Ásælast fjársjóðskistu Grænlands í nafni grænnar orku

Það var engin til­viljun að Donald Trump sagð­ist ætla að kaupa Grænland í ágúst árið 2019. Skömmu áður hafði aldr­aður, ástr­alskur jarð­fræð­ingur mætt á fund í Hvíta hús­inu til að kynna draum­inn sinn: Risa­stóra námu í fornu fjalli við frið­sælan fjörð.

Þegar Donald Trump, þáver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, sagði það til skoð­unar (þó ekki for­gangs­mál) að kaupa Grænland, var gert stólpa grín að honum um allan heim. Grænland er ekki til sölu sögðu bæði for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands og for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur en Trump hafði einmitt svarað því til, spurður um áhug­ann á kaup­unum, að Danmörk „ætti það raun­veru­lega“. Kaupin yrðu „í raun stór fast­eigna­samn­ingur“ og „margt væri hægt að gera“ á Græn­landi. Svo gaf hann í skyn að Danir yrðu eflaust fegnir að losna við þessa stóru eyju í norðri, hún væri þeim svo íþyngj­andi fjár­hags­lega.

„Grænland er ekki til sölu. Grænland er ekki danskt. Grænland til­heyrir Græn­landi,“ sagði Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Hún sagði hug­mynd­ina að kaup­unum „fárán­lega“ og móðg­aði Trump um leið mikið.

Þetta var í ágúst árið 2019. Fyrir rúm­lega einu og hálfu ári síðan.

Þótt margir hafi hlegið að þess­ari hug­mynd Trumps þá voru aðrir sem töldu hann vera að reyna að feta í fót­spor Andrew Johnson sem var for­seti árið 1869 er Banda­ríkja­menn keyptu Alaska af Rússum á 7,2 millj­ónir dala. Fleiri for­setar fyrri tíma hafa keypt land­svæði fyrir hönd banda­ríska rík­is­ins. Það gerði Thomas Jeffer­son árið 1803 er hann keypti stórt land­svæði í Louisiana af Frökkum. Slík við­skipti hafa einnig farið fram milli Dan­merkur og Banda­ríkj­anna og ekki er lengra síðan en rúm öld frá því að Woodrow Wilson keypti hinar svo­nefndu Dönsku Vestur-Indíur fyrir 25 millj­ónir dala. Eyjurnar sem keyptar voru fengu í kjöl­farið nafnið Banda­rísku Jóm­frúa­eyjar.

En hvað sem fyrir Trump vakti, hvort sem hann var að reyna að auka sinn per­sónu­lega hróður eður ei, þykir mörgum ljóst hvaðan hug­myndin kom: Frá öldruðum, áströlskum jarð­fræð­ingi sem helgað hefur líf sitt leit­inni að fágætum jarð­efnum.

Greg Barnes er alls eng­inn nýgræð­ingur þegar kemur að því að leita að, grafa eftir og selja sjald­gæf­ustu efnin sem finn­ast í jarð­skorp­unni. Þessa iðju hefur hann stundað í hálfa öld. Og hann er enn að. Augu hans höfðu því fyrir löngu beinst að Græn­landi og þess fornu fjöllum. Það var einmitt Barnes sem hafði komið á fund sér­fræð­inga í Hvíta hús­inu í júlí árið 2019, aðeins nokkrum dögum áður en fyrstu fréttir tóku að ber­ast af hug­myndum Trumps um að kaupa Grænland.

Ástr­alska við­skipta­blaðið AFR (Australian Financial Review), hefur eftir heim­ild­ar­mönnum að Barnes hafi hitt tutt­ugu sér­fræð­inga sem allir tengd­ust rík­is­stjórn Trumps. Sumir voru starfs­menn ráðu­neyta en aðrir stofn­ana, s.s. Banda­rísku jarð­fræði­stofn­un­ar­innar. Á fund­inum upp­lýsti hann áheyr­endur um hið risa­stóra námu­verk­efni sem hann stefnir að á Græn­landi. Verkefni sem kall­ast Tanbreez, nafn sem búið er til úr upp­hafs­stöfum þeirra jarð­efna sem fjöllin á suð­ur­hluta Græn­lands geyma og Barnes hefur áhuga á að vinna.

Grænland er eitt elsta land heims.
Grænland er eitt elsta land heims.

Banda­ríska jarð­fræði­stofn­unin heldur því fram að á Græn­landi sé að finna mesta vinn­an­lega magn heims af hinum sjald­gæfu jarð­efnum sem eft­ir­sótt eru í hvers­konar iðn­aði og fram­leiðslu. Efnin, sem heyra til þess­ara jarð­efna, eru sautján tals­ins. Grænland geymir svo mun fleiri efni. Þar er að finna gull og aðrar ger­semar í jörðu sem fyrr og nú hafa þótt eft­ir­sókn­ar­verðar.

En hvers vegna finn­ast öll þessi jarð­efni á Græn­landi? „Grænland er meðal elstu landa jarðar, allt að 4 millj­arða ára gam­alt,” skrif­aði Haraldur Sig­urðs­son eld­fjalla­fræð­ingur um málið á blogg­síðu sína. „Gamalt berg hefur gengið í margt í gegnum jarða­ld­irnar, eins og gefur að skilja,“ heldur hann áfram. „Grænland hefur til dæmis verið stað­sett fyrir sunnan mið­baug, en rak svo norður. Grænland hefur líka verið grafið djúpt í jörðu, tugi kíló­metra, sem hefur hitað og soðið jarð­skorpuna og skilið að ýmsar efna­sam­stæður og frum­efni á vissum svæðum. Þá ummynd­ast bergið og hnoð­ast, eins og þegar við bökum marm­ara­köku. Heitir vökvar, sem eru eins konar milli­stig milli hraun­kviku og heita vatns­ins okkar, bera með sér þessi efni úr dýp­inu, en svo falla þau út og krist­all­ast þegar vök­vinn kemur upp í kald­ara berg. Þá mynd­ast málm­æðar, sem eru grund­völlur fyrir námu­rekstri.“

Allt þetta veit Barnes sem hefur enda verið í verk­efnum á Græn­landi áður. Fyr­ir­tæki hans, Rimbal Pty Ltd., keypti námu­verk­efnið Tanbreez árið 2001, fyrir tveimur ára­tugum. Á heima­síðu Tanbreez segir að það sé enn í fullri eigu Rimbal.

Donald Trump not­aði hvert tæki­færi sem hann gat á sinni valda­tíð til að reyna að hafa áhrif á völd Kínverja í hag­kerfi heims­ins. Hann setti á inn- og útflutn­ings­bönn sem og tolla á vörur frá Kína. En þegar kom að hinum sjald­gæfu og verð­mætu jarð­efnum var það flókið. Kín­verjar ráða yfir um 90 pró­sent af vinnslu þeirra á heims­vísu. Þeir eru því sem næst í ein­ok­un­ar­stöðu á þeim mark­aði.

Kín­verskir fjár­festar eru fyrir löngu síðan farnir að horfa til Græn­lands og mögu­legrar námu­vinnslu þar. Kín­verskt fyr­ir­tæki, sem nýtur opin­bers fjár­stuðn­ings, á í dag stærstan hlut í ástr­alska fyr­ir­tæk­inu Greenland Minerals. Fyr­ir­tækið hefur í meira en ára­tug stefnt að vinnslu sjald­gæfra jarð­efna úr fjalli á suð­ur­hluta Græn­lands, ofan við bæinn Narsaq. En sá galli fylgir gjöf Narðar að í fjall­inu Kuann­ersuit er mikil geisla­virkni. Það hefur verið vitað í ára­tugi. Og það vissi Barnes sem ætl­aði sér eitt sinn að gera þar námu. Það verk­efni seldi hann hins vegar fyrir nokkrum árum.

Skammt frá Kuann­ersuit, sem á íslensku heitir Hvann­ar­fjall, er nokk­urs konar torg kennt við Niels Bohr, þann þekkta danska eðl­is­fræð­ing sem fékk Nóbels­verð­laun árið 1922 fyrir rann­sóknir á geislun frum­einda en sneri sér svo að kjarneðl­is­fræði. Það var þó ekki fyrr en eftir dauða hans að Danir höfðu uppi stór áform um að vinna úran á Græn­landi til að nota í kjarn­orku­verum. Þetta var árið 1980. Meira en 4.200 tonn af málm­grýti voru grafin úr Hvann­ar­fjalli og flutt til Dan­merkur. Þá voru engin kjar­orku­ver í Danmörku og enn er þar ekk­ert slíkt að finna.

Úran yrði því auka­af­urð námu­vinnslu Greenland Minerals yrði hún að veru­leika. Græn­lend­ingar eru hins vegar flestir síður en svo hrifnir af því og ótt­ast að það geti spillt hinu við­kvæma líf­ríki við heim­skauts­baug enda sér­lega óstöðugt efni og erfitt í með­förum.

Donald Trump var áhugasamur um að kaupa Grænland.
Donald Trump var áhuga­samur um að kaupa Grænland.

Fengi Greenland Minerals að opna námu í Kuann­ersuit, í um 600 metra hæð yfir sjáv­ar­máli, myndi það mala um þrjár millj­ónir tonna af málm­grýti úr því á ári en aðeins flytja út brot af því magni. Afgang­inum, sem þá yrði orð­inn úrgangur, yrði komið fyrirí stóru vatni á tindi fjalls­ins. Þetta er ekki ósvipað áformum Tanbreez. Unnið yrði málm­grýti úr tveimur opnum námum og úrgangi, um 200 þús­und tonnum á ári, dælt um sjö kíló­metra leið í gegnum pípu og út í vatnið Fostersø á toppi fjalls­ins Killa­vaat Alannguat við Kan­gerlu­ar­suk-fjörð. Vatnið þyrfti að stífla og myndi fyll­ast af úrgangi á um þremur ára­tugum að því er fram kemur í mats­skýrslu TanBreez sem gerð var árið 2013.

Þessi fyr­ir­hug­aða námu­vinnsla varð að stærsta kosn­inga­máli í nýaf­stöðnum þing­kosn­ing­unum á Græn­landi og varð til þess að vinstri flokk­ur­inn Inuit Ataqatigiit bar sigur úr býtum, flokkur sem segir enga vinnslu úrans koma til greina. Formaður flokks­ins, Múte Egede, hefur enn­fremur sagt að nýt­ing nátt­úru­auð­linda Græn­landi eigi að vera á for­ræði Græn­lend­inga sjálfra. Hann var áður ráð­herra auð­linda­mála og hitti þá jarð­fræð­ing­inn Barnes og sló ekki hug­myndir hans út af borð­inu. Enda yrði úran ekki fylgi­fiskur vinnslu Barnes nema í “örlitlum mæli” og hann hefur þegar fengið rann­sókn­ar­leyfi.Það er önnur umhverf­is­á­hrif sem myndu fylgja, m.a. hætta á mengun áa.

Fram­haldið er hins vegar óljóst nú þegar ný stjórn munu taka við valda­taumunum á Græn­landi. Barnes hefur hins vegar sagt að hvað sem verði sé hann til­bú­inn að bíða miklu lengur. Náman hans á Græn­landi yrði „sú stóra“.

Tanbreez Mining Greenland fékk í ágúst rannsóknarleyfi grænlenskra stjórnvalda vegna fyrirhugaðrar námu sinnar.
Tanbreez Mining Greenland fékk í ágúst rann­sókn­ar­leyfi græn­lenskra stjórn­valda vegna fyr­ir­hug­aðrar námu sinnar.

Brölt Kínverja á Græn­landi hefur hins vegar ekki verið stjórn­völdum í Banda­ríkj­unum að skapi. Og þegar Barnes hafði lokið erindi sínu á fundi sér­fræð­ing­anna í Hvíta hús­inu hefur Trump verið upp­lýstur um málið. Risa­stórt fjall. Fullt af sjald­gæfum jarð­efnum. Fleiri slík á eyj­unni stóru, fjöll sem eru smám saman, vegna lofts­lags­ham­far­anna, að verða aðgengi­legri til vinnslu. Nóg af efnum sem notuð eru í vind­myllur, sól­ar­raf­hlöður, síma­skjái og raf­hlöður raf­magns­bíla. Öll þessi nútíma­þæg­indi sem Vest­ur­landa­búar eru farnir að venj­ast og þurfa ef áætl­anir um upp­bygg­ingu „grænnar orku“ sem er á stefnu­skrá flestra vest­rænna ríkja, eiga að verða að veru­leika. Svo eru þau einnig notuð til vopna­fram­leiðslu. Mikið magn seg­ul­magn­aðra sjald­gæfra jarð­efna þarf í slíka hátækni­fram­leiðslu. Mjög mikið.

Með því að kom­ast að þeim „kjöt­kötlum“ þyrftu Banda­ríkja­menn ekki lengur að stóla á Kín­verj­ana í þeim efnum. Núver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, Joe Biden, hefur ekki sagst ætla að kaupa Grænland en stjórn hans hefur upp­lýst að farið verði yfir öll lykil aðföng Banda­ríkj­anna, m.a. sjald­gæf jarð­efni, og reynt að tryggja að aðrar þjóðir geti ekki notað ákveðnar fram­leiðslu­vörur sem vopn í við­skiptum við Banda­ríkin.

Pass-fjall í Kaliforníu. Þar er að finna einu námu sjaldgæfra jarðefna í Bandaríkjunum. Fyrirtækið sem hana rekur er í meirihlutaeigu Kínverja.
Pass-fjall í Kali­forníu. Þar er að finna einu námu sjald­gæfra jarð­efna í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið sem hana rekur er í meiri­hluta­eigu Kínverja.

En þessi fyr­ir­hug­aða námu­vinnsla er drullum­all. Jarð­efnin fágætu er að finna víða um heim en oft­ast í svo litlu magni að það hefur þurft gríð­ar­legan kostnað og mikla vinnu að grafa eftir þeim í vinn­an­legu magni. Þetta er talin ein helsta ástæða þess að Banda­ríkja­menn, sem voru leið­andi í vinnsl­unni á árum áður, gáfust upp á henni og Kín­verjar stukku á tæki­færið, glu­f­una sem mynd­að­ist, með fyrr­greindum yfir­burða afleið­ingum. Ein slík náma er starf­rækt í Banda­ríkj­unum. Hún er að hluta í eigu kín­versks fyr­ir­tækis sem nýtur stuðn­ings stjórn­valda í sínu heima­landi. Það sem unnið er úr námunni í Pass-fjalli í Kali­forníu er flutt til Kína til frek­ari vinnslu.

Barnes fór ekki á fund sér­fræð­ing­anna í Hvíta hús­inu í þeim eina til­gangi að segja þeim sögu af græn­lensku fjalli sem hann vill grafa í. Hann er í leit að fjár­magni. Hann þarf 500 millj­ónir Banda­ríkja­dala til að hefja vinnsl­una – að því gefnu að hann fái yfir höfuð leyfi til graftr­ar­ins. „Þetta er bara brjál­æði,“ sagði Barnes nýverið um áhug­ann hjá fjár­fest­unum. Hann seg­ist þegar hafa fengið um tutt­ugu til­boð.

Þetta kapp­hlaup um auð­lindir í jörðu á Græn­landi, þessar tvær áform­uðu námur sem aðeins yrðu nokkrir kíló­metrar á milli, hefur afhjúpað margt en kannski fyrst og fremst tvennt: Í fyrsta lagi að það er raun­veru­leg valda­bar­átta milli Kínverja og Banda­ríkja­manna um nýt­ingu á norð­ur­slóðum og stundum er látið eins og aðrar þjóðir (Græn­lend­ingar í þessu til­felli) séu bara peð sem ein­fald­lega megi ryðja úr vegi. Hitt sem er loks farið að vekja athygli er að græn orka sem er efst á lof­orða­listum margra stjórn­mála­manna er ekki alltaf svo væn.

Hinum megin á jarðkringlunni

En hvað eru tvö áströlsk fyri­tæki að vilja upp á dekk hinum megin á hnett­inum? Námu­vinnsla er umfangs­mikil í Ástralíu. Þar var gullæði á þar síð­ustu öld og síðan þá hafa fjöl­margar námur verið opn­aðar vítt og breitt um landið til að grafa eftir marg­vís­legum málum, gim­steinum og ekki síst kolum og gasi. Í þessu umhverfi hafa mörg stór alþjóð­leg námu­fyr­ir­tæki orðið til sem eru með starf­semi í mörgum löndum, jafn­vel mjög fjar­lægum.

Tanbreez, fyr­ir­tæki Barnes, og Greenland Minerals, eru einmitt sprottin úr þessu námu­væna lands­lagi efna­hags­lífs­ins í Ástralíu. Og nú vilja þau grafa á Græn­landi. Það vilja fleiri áströlsk námu­fyr­ir­tæki reyndar gera. Þau eru í það minnsta sex tals­ins.

Banda­rísk stjórn­völd hafa ekk­ert gefið út um það hvort að þau ætli sér að kaupa í fyr­ir­tæki Barnes. En það er ekki úti­lokað því þau vilja verða sjálf­bær í öflun sjald­gæfu jarð­efn­anna.

Grænland er stærsta eyja heims, hulin ís að mestu þó að íshellan hafi þynnst og hörfað á síð­ustu árum. Þar hafa land­mót­un­aröfl nátt­úr­unnar ekki aðeins sett svip sinn á fjöllin, dal­ina og firð­ina. Úr þessu stór­brotna umhverfi, víð­átt­unni til lands og sjávar, er hin fámenna en sann­ar­lega harð­gerða græn­lenska þjóð sprottin. Þjóð sem hefur verið undir yfir­ráðum Dana í aldir en hefur síð­ustu ár tekið sífellt meiri völd á eigin málum. Meðal ann­ars nátt­úru­auð­lindum.

Ferðamennska hefur aukist á Grænlandi síðustu ár og því hefur verið spáð að landið verði enn vinsælli áfangastaður í nánustu framtíð.
Ferða­mennska hefur auk­ist á Græn­landi síð­ustu ár og því hefur verið spáð að landið verði enn vin­sælli áfanga­staður í nán­ustu fram­tíð.

Nú er verið að reyna að stilla Græn­landi upp í miðj­unni á valda­brölti stór­velda á norð­ur­hjara ver­aldar. Sú upp­still­ing hefur átt ákveð­inn aðdrag­anda og ýmsir sér­fræð­ingar hafa á síð­ustu árum bent á að slíkt væri í upp­sigl­ingu. „Hugmynd Trumps um að kaupa Grænland varð til þess að heims­byggðin fór að átta sig á hvað fólk eins og við höfum verið að tala um allan tím­ann,“ sagði Dwayne Menezes, stofn­andi og for­stöðu­maður bresku hug­veit­unnar Polar Research & Policy Ini­ti­ative, í sam­tali við AFT. Grænland eigi eftir að verða miðja geópóli­tíkur 21. ald­ar­innar. Nátt­úru­auð­lind­irnar og sigl­inga­leið­irnar. Áhrif lofts­lags­ham­far­anna sem eru hvað mest á þessum slóðum. Ofan á allt saman leggst svo þykkt lag af óþoli nokk­urra vest­ur­velda í garð Kínverja og Rússa.

Efna­hags­líf Græn­lend­inga byggir helst á þremur stoðum: Fisk­veiðum, land­bún­aði og ferða­mennsku. Sú síð­ast­nefnda hefur farið vax­andi og áður en heims­far­aldur COVID-19 skall á höfðu þekkt ferða­rit veðjað á að stóra eyjan í norðri yrði næsti „heiti“ áfanga­staður ferða­langa. Enn á eftir að koma í ljós hvort að sú spá ræt­ist og verði til þess að fólk eigi eftir að flykkj­ast til lands­ins og þá til að skoða hina óspilltu nátt­úru.

„Það er ótrú­leg fjöl­breytni í málmum og verð­mætum frum­efnum í jarð­skorpu Græn­lands,“ skrif­aði Haraldur eld­fjalla­fræð­ingur í fyrr­nefndri blogg­færslu sinni. „Fram­tíðin mun skera úr um, hvernig Græn­lend­ingar munu fara með þessi miklu auð­æfi í jörðu, en námu­vinnsla þar mun hafa gíf­ur­leg og nei­kvæð áhrif á umhverfið, allt til Íslands.“

Egede, for­maður IA, sem er nú að þreifa fyrir sér um myndun nýrrar rík­is­stjórnar á Græn­landi, sendi skýr skila­boð strax og úrslit þing­kosn­ing­anna voru ljós. „Við segjum nei við úran­vinnslu.“ Í fjallið sem hann ólst upp undir í bænum Narsaq verður að minnsta kosti ekki grafið. Flokkur hans er hins vegar ekki alfarið á móti námu­vinnslu. Barnes getur því áfram haldið í von­ina. Og það gerir hann svo sann­ar­lega. Í síð­ustu viku var haft eftir honum að hann hefði engar áhyggjur af nýrri rík­is­stjórn. Hún myndi ekki sjá fyr­ir­tæki hans í öðru ljósi en sú síð­asta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár