Ólafur slasaður eftir að þyrlan hans brotlenti

Ólafur Ólafsson, athafna­maður og vist­maður á Vernd, er tal­inn slas­aður á hrygg og hálsi eftir að þyrla hans brot­lenti á Heng­il­svæð­inu í gær­kvöld. Fang­els­is­mála­stjóri segir að vist­menn eigi að vera komnir inn klukkan 23 um helgar.

Ólafur Ólafsson er talinn slasaður á hrygg og hálsi eftir að þyrla hans brotlenti á Hengilsvæðinu í gærkvöld.
Ólafur Ólafsson er tal­inn slas­aður á hrygg og hálsi eftir að þyrla hans brot­lenti á Heng­il­svæð­inu í gær­kvöld. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Ólafur Ólafsson, einn aðal­eig­andi Samskipa og einn stærsti hlut­hafi Kaup­þings, hefur verið lagður inn á Land­spít­al­ann eftir að þyrla í hans eigu brot­lenti á Heng­il­svæð­inu í gær­kvöld. Talið er að hann sé með meiðsl á hrygg og hálsi, sam­kvæmt mbl.is.

Til­kynn­ing um að þyrla hefði hrapað við Nesja­velli barst um klukkan 19:45 í gær og voru þá björg­un­ar­sveitir, sjúkra­flutn­inga­menn og lög­regla kall­aðar á vett­vang. Farþegum tókst að hringja í Neyð­ar­lín­una úr þyrl­unni, skömmu eftir að neyð­ar­boð var sent út.

Um borð í þyrl­unni voru auk Ólafs og flug­manns­ins, þrír erlendir við­skipta­fé­lagar Ólafs og var hann með þá í útsýn­is­flugi.

Ólafur var dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir aðild sína að Al Thani mál­inu og er nýkom­inn af Kvía­bryggju yfir á Vernd, eins og aðrir hlut­að­eig­andi.

Páll Winkel fang­els­is­mála­stjóri segir í svari sínu til Kjarnans að hann geti ekki tjáð sig um ein­stök mál, en reglar á Vernd um helgar sé sú að menn eigi að vera komnir inn fyrir klukkan 23:00. „Vistmenn eiga því frjálsan tíma yfir dag­inn um helgar. Flestir nýta þann tíma til að vera með fjöl­skyldu og vinum eða sinna frí­stundum,“ segir Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár