A-hluti Reykjavíkurborgar verður rekinn með 13,4 milljarða króna tapi í ár

Fjár­hags­á­ætlun sem lögð var fram í borg­ar­stjórn í dag sýnir mjög slæma afkomu árið 2015. Borgin ætlar að skila afgangi á næsta ári.

A-hluti Reykja­vík­ur­borgar verður rekin með 13,4 millj­arða króna tapi á árinu 2015 sam­kvæmt útkomu­spá sem kynnt var í borg­ar­stjórn í dag. Til A-hluta telst starf­semi sem að hluta eða öllu leyti er fjár­mögnuð með skatt­tekjum. Stærsta ástæða þess að hall­inn er jafn hár og raun ber vitni er sú að breyt­ingar á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum á árinu 2015 voru 14 millj­arðar króna. Þær munu ekki vera nærri jafn háar á næstu árum og eru áætl­aðar fjórir millj­arðar króna á árinu 2016.

Samstæða borg­ar­innar, A- og B-hluti hennar, verður rekin með 3,5 millj­arða króna tapi. Til B-hluta telj­ast fjár­hags­lega sjálf­stæð fyr­ir­tæki sem að hálfu eða meiri­hluta eru í eigu borg­ar­innar, en rekstur þeirra er að stofni til fjár­magn­aður með þjón­ustu­tekjum. Fyr­ir­tækin eru: Faxa­flóa­hafnir sf., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., Orku­veita Reykja­víkur, Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

Þetta kemur fram í frum­varpi að fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar sem lagt var fram í borg­ar­stjórn í dag.

Áætla afgang á næsta ári

Þar segir einnig að reka eigi A-hluta rekstur Reykja­vík­ur­borgar með 567 millj­óna króna afgangi á árinu 2016, sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun sem lögð var fram í borg­ar­stjórn í dag. Samstæða Reykja­vík­ur­borgar, A- og B-hluti, á að vera rekin með 8,1 millj­arða króna afgangi á næsta ári.

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg vegna þessa segir að mark­mið áætl­un­ar­innar sé að gera grunn­rekstur borg­ar­innar sjálf­bæran. Áætlunin taki mið af því að árinu 2015 tók afkoman að versna tals­vert í kjöl­far mik­illa launa­hækk­ana og breyt­inga á gjald­færslu líf­eyr­is­skuld­bind­inga sem verða gríð­ar­háar á þessu ári. „Ein ástæðan fyrir vax­andi rekstr­ar­halla borg­ar­innar og ann­arra sveit­ar­fé­laga má rekja til fjár­hags­sam­skipta þeirra við ríkið. Sveit­ar­fé­lögin telja og hafa ályktað þar að lút­andi að veru­lega vanti upp á fjár­muni frá rík­inu til að tryggja þjón­ustu við fatlað fólk og þjón­ustu við eldri borg­ara á hjúkr­un­ar­heim­ilum. Þá hefur ríkið rukkað sveit­ar­fé­lögin um trygg­ing­ar­gjald umfram það sem atvinnustig í land­inu kallar á. Hallinn á mála­flokki fatl­aðs fólks nemur um 1.100 millj­ónum á þessu ári, hall­inn á hjúkr­un­ar­heim­il­unum nemur 288 millj­ónum og trygg­inga­gjaldið umfram það sem eðli­legt getur talist tæpum 800 millj­ónum. Alls gerir þetta um 2,1 millj­arð króna,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir að það megi segja að borgin sé að ná tökum á ástand­inu. „Hækkandi launa­liðir, líf­eyr­is­skuld­bind­ingar og fjár­hags­leg sam­skipti við ríkið hafa kallað á sterk við­brögð sveit­ar­fé­lag­anna allra á und­an­förnum miss­erum. Um leið erum við setja fram áætlun um hvernig bregð­ast skuli við hækk­andi útgjöldum og minni tekjum en áætlað var. Þó munu skattar hald­ast óbreyttir og þegar allt er talið verður áfram hag­stæð­ast fyrir fjöl­skyldur að búa og nýta þjón­ustu í Reykja­vík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár