Ekkert lát á fjölgun erlendra ríkisborgara á Íslandi

Erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði um 15,6 pró­sent á 11 mán­uðum. Flestir erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 19.025 tals­ins.

Menn við vinnu
Menn við vinnu Mynd: Bára Huld Beck

Alls voru 43.726 erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi í byrjun nóv­em­ber og fjölg­aði þeim um 5.914 manns frá 1. des­em­ber síð­ast­liðnum eða um 15,6 pró­sent. Þetta kemur fram í frétt Þjóð­skrár Íslands í dag. Til þess að setja þessa tölu í sam­hengi þá fjölg­aði fólki búsettu hér á landi um 7.892 og voru erlendir rík­is­borg­arar því tæp­lega 67 pró­sent af þeirri fjölgun.

[links]Jafn­framt segir í frétt­inni að flestir erlendu rík­is­borgar­anna séu frá Póllandi eða 19.025 tals­ins og 4.038 ein­stak­lingar séu með lit­háískt rík­is­fang. Pólskum rík­is­borg­urum fjölg­aði um rúm­lega tvö þús­und frá 1. des­em­ber síð­ast­liðnum og lit­háískum rík­is­borg­urum um 669. Rúm­enskum rík­is­borg­urum fjölg­aði um 453 á tíma­bil­inu eða úr 1.010 manns í 1.463 sem gerir 44,8 pró­sent fjölgun á 11 mán­aða tíma­bili.

Í frétt Kjarnans frá því í byrjun sept­em­ber síð­ast­lið­ins kemur fram að inn­flytj­endur sem starfa á Íslandi hafi verið 38.765 tals­ins um mitt þetta ár, eða 18,6 pró­sent starf­andi fólks. Það þýðir að fleiri inn­flytj­endur eru starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði en fjöldi þeirra sem búa í Kópa­vogi, næst fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lags lands­ins, þar sem 35.966 manns bjuggu í upp­hafi þessa árs.

Fjöldi þeirra er nú rúm­lega fjórum sinnum það sem hann var í upp­hafi árs 2005 og tvö­faldur það sem hann var í byrjun árs 2015, fyrir þremur og hálfu ári.

Frá byrjun árs 2017 hefur inn­flytj­endum á íslenskum vinnu­mark­aði fjölgað um 11.544, rúm­lega íbúa­fjölda Mos­fells­bæj­ar, og á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018 fjölg­aði þeim um 5.310, rúm­lega 700 fleiri en búa á Sel­tjarn­ar­nesi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár