Sigríður vill endurskoða reglur um veitingu dómaraembætta

Dóms­mála­ráð­herra segir að í ljósi reynsl­unnar af veit­ingu dóm­ara­emb­ætta við Lands­rétt eigi að end­ur­skoða fyr­ir­komu­lagið. Hún segir að ljóst hafi verið frá upp­hafi að til­laga dóm­nefnd­ar­innar hlyti ekki braut­ar­gengi á Alþingi.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra vill end­ur­skoða reglur og fyr­ir­komu­lag við veit­ingu dóm­ara­emb­ætta. Þetta kemur fram í grein sem hún skrifar í Morg­un­blaðið. Hún segir ljóst að nið­ur­staða dóm­nefnd­ar­innar hefði ekki hlotið braut­ar­gengi á Alþingi.

„Ráðherra varð það strax ljóst, eft­ir við­ræður við for­ystu­menn flokk­anna, að nið­ur­staða dóm­nefnd­ar um skip­an dóm­ara við Lands­rétt myndi ekki hljóta braut­ar­gengi á Alþingi. Rök­stuðn­ing­ur ráð­herra hefði þar engu breytt. Sjálf­um fannst ráð­herra nið­ur­staða nefnd­ar­inn­ar of ein­streng­ings­leg.“ Hún segir að hún hafi gert sína til­lögu um skipun dóm­ara við Lands­rétt „að virtum öllum sjón­ar­miðum sem máli skipta.“

Sigríður segir að í upp­hafi hafi virst ríkja „mikil og góð sátt um til­lögu ráð­herra.“ Það hafi svo breyst hvað stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana varð­aði. „Það kann að vera að von­brigði þeirra sem höfðu verið á lista dóm­nefnd­ar en ráð­herra gerði ekki til­lögu um, og þeim tengdra, hafi haft þar áhrif. Þá verður ekki fram hjá því litið að umræða í fjöl­miðlum get­ur ært óstöðugan.“

Dóms­mála­ráð­herra segir að reynslan af skipun dóm­ara við Lands­rétt gefi til­efni til þess að velta því fyrir sér hvort þingið sé í stakk búið til þess að axla þessa ábyrgð, og hvort það sé yfir­leitt sann­gjarnt að ætl­ast til þess af því með til­liti til hlut­verks þess.

Í Frétta­blað­inu í morgun er við­tal við Ástráð Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­mann, sem hefur ákveðið að fara í mál við ríkið vegna ákvörð­unar Alþingis í mál­inu. Ástráður var einn af þeim sem dóm­nefndin taldi hæf­asta en Sigríður skipti út í sinni ákvörðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár