
Seinni myndaspurning:Hver er þessi karl? Það leynist raunar vísbending á myndinni, þótt ekki sé hún áberandi.
Almennar spurningar:
- Hvaða á fellur um Parísarborg?
- Hver tók við af Agli Ólafssyni sem rödd Toyota í auglýsingum?
- Belzec, Majdanek, Neuengamme, Stutthof, Treblinka. Hvaða staðir eru þetta?
- Sturnus vulgaris heitir einn mjög algengur spörfugl á Íslandi. Hann er dökkleitur, fer um í hópum og margir hafa að ósekju illan bifur á honum. Hvað nefnist hann á íslensku?
- Fyrir hvaða stjórnmálaflokk situr Ásthildur Lóa Þórsdóttir á Alþingi Íslendinga?
- Novo Nordisk heitir eitt stærsta fyrirtæki á Norðurlöndum. Hvað framleiðir það?
- Hver er stærsta eyjan í Miðjarðarhafinu?
- Hvað nefndist ástar- og fegurðargyðja Grikkja hinna fornu?
- Kasper, Jesper og ... hver?
- Í nóvember 1969 unnu þeir Pete Conrad og Alan Bean afrek sem engir í heiminum höfðu unnið á undan þeim – nema reyndar tveir menn sem höfðu gert hið sama fáeinum mánuðum fyrr. Hvað gerðu Conrad og Bean?
- Fyrirbæri eitt ber alþjóðlegt heiti sem sumir telja að hafi upphaflega þýtt „bitur drykkur“ en aðrir að meiningin hafi verið „heitt vatn“. Hvaða fyrirbæri er þetta?
- Heitt vatn einkennir sannarlega goshverinn fræga Gamla Geysi sem ekki ber að rugla saman við Geysi í Haukadal. Hvar er Gamli Geysir?
- Fyrir hvað var Leni Riefensthal fræg? Svarið þarf að vera þokkalega nákvæmt.
- Í hvaða hafi eru Havaí-eyjar?
- Hvað heitir eiginmaður Höllu Tómasdóttur fullu nafni?
Svör við myndaspurningum:
Á fyrri myndinni er stjörnuþokan Andrómeda. Á seinni myndinni er Walt Disney. Vísbendingin er hluti af eyra Mikka Músar en Disney skapaði hann.
Svör við öðrum spurningum:
1. Signa. — 2. Ólafur Darri. — 3. Dauðabúðir þýskra nasista í seinni heimsstyrjöld. — 4. Starri. — 5. Flokk fólksins. — 6. Lyf. — 7. Sikiley. — 8. Afródíta. — 9. Jónatan. — 10. Gengu um á tunglinu í Apollo 12. — 11. Súkkulaði eða kakó, hvort tveggja telst rétt. — 12. Í Bandaríkjunum. — 13. Áróðursmyndir fyrir þýska nasista. — 14. Kyrrahafi. — 15. Björn Skúlason.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir (4)