Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Madríd

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Madríd


Tvennt sem þarf að hreinsa upp. Ég er búinn að hugsa þetta tals­vert með Hross í oss sem ég horfði á í flug­vél­inni (sjá fyrstu færslu þessa túr­bloggs). Þessi mynd er meist­ara­snilld. Alger. Hún er full­kom­lega frá­bær. Og hitt: Þegar ég sagði að við ættum að lauma sprengju í tank­inn á send­bílnum sem ferjar trommu­pall­inn hans Merlin; það gengur alls ekki. Þegar við drukkum þessar 13 rauð­víns­flöskur sem rætt var um í Barcelona deildum við vín­inu með síð­grá­hærðum meist­ara­manni yfir miðjum aldri sem keyrir þann bíl. Hann er rokk­ari af lífi og sál og hefur unnið við geir­ann í senni­lega hart­nær hálfa öld. Upp­á­halds­hljóm­sveitin hans er Krokus. Það þarf nú ekki mikið meira til. Við þurfum að finna aðra leið til þess að tor­tíma trommu­geim­skip­inu hans Merlin.

[caption id="attachment_11482" align="alignleft" width="158"] Baldur Ragn­ars­son er hér, í öllu sínu veldi. Eða svona mest öllu.[/caption]

Ég fór næst­síð­astur að sofa í gær. Þá var Baldur á brók­inni að leika apa. Robert fannst það nú bara mest­megnis skemmti­legt, alveg þangað til litli bróðir fór að hanga í gír­stöng­inni. Þá fór ég að sofa og klukkan var sirka eitt. Baldur sagði mér í dag að hann hefði farið í koju undir fjögur. Ég hef engin smá­at­riði en von­andi hefur Robert tekið Tarzan-leiknum vel. Við komumst alla­vega lif­andi á leið­ar­enda.

Ég svaf lengi. Ég var alveg grjót­aður framan af en vakn­aði um átta til að pissa. Þá var albjart, rútan stopp og eng­inn á ferli. Ég fór út og slak­aði af mér og horfði út á ljóm­andi fal­legan akur. Næst vakn­aði ég við gíra­skak í Madridar-borg og klukkan langt eftir hádegi. Við áttum í örlitlum erf­ið­leikum með að finna tón­leika­stað­inn, Robert orð­inn pínu ferða­þreyttur og stefnu­laus sím­töl Böbba við tón­leika­hald­ara, sem töl­uðu ekk­ert af þeim tungu­málum sem við skiljum þokka­lega, skil­uðu sama og engu. Þetta end­aði nú allt saman ágæt­lega á end­anum, inn­gang­ur­inn í venjúið reyndar óþol­andi og við þurftum að bera hljóð­færin bæði inn og svo aftur út núna í kvöld, óþægi­lega langa leið.

Þetta var fínt venjú. Við fengum svolitla aðstöðu og ég náði jafn­vel inter­neti um stund. Stað­ur­inn var ágæt­lega búinn en sviðið var ofboðs­lega lítið. Fljótt á litið fannst mér hálf­ó­mögu­legt að ætla að við myndum kom­ast þarna fyrir. Og þó hafði Merlin sleppt því að setja upp trommu­pall­inn. Deeeeeeeeejók! Trommu­pall­ur­inn var þarna sem aldrei fyrr og át upp svo sem 62% af svið­inu. Ég vildi óska að ég væri að ýkja mikið með þessi hlut­föll en svona óskap­legt er þetta nú samt. Við redd­uðum þessu öllu saman með því að þröngva mónitor­unum fram á bassa­boxin sem stóðu framundan sviðs­brún­inni. Sviðs­hænan sem stóð í stór­ræðum við að tengja alls­konar snúrur, mæka og dærekt­box, fékk aðeins að kenna á Flexanum þegar hún var ekki full­kom­lega með á nót­unum. Það end­aði þó allt í ljóm­andi bróð­erni því lókal­fólkið var allt af vilja gert og stóð vakt­ina af eld­móði. Til að mynda nálg­að­ist okkur náungi, léttur sem hind á vor­degi, og vildi fá að hengja upp bakk­droppið fyrir okkur. Við tókum því vit­an­lega fagn­andi. Hann var rétt að klára þá aðgerð þegar við stigum niður af svið­inu eftir hljóðpruf­una. Þá gæfði yfir sviðið, í fal­legri speg­il­skrift, fáni með áletr­un­inni DLÖMLÁKS. Það var of fyndið til þess að breyta því og umrædd hind veit senni­lega ekki enn að eitt­hvað hafi klikkað. Hljóm­sveitin Dlömláks lék fyrir dansi í kvöld. Eða reyndar eig­in­lega ekki. Trommu­pallu­inn hans Merlin hefur nefni­lega tvo svona risa­stóra hlið­ar­vængi sem teygja sig hátt til lofts og eru brúkaðir undir leik­tjöld þeirra Elu­veitie-krakka. Þeir skyggja svolí­tíð mikið á bak­tjaldið okkar hvert ein­asta kvöld. Sannasta sagna vorum við hljóm­sveitin ÖMLÁ í kvöld. Og þá vænt­an­lega ÁLMÖ á morgun. Nema að hindin mæti til leiks á ný.

[caption id="attachment_11483" align="align­right" width="233"] Hér eru átta hljóð­færa­leik­arar á svið­inu. Þung­arokkið í allri sinni dýrð.[/caption]

Giggið var alveg ljóm­andi. Spán­verjar eru skemmti­legir. Við spil­uðum fyrir fullu húsi og ég held bara að allir hafi skemmt sér mjög vel. Þetta var eig­in­lega alveg meist­ara­legt gigg. Þetta var akkúrat svona gigg þar sem við sjáum til þess að stóru böndin eigi erfitt með að koma á eftir okkur. Ég var stoltur af band­inu mínu eftir þetta gigg. Þegar svona gengur erum við besta band í heimi. Aldrei slakað á og allt lagt undir.

Við fengum heim­sókn. Svo óskap­lega mik­il­væga heim­sókn. Yngvi Leifsson, Hús­vík­ingur og stór­vinur okkar, mætti í stuð­inu í. Hann á heima á Spáni en lagði á sig tals­verða ferð til þess að sækja okkur til Madrid. Hafi fólk lagt blogg­færsl­urnar frá því í fyrra á minnið má finna munstur því hann gerði slíkt hið sama þá. Yngvi, sem við köllum gjarnan Lopa í dag­legu tali, er alvöru vinur okkar og mér þótti alveg óskap­lega gaman að hitta hann. Það er þetta með fólkið sem breytir manni, þó ekki sé nema að litlu leyti, á lífs­leið­inni. Við fórum svo saman út að borða, örlítið í bjór og alls­konar. Lopi seg­ist vera að leita fyrir sér undir nafn­inu Lopez hér á Spáni. Það er fyndið.

Já, rótið af tón­leika­staðnum var svo bara svipað óþol­andi og rótið inn. Við þurftum að rölta með okkar haf­urtask í rút­una og þar kvöddum við Lopann með virktum. Nú er klukkan 1:21 og við höfum verið á keyrsl­unni í kannski klukku­tíma. Framundan er Toulouse og þangað er langur akstur. Robert sáum við lítið eða ekk­ert í dag, hann stakk af og eyddi deg­inum með vini sínum. Við vorum nú rétt í þessu að stoppa í vega­sjoppu og erum allir vak­andi. Hér hljómar mis­gáfu­leg tón­list og við erum allir vak­andi. Þetta er lífið og hér er gaman.

Jámm, núna er ég búinn að pissa og við lagðir af stað aftur, Robert tók olíu og við burst­uðum allir tenn­urnar. Baldur hélt upp­teknum hætti og brenndi á sokka sem hann fann á rútu­gólf­inu. Hann hengir þá á trommu­kj­uða og kveikir í með tákn­rænum hætti. Við erum allir í rútu og erum að leggja í hann aftur. Ég, Baldur, Gunni og Jón eru frammi, hinir eru farnir í koju. Gunni var að kveikja á Bad Religion. Ég ætla að drekka pínu meira.

Meist­ara­legt dags­ins: Lopinn.

Sköll dags­ins (samt ekki): DLÖMLÁKS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár