Áfram hægt að vísa fólki frá öruggum löndum úr landi

Útlend­inga­stofnun mun fram á mitt næsta ár geta vísað hluta hæl­is­leit­enda úr landi þrátt fyrir að þeir kæri úrskurði stofn­un­ar­innar til kæru­nefndar útlend­inga­mála, sam­kvæmt frum­varpi sem Þórunn Egils­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, hefur lagt fram á Alþingi.

Þetta á við þegar Útlend­inga­stofnun hefur metið umsóknir fólks ber­sýni­lega til­hæfu­lausar og það kemur frá ríki sem er á lista stofn­un­ar­innar yfir örugg ríki. Við­kom­andi munu áfram geta kært neit­anir á hæli til kæru­nefndar útlend­inga­mála, en gæti þá þurft að gera það að utan.

Alþingi sam­þykkti lög til bráða­birgða vegna þessa í októ­ber síð­ast­liðnum, og átti ákvæðið að gilda út þetta ár, en tekið er á þessum málum í nýjum útlend­inga­lögum sem eiga að taka gildi um ára­mótin. Nú er lagt til að bráða­birgða­á­kvæðið verði fram­lengt fram til 1. júlí og á móti frest­ist sam­bæri­leg ákvæði í útlend­inga­lög­unum, sem þykja óskýr. Þá gef­ist nægur tími til þess að lag­færa ákvæðið.

„Mikill fjöldi umsókna um alþjóð­lega vernd hefur borist á árinu og er útlit fyrir að þær verði yfir 1.100 á árinu 2016. Meiri hluti umsókna er frá öruggum upp­runa­ríkjum, aðal­lega Makedóníu og Albaníu. Aldrei fyrr hafa svo margir sótt um vernd hér á landi, en allt árið 2015 voru umsækj­endur 354, árið 2014 voru þeir 175 og 172 árið 2013. Það sem af er ári hefur öllum slíkum umsóknum verið synjað. Þrátt fyrir það virð­ist ekk­ert lát á komum ein­stak­linga frá öruggum ríkjum, en í októ­ber og nóv­em­ber 2016 lögðu sam­an­lagt 456 manns fram umsókn um alþjóð­lega vernd hér á landi, þar af voru 79% frá öruggum ríkjum,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Þessi þróun hafi aukið álag á hæl­is­kerfið mjög, og því hafi verið leitað ýmissa úrræða til þess að hraða afgreiðslu umsókna um vernd eins og hægt sé. Þetta ákvæði um að kæra fresti ekki rétt­ar­á­hrifum ákvarð­ana Útlend­inga­stofn­unar um að útlend­ingur skuli yfir­gefa landið þegar stofn­unin telur umsókn­ina til­hæfu­lausa og við­kom­andi komi frá öruggu ríki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár