Mynd: Bára Huld Beck

Tæplega 45 þúsund útlendingar borguðu skatt á Íslandi í fyrra

Nálægt 90 pró­sent allra nýrra skatt­greið­enda á Íslandi í fyrra voru erlendir rík­is­borg­arar. Þeir eru nú 15,1 pró­sent þeirra sem greiða hér til sam­neysl­unnar. Samhliða mik­illi fjölgun útlend­inga hafa greiðslur vegna félags­legrar fram­færslu hríð­lækkað.

Erlendum rík­is­borg­urum sem greiddu skatta á Íslandi fjölg­aði um 9.782 milli áranna 2016 og 2017, eða um 27,9 pró­sent. Á sama tíma fjölg­aði þeim íslensku rík­is­borg­urum sem greiða skatta­hér­lendis um 1.166 tals­ins. Alls greiddu 44.850 erlendir rík­is­borg­arar skatta á Íslandi í fyrra sem þýddi að þeir voru 15,1 pró­sent allra ein­stak­linga sem skráðir voru í skatt­grunn­skrá það árið. Ári áður voru þeir 12,2 pró­sent slíkra.

Þetta kemur fram í ítar­legri grein eftir Pál Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ing í nýjasta tölu­blaði Tíundar, frétta­blaði rík­is­skatt­stjóra þar sem hann greinir álagn­ingu ein­stak­linga vegna tekna árs­ins 2017.

Í grein­inni segir Páll að „Erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði þannig um tæpa 56 fyrir hverja 200 á sama tíma og íslenskum fjölg­aði um tæpan einn. Erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði því rúm­lega 60 sinnum hraðar og átta sinnum meira en íslenskum á skrá. Erlendir rík­is­borg­arar voru um 89,3 pró­sent fjölg­unar á skrá árið 2017.“

Fjölgað um 36.912 frá árinu 2010

Erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hefur fjölgað um 97 pró­sent frá lokum árs 2011 og fram á mitt þetta ár. Það þýðir að fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast á sex og hálfu ári. Þeir hafa aldrei verið fleiri og fjölgun þeirra hefur aldrei verið hrað­ari en á síð­ustu 18 mán­uð­um.

Í grein Páls kemur fram að frá árinu 2010 og fram að síð­ustu ára­mótum hafi fram­telj­endum til skatts hér­lendis fjölgað alls um 36.912. Íslenskum rík­is­borg­urum fjölg­aði á tíma­bil­inu um 11.434 eða um 4,7 pró­sent. Erlendum rík­is­borg­urum sem greiddu skatt á Íslandi fjölg­aði hins vegar um 25.478 á þessum árum, eða um 131,5 pró­sent. Það þýðir að erlendum rík­is­borg­urum á skatt­grunn­skrá hefur fjölgað 28 sinnum hraðar en Íslend­ingum á þessum tíma.

Flestir erlendu rík­is­borgar­anna sem búa og starfa á Íslandi eru Pól­verjar. Alls voru 18.633 slíkir skráðir sem skatt­greið­endur hér­lendis í fyrra, sem er 4.144 fleiri en árið áður. Litháar voru næst flestir erlendra skatt­greið­enda, eða 4.139 tals­ins.

Þá er sam­setn­ing erlendu rík­is­borgar­anna þannig að mun hærra hlut­fall þeirra er yngra og á besta vinnu­aldri en þegar íslensku rík­is­borg­ar­arnir eru skoð­aðir. Þannig eru til að mynda 29,1 pró­sent erlendra á skatt­grunn­skrá á aldr­inum 26-30 árs. Útlend­ingum í þessum ald­urs­hópi fjölg­aði um 35,3 pró­sent á milli ára á meðan að íslenskum rík­is­borg­urum í ald­urs­hópnum fjölg­aði um 2,6 pró­sent.

Íslend­ingum fjölgar hins vegar mun hraðar í eldri ald­urs­hópum. Alls eru 19,1 pró­sent allra íslenskra rík­is­borg­ara eldri en 66 ára en ein­ungis 2,8 pró­sent erlendra rík­is­borg­ara.

Félagsleg framfærsla dregist mikið saman

Greiðslur sveit­ar­fé­laga vegna húsa­leigu­bóta, félags­legrar aðstoðar og styrkja juk­ust ár frá ári ári eftir hrun. Á milli áranna 2007 og 2010 hækk­uðu þessar greiðslur um 87,2 pró­sent og héldu áfram að hækka allt fram til árs­ins 2015. Það ár greiddu sveit­ar­fé­lögin 3,4 millj­arða króna í húsa­­leig­u­bæt­­ur, félags­­­lega aðstoð og styrki. Það var 365 millj­­ónum krónum minna en árið áður og greiðsl­­urnar lækk­­uðu því um 9,6 pró­­sent á milli ára.

Samhliða því að met­fjölgun hefur verið í fjölda útlend­inga sem flytja til Íslands, þróun sem hefur náð hámarki síð­ast­liðin tvö ár, hafa greiðslur sveita­fé­laga vegna félags­legrar fram­færslu haldið áfram að drag­ast saman.

Í fyrra greiddu sveit­ar­fé­lög um 2,4 millj­arða króna í húsa­leigu­bætur, félags­lega aðstoð og styrki sem var 456 millj­ónum krónum minna en árið áður. Alls fengu 3.471 slíka aðstoð á því ári.

Það er því ljóst að engin fylgni er milli þess að félags­leg fram­færsla kosti sam­fé­lagið meira sam­hliða fjölgun erlendra rík­is­borg­ara. Þvert á móti.

Atvinnuleysið aðeins kostnaðarsamara

Atvinnu­leysi á Íslandi hefur verið ótrú­lega lítið árum saman. Í ágúst mæld­ist það 2,3 pró­sent. Ef ekki væri fyrir þann mikla fjölda erlendra rík­is­borg­ara sem hefur flutt til lands­ins á und­an­förnum árum þá gætum við ekki með nokkrum hætti mannað öll þau nýju störf sem orðið hafa til í efna­hags­upp­gangi síð­ustu ára, sem skilað hefur hag­vexti árlega frá árinu 2011 og gríð­ar­legri kaup­mátt­ar­aukn­ingu til lands­manna.

Fyrir banka­hrun var atvinnu­leysi hér líka afar lít­ið. Árið 2007 fengu sam­tals 4.560 manns greiddar 4,9 millj­arða króna frá Vinnu­mála­stofnun í atvinnu­leys­is­bæt­ur. Á árinu 2009 fór atvinnu­leysið mest upp í níu pró­sent á meðal Íslend­inga á aldr­inum 16-74 ára. Það ár fengu alls 27.639 manns greiddar atvinnu­leys­is­bætur upp á sam­tals 23,2 millj­arða króna.

Frá þeim tíma lækk­uðu greiðslur vegna atvinnu­leys­is­bóta á hverju ári út árið 2016, og fjöldi þeirra sem þær þáðu dróst saman.

Þau tíð­indi urðu í fyrra að þeir sem fengu greiddar atvinnu­leys­is­bætur fjölg­aði á milli ára í fyrsta sinn frá árinu 2009, eða um 107 tals­ins. Alls voru greiddar 8,7 millj­arðar króna í slíkar sem var 432 millj­ónir króna meira en árið áður. Vert er þó að taka fram að lands­mönnum fjölg­aði um rúm­lega 10 þús­und fyrra. Sú aukn­ing var að lang­mestu leyti til­komin vegna þess að erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði um 7.570.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár