Innflytjendur ríflega 40 prósent þeirra sem starfa við rekstur veitinga- og gistihúsa

Stars­fólki í ferða­þjón­usu hefur fjölgað um 98,5 pró­sent á Íslandi á síð­ustu 10 árum. Stór hluti þeirra eru inn­flytj­endur.

Líkt og lands­menn vita hefur verið mik­ill vöxtur í ferða­þjón­ustu hér á landi, ferða­mönnum hefur fjölgað úr um hálfri milljón í 2,2 millj­ónir árið 2017 og má búast við enn meiri fjölgun í ár. Þjónusta þarf þessar tvær millj­ónir ferða­manna en 10.888 þús­und inn­flytj­enda starfa við ferða­þjón­ustu hér á landi. Af þeim starfa 7694 inn­flytj­endur við rekstur veit­inga­staða og gisti­húsa. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Hag­stof­unnar.

[links]Um mitt ár 2018 voru alls 38.657 starf­andi inn­flytj­endur á Íslandi eða rúm 19 pró­sent af heildar vinnu­afli Íslands. Sá fjöldi er rúm­­lega fjórum sinnum það sem hann var í upp­­hafi árs 2005 og tvö­­faldur það sem hann var í byrjun árs 2015, fyrir þremur og hálfu ári. Frá byrjun árs 2017 hefur inn­­flytj­endum á íslenskum vinn­u­­mark­aði fjölgað um 11.544 og á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018 fjölg­aði þeim um 5.310.

Á Íslandi starfa tæp­lega 200 þús­und manns á aldr­inum 16 til 74 ára, það er 11,8 pró­sent hækkun á 10 árum. Fjölgun starfs­fólks á síð­ustu tíu árum var mest í ferða­þjón­ustu en sú fjölgun er 98,5 pró­sent. Stór hluti af þeirri fjölgun er erlent vinnu­afl en þeir eru tæp­lega helm­ingur þeirra sem starfa við rekstur veit­inga­húsa og gisti­húsa hér á landi eða 41,9 pró­sent.

Nýja góðærið

Gríð­ar­leg upp­bygg­ingin hefur átt sér stað hér á landi síð­ustu 10 ár en hún hefur útheimt miklar fram­kvæmdir við bygg­ingu til að mynda hót­ela og þar af leið­andi líka mikið vinnu­afl. Þetta vinnu­afl var ekki til staðar á Íslandi og því þurfti að sækja það til ann­arra landa. Það – ásamt mik­illi aukn­ingu í ferða­þjón­ustu – hefur leitt til hraðrar fjölg­unar erlends vinnu­afls hér á landi eins og greint var hér að ofan.

Í síð­ustu viku greindi Kjarninn frá því að um 90 pró­sent allra nýrra skatt­greið­anda á Íslandi í fyrra voru erlendir rík­is­borg­arar. Þeim hefur fjölgað rúm­lega 60 sinnum hraðar og átta sinnum meira en íslenskum skatt­greið­endum á skrá á milli áranna 2016 og 2017. Þeir eru nú 15,1 pró­sent þeirra sem greiða hér til sam­neysl­unnar. Samhliða mik­illi fjölgun útlend­inga hafa greiðslur sveit­ar­fé­laga vegna félags­legrar fram­færslu dreg­ist saman um þriðj­ung á nokkrum árum. Atvinnu­leysi er nei­kvætt þegar leið­rétt er fyrir inn­fluttu vinnu­afli og kaup­máttur launa hefur vaxið um 25 pró­sent á örfáum árum.

Brotið á réttindum innflytjenda

Í nýjasta frétta­skýr­inga­þætti Kveiks, sem vakti mikla athygli í síð­ustu viku, var fjallað um hvernig atvinnu­rek­endur á Íslandi hafa í röðum brotið á erlendu starfs­fólki. Mörg dæmi eru um það hér á landi að ekki sé borgað í sam­ræmi við kjara­samn­inga og ef laun eru rétt greidd þá sé reynt að ná launum til baka með því að rukka starfs­menn um of háan hús­næð­is­kostnað, lík­ams­rækt­ar­kostnað og fyrir bif­reið­ar­notkun. Þar með er rétt­indum skipu­lega haldið frá erlendu verka­fólki. Í þætt­inum kom enn fremur fram að inn­flytj­endur viti oft ekki hvort verið sé að brjóta á sér eða viti ekki hvert þeir eigi að leita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár