Kalla eftir „draumastað“ fyrir þau sem vilja hætta í vændi

Konum mætir úrræða­leysi í aðdrag­anda vændis og þær upp­lifa van­traust í garð fag­að­ila og lög­reglu. Þær kalla eftir fjöl­breytt­ari úrræðum fyrir þau sem vilja hætta í vændi og harð­ari refs­ingum fyrir vændis­kaup.

Konur sem hafa verið í vændi upplifa vantraust í garð lögreglu, heilbrigðisstarfsfólks og félagsþjónustunnar.
Konur sem hafa verið í vændi upp­lifa van­traust í garð lög­reglu, heil­brigð­is­starfs­fólks og félags­þjón­ust­unnar. Mynd: Pexels

„Ég þorði aldrei að segja að ég hafi verið í vændi eða neyslu eða, af því ég var svo hrædd um að mér yrði ekki trúað þú veist, að þessi atburður yrði alltaf tengdur bara við líf­ernið sem ég lifði.“

Þannig lýsir kona upp­lifun sinni af því að hafa verið í vændi. Hún er meðal 14 kvenna sem eru við­mæl­endur í nýrri rann­sókn á reynslu kvenna sem eru í vændi eftir að breyt­ingar voru gerðar á vænd­is­á­kvæði Almennra hegn­ing­ar­laga árið 2009.

Rann­sóknin beinir sjónum sínum sér­stak­lega að úrræðum til útgöngu úr vændi. Meðal helstu nið­ur­staða er að konur sem hafa verið í vændi upp­lifa van­traust í garð lög­reglu, heil­brigð­is­starfs­fólks og félags­þjón­ust­unnar. Rann­sak­endur eru Gyða Margrét Pét­urs­dóttir, pró­fessor í kynja­fræði, og Sveina Hjördís Þor­valds­dóttir, sem lauk meistara­gráðu í kynja­fræði við Háskóla Íslands í haust. Rann­sóknin birt­ist í nýj­ustu útgáfu tíma­rits­ins Stjórn­mál & stjórn­sýsla og ber yfir­skrift­ina „Drauma­staður“ og önnur úrræði til útgöngu úr vændi.

Samkvæmt breyt­ingu sem gerð var á vænd­is­á­kvæði Almennra hegn­ing­ar­laga árið 2009 eru kaup á vændi og hagn­aður þriðja aðila af vænd­is­sölu refsi­verð en sala á vændi er refsi­laus. Örfáir hafa hlotið dóm fyrir vændis­kaup á Íslandi en hér tíðkast að vændis­kaup­endur fái sektir, allt að 200.000 krónum, frekar en dóm. Á árunum 2009-2019 voru flest málin 175 árið 2013 en fæst árið 2016, fimm tals­ins.

Fyrir gild­is­töku lag­anna var lítið vitað um aðstæður fólks í vændi og engar rann­sóknir hafa verið gerðar hér á landi eftir gild­is­töku þeirra sem kannar reynslu þeirra sem eru í vændi.

Til­gangur rann­sókn­ar­innar er að bæta úr því og er henni ætlað að vera inn­legg í opin­bera stefnu­mótun í mála­flokknum með hags­muni þolenda vændis að leið­ar­ljósi. Í rann­sókn­inni er rætt við 14 íslenskar konur sem hafa hætt í vændi og er mark­mið rann­sókn­ar­innar að skoða hver sé aðdrag­andi þess að þær fóru í vændi og hvaða úrræði þær telja að þurfi að vera til staðar fyrir þau sem vilja hverfa úr vændi.

Úrræðaleysi á öllum stigum

Í rann­sókn­inni var leit­ast eftir því að svara hvaða úrræði hafa nýst þolendum vændis og hvaða úrræðum óska þeir eftir til að stuðla að og auð­velda útgöngu úr vændi?

Konurnar 14 sem rætt er við í rann­sókn­inni eiga það sam­eig­in­legt að hafa upp­lifað úrræða­leysi innan heil­brigð­is­kerf­is­ins í aðdrag­anda vændis. Við­mæl­endur lýsa því einnig að mæta úrræða­leysi þegar kemur að því að vinna úr afleið­ingum vændis. Almenn þekk­ing virð­ist ekki vera til staðar um hvað felist í því að hafa verið í vændi, ofbeldið sem þrífst innan þess og hvaða afleið­ingar þolendur þurfi að takast á við í kjöl­farið.

Einfaldara að leita ekki aðstoðar í stað þess að mæta skilningsleysi

Einn við­mæl­and­inn lýsti því að það væri ein­fald­ara að leita sér ekki aðstoðar en að mæta skiln­ings­leysi hjá heil­brigð­is­starfs­fólki. Flestar þorðu ekki að deila reynslu sinni með læknum eða öðru heil­brigð­is­starfs­fólki af ótta við útskúfun og for­dóma.

[links]Aðeins ein af kon­unum 14 sem rætt var við hafði reynt að kæra vændis­kaup­endur til lög­regl­unnar eftir að hafa safnað til þess kjarki í langan tíma. Lög­reglan gat engin svör veitt henni og sagði hún að:„hún [lög­reglan] bara veit ekk­ert hvað hún á að gera við mig“. Konan var send heim án þess að form­lega hafi verið tekið við kæru hennar og rúmu ári síðar hafði hún enn ekk­ert heyrt frá lög­regl­unni og upp­lifði þessi við­brögð lög­regl­unnar þannig að hún skipti ekki máli og að lög­regl­unni væri sama þó hún hafi orðið fyrir ofbeldi.

„Hann ætti rétt á því að nauðga mér því hann væri að borga mér“

Einn við­mæl­andi varð fyrir hrotta­legri nauðgun og frels­is­svipt­ingu á meðal sala á vændi fór fram. Hún leit­aði til lög­reglu en var ráð­lagt að kæra ekki, þrátt fyrir að vændis­kaup­endur eigi að sæta refs­ingu og að auki eiga þeir aðilar sem nauðga og frels­is­svipta einnig að sæta refs­ingu.

Lög­reglan sagði hætt­una of mikla fyrir hana þar sem hún verði opin­beruð sem vænd­is­kona. Það er mat rann­sak­enda að þarna birt­ast gam­al­grónar hug­myndir tengdar nauðg­un­ar­menn­ingu þegar það er útskýrt fyrir henni að lík­leg­ast yrði aldrei sak­fellt í þessu máli ef hún myndi kæra.

Konan lýsir skýr­ingum lög­reglu á þessa leið: „Það væri rosa­lega erfitt að hérna koma með rök­færsl­una fyrir dóm ... hann ætti rétt á því að nauðga mér af því hann var að borga mér.“

„Þar með birt­ist sú nauðg­un­ar­mýta að þolendum vændis geti ekki verið nauðgað því þær hafi með sölu á aðgangi að lík­ama sínum gefið sam­þykki sitt,“ segir í grein Gyðu og Sveinu. Konan fékk enga aðstoð í kjöl­far þess að hafa leitað til lög­reglu og ekk­ert varð úr mál­inu. Stuttu síðar hafði lög­reglan afskipti af kon­unni og var hún kærð fyrir að aug­lýsa vændi. Í kjöl­farið upp­lifði hún algjört van­traust í garð lög­reglu.

Núverandi löggjöf veitir þolendum vændis litla vernd

Fram kemur í rann­sókn­inni að fram­kvæmd núver­andi lög­gjafar veitir þolendum vændis litla vernd. Við­mæl­endur vilja að tekið sé á vænd­is­málum, þær hljóti laga­lega vernd og að vændis­kaup­endum sé refsað. Annað úrræði sem var nefnt er fjár­hags­að­stoð til lengri tíma.

Flestar við­mæl­enda höfðu nýtt sér bæði ein­stak­lings- og hópa­við­töl Stíga­móta en ekk­ert sér­hæft úrræði fyrir konur sem eru eða hafa verið í vændi virð­ist vera starf­rækt í dag að und­an­skildum sjálfs­hjálp­ar­hópi Stíga­móta, Svana­hópnum. Hópurinn sam­anstendur alla jafna af fjórum til sjö konum sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið í vændi eða eru í vændi og vilja kom­ast út úr því. Helsta mark­mið hóps­ins er að styrkja sjálfs­traust þolenda vændis, bæta líðan þeirra og rjúfa þá félags­legu ein­angrun sem til­komin er vegna vændis.

Þörf á úrræði til að vinna með þolendaskömmina

Í rann­sókn­inni kemur fram að mik­il­vægt er að þolendur vændis hafi aðgang að úrræðum til að vinna með þolenda­skömm­ina og aðrar alvar­legar afleið­ingar þess að hafa verið í vændi. Einnig birt­ist þarna þörfin fyrir að þolendur fái aðstoð við að vinna úr afleið­ingum ann­arra kyn­ferð­is­brota.

Samþætta þarf þessi úrræði svo þolendur þurfi ekki að leita á marga staði eftir aðstoð, heldur geti leitað á einn stað sem veitir fjöl­breytt úrræði. Tvær kvenn­anna sem rætt er við í rann­sókn­inni nefna „drauma­stað“.

„Drauma­staður þar sem er bara svona með­ferð­ar­heim­ili ... þar sem maður getur bara þú veist, bara verið í prógrömmum og verið í öruggu umhverfi,“ segir ein kvenn­anna sem rætt er við í rann­sókn­inni.

Þau úrræði sem við­mæl­endur kalla eftir eru eft­ir­far­andi:

  • Fræðsla til handa fag­fólki og lög­reglu svo þolendum sé mætt af virð­ingu og skiln­ingi.
  • Aukið aðgengi að og nið­ur­greiðsla sál­fræði­þjón­ustu.
  • Sérhæfð ein­stak­lings- og hópa­við­töl fyrir þolendur vændis.
  • Fjár­hags­að­stoð án skil­yrða og aðstoð við að kom­ast aftur á almenna vinnu­mark­að­inn.
  • Harðari refs­ingar vegna vændis­kaupa.
  • Með­ferð­ar­heim­ili með dag­deild sem býður upp á fræðslu og úrræði til að bregð­ast við fjöl­þættum vanda og marg­hátt­uðum áföllum.
  • Skaða­minnk­andi nálg­anir, s.s. öruggt rými og tengsla­net.

„Þrátt fyrir mót­lætið sem þær hafa upp­lifað áður en þær hófu vændi, á meðan á vænd­inu stóð, og eftir að því lauk þá halda þær áfram að leita leiða til að bæta aðstæður sínar og þeirra sem eru í svip­uðum sporum,“ segja Gyða og Sveina í grein sinni.

Næsta skref, að þeirra mati, er hjá stjórn­völdum sem þurfa að „svara ákalli þeirra og koma á fót þeim úrræðum sem kallað er eftir í anda lag­anna sem sam­þykkt voru á Alþingi árið 2009“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár