Bankamenn „dæmdir af reiðu og örvæntingarfullu samfélagi“

Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar, segir mann sinn sak­lausan en sam­fé­lagið hafi þurft útrás fyrir reiði sína og því hafi hann og aðrir verið dæmdir í fang­elsi.

Ólafur Ólafsson fjár­festir var sak­laus dæmdur af reiðu og örvænt­ing­ar­fullu sam­fé­lagi, og dóms­kerfið fylgdi eftir dómum sam­fé­lags­ins „á kald­rifj­aðan og þaul­skipu­lagðan hátt.“ Þetta skrifar Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs, í grein sem birt­ist á Vísi í dag.

Ingi­björg skrifar meðal ann­ars um Kvía­bryggju, þar sem eig­in­maður hennar afplán­aði hluta dóms síns fyrir hlut sinn í Al Thani-mál­inu þar til fyrir skömmu. Hann er nú á Vernd. Hún skrifar um fang­ana sem þar eru og segir: „Sumir hafa drýgt hrotta­lega glæpi, aðrir hafa ein­fald­lega orðið undir í líf­inu, og …enn aðrir eru þarna af því að sam­fé­lagið þurfti útrás fyrir reiði sína.

Til­hugs­unin um að þarna inni sitji hugs­an­lega fleiri menn, sak­lausir eins og mað­ur­inn minn, dæmdir af reiðu og örvænt­ing­ar­fullu sam­fé­lagi er ekki góð,“ skrifar Ingi­björg. „Sú stað­reynd að dómum sam­fé­lags­ins var síðan löngu seinna, á kald­rifj­aðan og þaul­skipu­lagðan hátt, fylgt eftir af stór­göll­uðu dóms­kerfi, rekið áfram af ann­ar­legum hags­munum dóm­ara sem eru virkir þáttak­endur og partur af þessu sam­fé­lagi, tengdir fjöl­skyldu- og vina­böndum þvers og kruss….er heldur verri.“

Hún segir að svo til allt sem eigi að vera heil­agt í nútíma­þjóð­fé­lagi, sem setji mann­rétt­indi ofar öllu, hafi verið van­virt eða hent fyrir róða í mál­inu gegn manni hennar og öðrum sem dæmdir voru. „Hugtök eins og „sak­laus uns sekt er sönnuð“ hafa ekk­ert gildi, „van­hæfi dóm­ara“ skiptir engu máli, „borg­ara­leg rétt­indi sak­born­inga“ eru fótum troðin.“

Hún segir að dóm­urum sé gefið gíf­ur­legt vald til að svipta mann­eskju frels­inu. Dómarar þurfi að vera hafnir yfir allan vafa og heil­indi þeirra þurfi að vera ótví­ræð. „Svo er því miður ekki.“

Ingi­björg segir það sitt verk­efni að fyr­ir­gefa sam­fé­lag­inu dóm­hörk­una, og hún sé á góðri leið með það. „Ég mun hins vegar eiga erf­ið­ara með að fyr­ir­gefa kerf­inu, kaldrifj­uðum dóm­urum og emb­ætt­is­mönnum sem vernda sína menn út í hið óend­an­lega og metn­að­ar­lausum stjórn­mála­mönnum sem hafa ekki þor til að stíga fram og stoppa þessa aðför að sak­lausu fólki.“

Hún segir það verk­efni sam­fé­lags­ins að horfast í augu við það „hve hrapa­lega okkur hefur mis­tek­ist að gera upp efna­hags­hrunið á rétt­látan og heið­ar­legan máta. Norna­veiðar sam­tím­ans munu snú­ast uppí skömm morg­un­dags­ins.“

Ólafur Ólafs­son hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða fyrr á þessu ári fyrir mark­aðs­mis­notk­un. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár