Meniga hlaut verðlaun á World Summit Award fyrir bestu tæknilausn

Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, tekur á móti verðlaununum í Singapúr.
Georg Lúð­víks­son, for­stjóri Meniga, tekur á móti verð­laun­unum í Singapúr. Mynd: Meniga

Íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Meniga hlaut hin virtu World Summit Award fyrir bestu tækni­lausn­ina í flokki við­skipta og versl­una á ráð­stefnu sam­tak­anna í Singapúr í byrjun júlí.

World Summit Award er alþjóð­leg ráð­stefna sem er haldin á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Markmið þeirra er að verð­launa fyr­ir­tæki sem þykja skara fram úr í þróun á tækni­lausnum, sem hafa jákvæð sam­fé­lags­leg áhrif og hjálpa fólki um allan heim. Yfir 400 til­efn­ingar frá 86 löndum bár­ust fyrir verð­launin í ár.

Georg Lúð­víks­son, for­stjóri og einn stofn­enda Meniga, tók við verð­laun­unum í Singapúr þann 1. júlí síð­ast­lið­inn.

Tilkynnt var um það í lok síð­asta árs að fyr­ir­tækið myndi hljóta verð­launin.

Meniga þróar og selur fjár­mála- og mark­aðs­lausnir og er í við­skiptum við yfir 25 fjár­mála­stofn­anir í 16 lönd­um. Fyr­ir­tækið er með um 100 starfs­menn í Reykja­vík, Stokk­hólmi og London og hjálpar um 25 millj­ónum manna um allan heim nota lausnir Meniga til að skilja og skipu­leggja fjár­mál sín. Á Íslandi eru um 50 þús­und not­endur að lausnum Meniga, eða tæp­lega þriðj­ungur allra heim­ila. Notkun Men­inga er ókeypis fyrir not­end­ur.

Jóhann Pétur Malmquist, pró­fessor í tölv­un­ar­fræð­i við Háskóla Íslands er sér­fræð­ingur hjá World Summit Award fyrir Ísland og velur verk­efni frá Íslandi. Hann segir það mikla við­ur­kenn­ingu fyrir íslenska frum­kvöðla­starf­semi í hug­bún­að­ar­iðn­aði að Meniga hljóti verð­laun­in, enda var fyr­ir­tækið að keppa við lausnir frá 178 lönd­um. "Minn draumur er að fleiri íslensk fyr­ir­tæki nái svona langt og að við getum haldið áfram að skapa fleiri vel­launuð störf í hug­bún­að­ar­iðn­aði á Íslandi. Það gleður mig mikið þegar nem­endum mínum farn­ast vel. Það er sér­stak­lega verð­mætt þegar íslenskt hug­vit er notað til verð­mæta­sköp­unar og skilar erlendum tekjum sem er und­ir­staða bættra lífs­kjara á Íslandi.“
Kjarn­inn var til­nefndur World Summit Award verð­launa Sam­ein­uðu þjóð­anna í flokknum e-Media&news, eða í staf­rænna miðla og frétta, árið 2014. Þá voru alls 454 verk­efni til­nefnd í átta flokk­um. Kjarn­inn var eitt af tveimur íslenskum fyr­ir­tækjum sem hlaut til­nefn­ingu. Hitt var Locatify, sem var til­nefnt í flokknum e-Tourism&Cult­ure, eða staf­rænnar ferða­þjón­ustu og menn­ing­ar. Hvorki Kjarn­inn né Locatify hlaut hins vegar verð­laun­in.

Tölvu­leikur CCP, EVE Online, vann til verð­launa í sam­keppn­inni árið 2013 þegar hann varð í fyrsta sæti í flokki afþrey­ingar og leikja. EVE Online og Meniga eru einu íslensku vör­urnar sem hafa unnið til verð­laun­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár