Ensk úrvalsdeildarlið bera víurnar í Ragnar Sigurðsson

Nokkur ensk úrvals­deild­ar­lið eru sögð vera að bera víurnar í Ragnar Sig­urðs­son, hetju íslenska lands­liðs­ins í leiknum gegn Englandi, sam­kvæmt breskum fjöl­miðlum.

Ragnar var val­inn maður leiks­ins en hann hefur staðið sig gríð­ar­lega vel allt mótið. Ensku meist­ar­arnir Leicester og Totten­ham Hotspur, sem lenti í þriðja sæti úrvals­deild­ar­innar í vetur, hafa sýnt form­legan áhuga á honum og haft sam­band við umboðs­mann hans, að því er Guardian greinir frá. Liverpool og önnur úrvals­deild­ar­lið eru einnig sögð hafa lýst yfir áhuga á honum.

Þá er sagt að þýsku liðin Schalke og Wolfsburg hafi áhuga á að fá hann í sínar raðir og hafi haft sam­band við Krasn­odar, liðið sem Ragnar spilar með í Rúss­landi.

Fjöl­miðlar í Englandi greina líka frá áhuga á Jóhanni Berg Guð­munds­syni, sem spilar hjá Charlton í ensku annarri deild­inni, en ljóst þykir að hann mun yfir­gefa her­búðir liðs­ins í sumar. Hann hefur sjálfur sagt að hann ætli ekki að hugsa um vista­skiptin fyrr en að Evr­ópu­mót­inu er lokið, en nú greina fjöl­miðlar frá áhuga fyrstu deildar liðs­ins Norwich á honum.

Íslensku lands­liðs­menn­irnir hafa vakið mikla athygli á Evr­ópu­mót­inu og hefur verið talið að margir þeirra myndu vekja athygli og áhuga ýmissa liða, enda mót eins og þetta einn stærsti sýn­ing­ar­gluggi fyrir fót­bolta­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár