Eyþór segist hafa „tilfinningu“ fyrir 35-36 prósenta fylgi Sjálfstæðisflokks í borginni í vor

Leiðtogi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík segir ákvörðun hans um að hverfa á braut úr borg­ar­mál­unum ekki byggj­ast á ein­hverjum skoð­ana­könn­unum sem hafi verið honum eða flokknum í óhag. Þvert á móti segir hann Sjálf­stæð­is­flokk­inn standa sterkt.

Eyþór Arnalds ætlar ekki að gefa kost á sér til borgarstjórnar í vor.
Eyþór Arnalds ætlar ekki að gefa kost á sér til borg­ar­stjórnar í vor. Mynd: Bára Huld Beck

Eyþór Arnalds odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­víkur segir að sú ákvörðun sem hann kunn­gjörði laust fyrir mið­nætti í gær, að hann ætl­aði að draga fram­boð sitt í borg­inni til baka, hafi verið í gerjun um nokkurn tíma.

Aðspurður segir hann í sam­tali við Kjarnann að þessi ákvörðun um að sækj­ast ekki eftir end­ur­kjöri byggi ekki á því að hann eða aðrir hafi verið að láta fram­kvæma ein­hverjar skoð­ana­kann­anir þar sem afstaða til hans sjálfs í sam­an­burði við aðra fram­bjóð­endur hafi verið mæld á meðal borg­ar­búa.

„Nei, ég hef ekki verið að gera kann­anir, en ég veit hins vegar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur sterkt. Ég bara finn það. Ég trúi svo­lítið á, og held að það sé í lagi að segja frá því, svona „gut-“inn­sæi,“ segir Eyþór og á þá við að hann hafi alltaf haft „til­finn­ingu fyrir fylgi“.

„Þegar ég var í Árborg spáði ég eig­in­lega upp á pró­sent hvað við fengjum, 40 og 50 pró­sent og sagði frá því fyrir kosn­ingar og fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar spáði ég að við fengjum rúm­lega 30 pró­sent, það stóðst og við fengum 31. Ég held að við gætum fengið 35 til 36 pró­sent í vor ef rétt er á málum haldið, það er mín til­finn­ing. Ég held, eða ég held ekk­ert, ég veit það að við erum að skila góðu búi. Við vorum stærsti flokk­ur­inn síð­ast og verðum það áfram,“ segir Eyþór.[links]

Ekki bardagafælinn

Eyþór segir að hann hafi aldrei kviðið því að fara í próf­kjörs­slag, fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar hafi hann jú att kappi við fjóra aðra fram­bjóð­endur.

„Þannig að ég er ekki bar­daga­fæl­inn. Þetta er fyrst og fremst spurn­ing um það að lífið er stutt, ég á fjögur börn og maður þarf að hugsa um það og líka hitt. Það er ekki hægt að skipta sér upp, þetta kallar á algjöran fókus, bæði próf­kjör, kosn­inga­bar­átta og svo auð­vitað næsta kjör­tíma­bil.

Maður fer ekki í þetta af hálfum huga, maður verður að fara alveg af heilum hug og rúm­lega,“ segir Eyþór við Kjarnann.

Maður komi í manns stað

Eyþór greindi sem áður segir frá ákvörðun sinni um að hætta við fram­boð á Facebook í gær­kvöldi og í athuga­semda­kerf­inu við færsl­una lýsa sumir stuðn­ings­menn hans því yfir að þeir harmi brott­hvarf hans og þakka honum fyrir störfin í borg­inni.

[adspot]

Sumir gera reyndar meira en það og lýsa því yfir að þeim hugn­ist ekki að Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi, sem er nú orðin ein í fram­boði um leið­toga­sæti flokks­ins, fari fyrir Sjálf­stæð­is­mönnum í borg­inni til kosn­inga í vor.

Nokkur áherslu­munur hefur verið innan borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins á kjör­tíma­bil­inu, kannski einkum og sér í lagi hvað varðar afstöðu til sam­göngu­mála. Einn karl í athuga­semda­kerf­inu við færslu Eyþórs upp­nefnir Hildi og kallar hana „Borg­ar­línu­dóttir“.

Spurður út í þetta segir Eyþór að það sé nú þannig að fólk hafi mis­mun­andi skoð­anir, en hann seg­ist ekki ótt­ast að brott­hvarf hans úr póli­tík­inni skaði Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík.

„Það kemur maður í manns stað,“ segir Eyþór og bætir því við að eng­inn sé ómissandi í póli­tík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár