Eru njósnir leyfilegar? – Um mikilvægi upplýsinga

Njósnir eru ekki bara milli­ríkja­mál því upp­lýs­ingar varða almenn­ing. Því er mik­il­vægt að styrkja reglu­verk um upp­lýs­inga­öflun og miðlun þeirra – bæði innan ríkja og alþjóð­lega.

Þrátt fyrir að njósnir séu aldagamalt fyrirbæri eru alþjóðalög um þær harla óljós og takmörkuð.
Þrátt fyrir að njósnir séu alda­gam­alt fyr­ir­bæri eru alþjóða­lög um þær harla óljós og tak­mörkuð. Mynd: Pexels

Nú þegar kapp­hlaupið um bólu­efni gegn COVID-19 er í algleym­ingi hafa borist fréttir af inn­brotum, m.a. Norður-Kóreu­manna og Rússa, inn í tölvu­kerfi fyr­ir­tækja og stofn­ana sem hafa haft með bólu­efnin að gera. Nú síð­ast upp­lýstu Suður-kóresk yfir­völd að Norður-Kóreu­menn hafi þannig reynt að kom­ast yfir upp­skrift banda­ríska lyfj­aris­ans Pfizer en ekki er ljóst hvort það hafi tek­ist.

Samkvæmt alþjóða­lögum eru njósnir ríkja í raun ekki bann­aðar en málið er aðeins flókn­ara en svo. Umræða um njósnir í nútím­anum snýst ekki ein­göngu um ríki, stór­fyr­ir­tæki eða ein­stak­linga sem reyna að kom­ast yfir leyni­legar upp­lýs­ingar um hern­að­ar­á­ætl­anir eða hátækni­vopn ann­arra ríkja eða fyr­ir­tækja. Hún snýst einnig um upp­lýs­inga­öflun almennt, um eft­ir­lit með almennum borg­urum og upp­lýs­ingar sem varða þá eða sam­fé­lagið allt.

Njósnir og leyniaðgerðir – frá Guði, Móse og flugumönnum til tölvuinnbrota

Njósnir hafa þekkst frá örófi alda því mik­il­vægi réttra upp­lýs­inga hefur löngum verið ljóst og ef leitað er í gamlar bók­menntir er Guð þar ákveð­inn frum­kvöð­ull. Um 1.300 fyrir Krist, eftir að Ísra­els­menn höfðu flúið frá Egypta­landi og farið yfir Rauða­hafið, sagði Guð Móse að senda njó­sn­ara til að kanna aðstæður í fyr­ir­heitna land­inu. Valdi Móse til far­ar­innar, að fyr­ir­mælum Guðs, einn for­ystu­mann úr hverri af tólf ætt­kvíslum Ísraels.

Ef við færum okkur nær í tíma þá hefur nútíma­tækni breytt aðstæðum tals­vert. Áður fyrr var flugu­mönnum komið fyrir í her­búðum eða stjórn­kerfi and­stæð­ing­anna, símar hleraðir, brot­ist inn og skjölum stolið eða teknar ljós­myndir. Eftir því sem inter­netið verður umfangs­meiri þáttur í allri hugs­an­legri starf­semi aukast jafn­framt mögu­leikar til upp­lýs­inga­öfl­unar, hvort sem í hlut eiga stjórn­völd, fyr­ir­tæki eða ein­stak­lingar. Hafi alþjóða­lög um njósnir verið tak­mörkuð, í besta falli óskýr, er ástandið mun verra nú þegar óra­víddir inter­nets­ins hafa bæst við.

Gerendur eru fleiri og fjöl­breytt­ari, allt frá einum tölvu­hakk­ara í kjall­ara­kompu í fjar­lægu landi til tæknirisanna Google og Facebook sem eru í raun orðnir yfir­þjóð­legir ger­endur. Má þar nefna nýlega atburði í Ástralíu þar sem Facebook lok­aði á deil­ingu upp­lýs­inga, sem m.a. vörð­uðu opin­berar stofn­anir sem hafa treyst á miðl­ana við upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings.

Það eru náin tengsl milli upp­lýs­inga, þekk­ingar og valds því ef allt er vitað um ein­stak­linga, hópa eða jafn­vel heilu ríkin er auð­veld­ara að hafa á þeim stjórn eða hafa áhrif á þau. Á sama tíma eru í opnu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi gerðar ríkar kröfur til stjórn­valda um upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings, eins og t.d. hefur sýnt sig í COVID-19-far­aldr­inum og varð­andi stöð­una á bólu­efnum.

Hags­munir eru því af mis­jöfnum toga, allt frá upp­lýs­ingum sem geta komið sér vel fyrir almenn­ing, til beinna ógna við öryggi rík­is­ins. Upp­lýs­ing­arnar geta í ein­hverjum til­fellum ráðið úrslitum um fram­tíð ríkja og þjóða – ýmist tryggt eða ógnað þjóðar­ör­yggi. Og þurfa þá ekki öll ríki að stunda ein­hvers­konar sjálf­stæða upp­lýs­inga­öflun – reka leyni­þjón­ustu? Ekki endi­lega til pukrast með illa fengnar upp­lýs­ingar eða stunda myrkra­verk, heldur til að geta tryggt aðgang að óvil­höllum og réttum upp­lýs­ingum?

Slíkt hlýtur að vekja upp fleiri spurn­ingar. Hvar liggja mörkin á milli upp­lýs­inga­öfl­unar og njósna, hvernig eru njósnir skil­greindar? Eru þær leyfi­legar í ein­hverjum til­fellum, hvenær er farið yfir strikið og hver eru við­ur­lögin?

Hér er rétt að setja ákveð­inn fyr­ir­vara því íslensk tunga er hér sér­stök áskorun. Hún geymir enn ekk­ert gott hug­tak yfir það sem í ensku er kallað „intelligence“. Orð eins og njósnir og leyni­þjón­usta hafa yfir sér blæ sem hvorki er hjálp­legur né raun­veru­lega lýsandi fyrir þau sem verk­efni sem verið er að vísa til.

Hættan á leyndarhyggju – vangeta íslenskra stjórnvalda

Fyrr í vetur bár­ust fregnir af því að Leyni­þjón­usta danska hers­ins hefði gefið banda­rísku þjóðar­ör­ygg­is­stofn­un­inni (NSA) aðgang að dönsku fjar­skipta­neti til að njósna um stofn­anir og fyr­ir­tæki í Danmörku og nágranna­löndum. Andrés Ingi Jónsson, þá þing­maður utan flokka, lagði fram fyr­ir­spurn á Alþingi til þriggja ráð­herra um málið, í ljósi þess að báðir gagna­sæ­strengirnir sem tengja Ísland við Evrópu liggja um danskt yfir­ráða­svæði.

Í sam­eig­in­legu svari við­kom­andi ráðu­neyta var lýst áhyggjum vegna máls­ins og að margt benti til þess að um ólög­legt athæfi hafi verið að ræða. Öryggis- og varn­ar­mál þörfn­uð­ust nú auk­innar athygli vegna mik­illa tækni­fram­fara í fjar­skiptum, sem hefðu breytt mjög örygg­is­um­hverf­inu. Hins vegar yrði ekki brugð­ist frekar við á meðan beðið væri eftir nið­ur­stöðu rann­sóknar á vegum danskra stjórn­valda.

Þetta er í hnot­skurn það sem við er að eiga því mál eru gjarnan dálítið óljós og ríki hafa ákveðið svig­rúm til að sleppa því að ræða svo við­kvæm mál. Að ein­hverju leyti end­ur­speglar þetta líka van­mátt Íslend­inga. Af hverju er setið hjá á meðan Danir gefa út sína útgáfu af sög­unni? Hvar er hin sjálf­stæða rann­sókn íslenskra stjórn­valda á svo við­kvæmu og alvar­legu máli?

Þegar höndlað er með við­kvæmar upp­lýs­ingar sem skil­greina má þannig að þær varði þjóðar­ör­yggi er þeim jafnan, eðli máls­ins sam­kvæmt, haldið leyndum. En mjög er mis­jafnt eftir ríkjum hversu opin umræða er um upp­lýs­inga- og njósn­a­stofn­anir. Sem dæmi má nefna að í Banda­ríkj­unum hafa allir verið með­vit­aðir um til­vist stofn­ana eins og CIA og NSA, þrátt fyrir að vissu­lega hvíli leynd yfir aðgerðum þeirra og aðferðum. Í Bret­landi var því lengst af öfugt farið en allt fram til árs­ins 1992 var til­vist SIS, sem er for­veri MI6-leyni­þjón­ust­unnar, ekki opin­ber­lega við­ur­kennd.

Leyndin er skilj­an­lega mikil ennþá en við slíkar aðstæður mynd­ast rými fyrir leynd­ar­hyggiu sem skapar ákveðna tog­streitu. Um leið og stjórn­völd reyna að tryggja þjóðar­ör­yggi með njósnum og leyni­að­gerðum getur það hæg­lega snú­ist upp í and­hverfu sína. T.d. geta stjórn­völd borið fyrir sig ógn við þjóðar­ör­yggi þegar forð­ast á að ræða mál sem þola ekki dags­ljósið. Þannig er m.a. hægt að rétt­læta aukið eft­ir­lit með borg­ur­unum, í versta falli ólög­mætar hand­tökur og kúgun á for­sendum ógnar við þjóðar­ör­yggi.

Hvað segja alþjóðalög?

Þrátt fyrir að njósnir séu alda­gam­alt fyr­ir­bæri eru alþjóða­lög um þær harla óljós og tak­mörkuð. Athygl­is­vert er að and­stætt því sem halda mætti vísar hug­myndin um njósnir í alþjóða­lögum ein­göngu til upp­lýs­inga­öfl­unar en ekki til leyni­legra aðgerða.

Það er aðeins á stríðs­tímum sem staða njó­sn­ara er í raun háð sér­stökum alþjóð­legum reglum en lög­fræði­leg álita­mál um njósnir hafa almennt lítið verið rædd. Á tímum kalda stríðs­ins fóru lög­spek­ingar að hafa raun­veru­legan áhuga á njósn­a­starf­semi milli ríkja. Beindist þá grein­ingin helst að almennum alþjóða­lögum og meg­in­regl­unni um full­veldi rík­is­ins.

Jafn­framt hefur það gerst í sam­ræmi við þróun mann­rétt­inda, sem eiga sér ekki bara stoð innan hins full­valda ríkis, að farið er að skoða hvernig njósnir, þar á meðal ýmis­konar eft­ir­lit, koma við almenn­ing. Nýlegar rann­sóknir hafa því byrjað að bein­ast að því hvort eft­ir­lits­að­ferðir stjórn­valda eða fyr­ir­tækja geti varðað við mann­rétt­inda­lög. Eftir árás­irnar 11. sept­em­ber 2001 fengu þessi mál byr undir báða vængi vegna auk­ins eft­ir­lits stjórn­valda í þeim til­gangi að berj­ast gegn hryðju­verkum.

Þróun nýrrar tækni og sam­skipta­miðla hefur sömu­leiðis aukið mögu­leika á umfangs­miklu eft­ir­liti með öllum ferðum og gjörðum almenn­ings. Upp­ljóstr­anir Edwards Snowdens, fyrr­ver­andi starfs­manns Þjóðar­ör­ygg­is­stofn­unar Banda­ríkj­anna (NSA), vöktu jafn­framt upp miklar umræður um leyni­þjón­ustu­á­ætl­anir Banda­ríkj­anna og laga­lega og póli­tíska stöðu njósn­a­starf­semi ríkja almennt.

Njósnir hafa sem sagt tekið á sig fjöl­breytt­ari og fág­aðri mynd með mis­mun­andi starfs­háttum og ger­endum. Vegna þessa fjöl­breyti­leika og skorts á afger­andi laga­setn­ingu krefj­ast vanda­mál sem njósnir hafa í för með sér að aðrar reglur sé skoð­aðar. Þ.e. lög og reglur sem varða full­veldi, íhlutun og vald­beit­ingu, haf­svæði, við­skipti og efna­hags­mál o.fl.

Meg­in­reglan er sú að njósnir eru í sjálfu sér ekki bann­aðar, þ.e.a.s. njósnir fyrir hönd rík­is­ins. Njósnir sem bein­ast gegn rík­inu eru hins vegar önnur saga og að upp­lýsa um njósnir rík­is­ins getur varðað við lög og haft alvar­legar afleið­ingar, eins og fyrr­nefndur Snowden getur vitnað um, að ekki sé talað um Julian Assange og Chelsea Manning.

Þetta beinir sjónum að þeirri stað­reynd að þrátt fyrir býsna þróað alþjóða­sam­fé­lag, með til­teknum lögum og reglum, er kerfið form­lega stjórn­laust. Það er því sjaldn­ast yfir­þjóð­legu valdi eða lög­reglu til að dreifa og mjög tor­velt að draga ríki til ábyrgðar, þaðan af síður dæma og fulln­usta refs­ingar. Um ein­stak­ling­ana gilda önnur lög­mál, þ.e. þá sem gripnir eru við slíka iðju, eða ljóstra upp um hana.

Nauðsyn laga og reglna

Bretar hafa reynt að koma ein­hverri reglu á hlut­ina hvað varðar athafnir stjórn­valda. Laga­frum­varp hefur verið lagt fyrir breska þingið sem kveður á um að leyni­þjón­ustu­stofn­anir megi fara á svig við eða hrein­lega brjóta lög. Lögunum er ætlað að auð­velda starfs­mönnum bresku leyni­þjón­ust­unnar að smeygja sér í raðir hryðju­verka- og glæpa­sam­taka. Segja máls­hefj­endur þessar aðferðir leyni­þjón­ust­unnar hafi m.a. komið í veg fyrir hryðju­verka­til­ræði við Theresu May þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra árið 2017.

Þegar njósnir bein­ast út á við, milli ríkja eða stór­fyr­ir­tækja, er það vissu­lega vanda­mál, í besta falli laga­legt álita­mál um brot á full­veld­is­rétti sem ekk­ert reglu­verk er til um. Fullyrða má að tvö­falt sið­gæði hafi ríkt um njósnir og leyni­að­gerðir. Stór­veldin sem stóðu í lepp­stríðum og önnur ríki sem áttu nýlendur víða, hafa staðið í harðri hags­muna­gæslu um land­svæði, auð­lindir og völd – og hafa haft ákveðið leyfi til verja þessa hags­muni með þeim með­ulum sem til­tæk eru.

Við árekstra hafa ríkin horft í gegnum fingur sér og látið nægja að mót­mæla form­lega og senda stjórn­ar­er­ind­reka úr landi, í versta falli koma þeim fyrir katt­ar­nef. Heims­byggðin er þó að vakna upp við vondan draum eftir því sem net­tæknin verður full­komn­ari og fleiri ríki eru farin að ástunda njósnir og hug­verka­þjófnað um allan heim. Þekktar eru ásak­anir þess efnis á hendur Kín­verjum og hafa staðið deilur, þar sem m.a. Evr­ópu­sam­bandið og Banda­ríkin hafa reynt að stöðva slíka hegðun Kínverja. Alþjóð­legar reglur og samn­ingar um vernd hug­verka­rétt­inda hafa haft lít­inn fæl­ing­ar­mátt.

Fleiri og fleiri ríki, sem áður þóttu ekki hafa mikla burði á alþjóða­svið­inu, hafa nú jafn­framt aukna mögu­leika til fjöl­þátta­hern­aðar. Það geta þau m.a. með því að brjót­ast inn í tölvu­kerfi og nýta sér sam­fé­lags­miðla til að hafa áhrif á stjórn­mál og grafa undan stjórn­völdum í öðrum ríkjum með fölsuðum upp­lýs­ingum til að skapa upp­lýs­inga­óreiðu.

Líf og starf okkar allra hefur færst inn á inter­netið sem kallar á reglu­verk um eft­ir­lit og kort­lagn­ingu hegð­unar almennra borg­ara, bæði af hálfu yfir­valda og fyr­ir­tækja. Gleymum því ekki að miðl­arnir eru í höndum tæknirisa eins og Google og Facebook, sem eru hagn­að­ar­drifin stór­fyr­ir­tæki og lúta ekki endi­lega lögum þeirra ríkja sem þau starfa í. Því er mik­il­vægt að fram fari öflug umræða um starf­semi sam­fé­lags­miðla, öflun og miðlun upp­lýs­inga um almenn­ing og sam­ræm­ing alþjóð­legra laga og reglna um starfs­um­hverfi og lög­sögu þeirra.

Fyrir íslensk stjórn­völd og almenn­ing sem lengi hafa skautað fram­hjá, eða umgeng­ist þessi mál af ákveð­inni léttúð, sem end­ur­speglar bæði reynslu- og skiln­ings­leysi, er nauð­syn­legt að taka á þessum málum af meiri alvöru. Ýmis teikn eru á lofti um að það sé einmitt að ger­ast, ýmist að frum­kvæði eða á vett­vangi Þjóðar­ör­ygg­is­ráðs, Utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, Fjöl­miðla­nefndar og fleiri aðila. Upplýst umræða og með­vit­und meðal almenn­ings og full­trúa okkar á þingi eru einnig mik­il­væg, jafn­vel þó flækju­stig, lítil reynsla af slíkum málum í sögu­legu sam­hengi og hug­taka­skortur séu óneit­an­lega ákveð­inn fjötur um fót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár