Reykjavíkurborg höfðar mál á hendur ríkinu vegna flugvallar í Vatnsmýri

Inn­an­rík­is­ráð­herra hefur hafnað kröfu borg­ar­innar um lokun þriðju flug­braut­ar­innar

Frá Reykjavíkurflugvelli.
Frá Reykja­vík­ur­flug­velli.

Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hyggst ekki loka þriðju flug­braut­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli og segir ákvörðun um slíka lokun ekki verða tekna án full­vissu um að lokun braut­ar­innar verði ekki tekin án full­vissu um að lokun hennar komi ekki niður á öryggi flug­vall­ar­ins.

Þetta kemur fram í svar­bréfi Ólafar til Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra vegna lok­unar flug­braut­ar­innar, sem gert var sam­komu­lag um fyrir tveimur árum síðan. Bréfið var lagt fram í borg­ar­ráði í dag. Þar var einnig ákveðið að borg­ar­lög­maður skuli höfða mál á hendur rík­inu vegna þessa.

Dagur sendi Ólöfu bréf í sumar þar sem farið var fram á það að Ólöf til­kynnti um lokun braut­ar­innar sem fyrst og að gerðar verði breyt­ingar á skipu­lags­reglum, svo að fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir á Hlíð­ar­enda við flug­völl­inn geti náð fram að ganga. Ríkið hafi samn­ings­bundnar skyldur til að loka braut­inni og ljóst sé að borgin geti skapað sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart upp­bygg­ing­ar­að­ilum og þá verði ríkið sótt til saka.

Ólöf hafnar þessu öllu í bréfi sínu. Hún mót­mælir mögu­legri bóta­skyldu rík­is­ins venga bygg­ing­ar­á­forma á Hlíð­ar­enda en segir eðli­legt að borgin leggi álita­málin fyrir dóm­stóla svo skorið verði úr um það hvort rík­inu beri að loka flug­braut­inni eða breyta skipu­lags­reglum.

Ólöf segir í bréfi sínu ljóst að óraun­hæft sé að ætla annað en að flug­völl­ur­inn verði áfram í Vatns­mýri í næstu fram­tíð. „Tryggja verður fullt öryggi flug­vall­ar­ins í Vatns­mýr­inni og þjón­ustu­stig sem sam­ræm­ist hlut­verki vall­ar­ins.“ 

Framsókn og flug­vall­ar­vinir greindu frá svar­bréfi Ólafar í frétta­til­kynn­ingu, en flokk­ur­inn fagn­aði þessu í bókun sem lögð var fram í borg­ar­ráði í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár