af vind­orku­afli á Íslandi séu hag­kvæm­ari en t.d. margar þeirra jarð­varma­virkj­ana sem eru fyr­ir­hug­aðar hér skv. Ramma­á­ætlun. Sá sem þetta skrifar álítur lík­legt að hér muni reyn­ast hag­kvæmt að reisa um 300–400 MW af vindafli á kom­andi árum, þó svo eng­inn sæstrengur komi. Og jafn­vel meira. Sæstrengur myndi svo gera nýt­ingu á íslenskri vind­orku ennþá áhuga­verð­ari.

Nýleg greining MIT/IIT styður hagkvæmni íslenskrar vindorku

Í þessu sam­bandi má líka horfa til nýlegrar grein­ingar og kostn­að­ar­mats af hálfu MIT Energy Ini­ti­ative og Comillas-IIT. Þar kemur fram að hér­lendis verði unnt að reisa nokkur hund­ruð MW af vindafli þar sem kostn­að­ur­inn (levelized cost of energy; LCOE) nemur um 35 USD/MWst, þ.e. um 32 EUR/MWst (miðað við gengi evru og banda­ríkja­dals).

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem ég hef fengið frá MIT/IIT eru þessir útreikn­ingar m.a. byggðir á upp­lýs­ingum frá Lands­virkjun um nýt­ing­ar­tíma (capacity factor) vind­myll­anna tveggja ofan við Búrfell. Ætla má að sú töl­fræði gefi ágæta mynd af því hvers vænta megi um hag­kvæmni vind­orku á Íslandi. Sú hag­kvæmni virð­ist tví­mæla­laust vera mun meiri en ráða má af skýrslu Kviku banka. Af þessu öllu leiðir að sú ályktun Kviku banka að ólík­legt sé að hér rísi vind­myllu­garðar nema til sæstrengs komi, er senni­lega röng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár