Sjálfstæðismenn segja stöðuna á rekstri Reykjavíkurborgar vera „skelfilega“

Aðal­sjóður Reykja­vík­ur­borgar mun skila tapi upp á 18,2 millj­arða króna á árinu 2015 sam­kvæmt útkomu­spá og rekstur A-hluta hennar, sem sam­anstendur af aðal­sjóði, eigna­sjóði og bíla­stæða­stjóði, verður rek­inn með 13,4 millj­arða króna tapi. Fjár­hags­á­ætlun fyrir árið 2015 gerði ráð fyrir að halli á aðal­sjóði yrði um fimm millj­arðar króna. Því skeikar rúmum 15 millj­örðum krónum á áætlun sem sam­þykkt var í fyrra og útkomu­spánni sem lögð var fram í borg­ar­stjórn í dag. Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir stöð­una vera skelfi­lega.

Í fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir næsta ár kemur hins vegar fram að reka eigi A-hluta með 567 millj­óna króna afgangi á árinu 2016. Samstæða Reykja­vík­ur­borgar, A- og B-hluti, á að vera rekin með 8,1 millj­arða króna afgangi á næsta ári.

Segja slæman rekstur koma niður á þjónustu

Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks, sem er í minni­hluta í borg­ar­stjórn, sendi frá sér til­kynn­ingu vegna fjár­hags­á­ætl­un­ar­innar í dag. Þar segir að í áætlun árs­ins 2016 sé gert ráð fyrir hag­ræð­ingu á mála­flokkum grunn­þjón­ust­unnar upp á 1,8 millj­arða króna. „Stærstu þættir grunn­þjón­ustu borg­ar­innar eru skóla- og vel­ferð­ar­kerfið. Það er því miður að þessi slæmi rekstur mun koma niður á þjón­ustu gagn­vart borg­ar­búum“.

Halldór Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, segir í til­kynn­ingu að staðan á rekstri borg­ar­innar sé „skelfi­leg“. „Ef borgin væri fyr­ir­tæki í þeirri stöðu sem útgöngu­spá fyrir árið 2015 og fjár­hags­á­ætlun árs­ins 2016 lýsa þá væri hlut­hafa­fundur boð­aður í skyndi og skipt um stjórn­endur“, sagði Halldór í umræðum um áætl­un­ina í borg­ar­stjórn í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár