„Fólkið á að vita hverju ég er búinn að lenda í“

Í leik­verkinu Fúsi – aldur og fyrri störf segir Fúsi sögu sína. Verkið unnu hann og Agnar Jón, frændi hans, saman en þann 3. desember síðastliðinn, hlutu frændurnir Múrbrjótinn – verðlaun fyrir að brjóta niður veggi í þágu þroska­hamlaðra. Verð­launin eru veitt á vegum Þroska­hjálpar, einu sinni á ári. Mögulega er þetta raun­verulegt tímamóta­verk.

Fúsi og Agnar Jón
Fúsi og Agnar Jón Rætt um sögu Fúsa, vin­áttu frænd­anna og inn­gild­ingu fatl­aðra í leik­húsið. Ljósmynd: Jóhanna Helga Þor­kels­dóttir.

Leik­stjórinn og leikarinn Agnar Jón Egilsson er æskuvinur blaða­manns síðan þau voru ellefu ára. Og alla tíð hefur undir­rituð heyrt Agnar mæra Fúsa frænda sinn – sem heitir fullu nafni Sigfús Svein­björn Svan­bergsson. Þeir frændur eru nánir og undir­rituð man líka eftir einhverjum skiptum þegar hún reyndi að gera eitthvað skemmtilegt með Agnari en hann vildi frekar hanga með Fúsa.

En hver er Fúsi?

Það má heyra í leikverki um Fúsa, já, leikarann og lista­manninn Fúsa, sem þeir frændur hafa skapað og er sýnt þessa dagana í Borgar­leikhúsinu. Svo það var ekki úr vegi að hitta þá í anddyri Borgar­leikhússins og rabba um ævintýrið.

Að fatlaður listamaður fái vettvang

Múrbrjóturinn er veittur á vegum Þroska­hjálpar, einu sinni á ári, og gleðiefni fyrir frændurna að þeir skyldu hljóta hann. „Þetta var stór tuttugu ára afmælis­hátíð Listar án landamæra og verðlauna­afhending Múrbrjótsins fór með afmælis­hátíðinni. Þarna voru …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár