Sony framleiðir vínylplötur á ný

30 árum eftir að hafa hætt útgáfu á vínyl rúlla retró plötur af færi­band­inu á ný.

Fjölmargir listamenn kjósa að gefa tónlist sína út á vinylplötu samhliða útgáfu í streymisþjónustum á vefnum.
Fjöl­margir lista­menn kjósa að gefa tón­list sína út á vinyl­plötu sam­hliða útgáfu í streym­is­þjón­ustum á vefnum. Mynd: Pexels.com

Sony ætlar að hefja fram­leiðslu vín­ylplatna á ný eftir nærri þrjá­tíu ára hlé. Vín­yl­platan hefur ekki selst betur síðan geisla­disk­arnir ruddu sér inn á mark­að­inn á níunda ára­tug síð­ustu aldar.

[links]Sony Music Enterta­in­ment hætti að fram­leiða vín­yl­plötur árið 1989 þegar tón­list­ar­menn og tón­list­arunn­endur höfðu valið geisla­diska fram yfir hefð­bundið útgáfu­form vín­ylplatna. Þá var kom­inn tími til að nútíma­væð­ast og segja skilið við deyj­andi útgáfu­form.

Fyrsta vín­yl­plata Sony í nærri 30 ár mun renna af færi­band­inu í Tokyo í Japan í mars á næsta ári. Sony ætlar að gefa út jap­anska popptón­list, bæði gamla og nýja, á þessu gamla formi. Japanski tón­list­ar­mark­að­ur­inn fram­leiddi nærri 200 milljón plötur á ári um miðjan átt­unda ára­tug­inn, þegar vín­yl­plötu­mark­að­ur­inn var sem stærstur þar í landi.

Sony átti stóran þátt í því að geisla­platan ruddi sér til rúms, með fram­leiðslu geisla­spil­ara og geislaplatna. Með net­væð­ingu höf­und­ar­verka og til­komu streym­is­þjón­usta hefur geisla­plötu­sala fallið hratt.

Vín­yll­inn hefur hefur hins vegar snúið aftur sem upp­á­hald tón­list­arunn­enda og hip­stera. „Sándið“ og gæðin eru sögð betri undir nál­inni, að þeirri stað­reynd und­an­skildri að skemmti­legra getur verið að með­höndla við­kvæma hluti en að smella á snert­iskjái.

Samkvæmt AFP leitar Sony nú að starfs­krafti sem kann á tækin sem þarf að gang­setja í fyrsta sinn í 30 ár.

Seljast eins og heitar lummur

Vín­yl­plötur selj­ast nú betur en þær hafa gert í ald­ar­fjórð­ung. Sem dæmi má nefna að í Bret­landi voru meira en 3,2 millj­ónir vín­ylplatna seldar árið 2016. Það var 53 pró­sent meiri sala en árið áður og besta sala vín­ylplatna síðan 1991. Þá var Simply Red-platan Stars mest selda platan í Bret­landi.

Augljóst er að vín­yl­platan eld­ist betur en Simply Red.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár