Mynd: EPA

Ungi maðurinn og forna fjallið

Græn­lend­ingar eiga að finna sína eigin styrk­leika. Ekki láta stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki stjórna ferð­inni. Þessi skila­boð Múte Inequnaaluk Bourup Egede hafa heyrst hátt og skýrt um heims­byggð­ina eftir úrslit þing­kosn­ing­anna í síð­ustu viku.

Upptökin er að finna í fjöll­unum. Póli­tíska skriðan fór um Narsaq, litlu byggð­ina á Suður-Græn­landi. Fyrst felldi hún einn bæj­ar­stjóra. Svo annan. Og eftir því sem atburða­rásinni vatt fram varð ljóst að valda­skipti voru í upp­sigl­ingu um allt landið.

Á þessum orðum hefst ítar­leg frétta­skýr­ing blaða­manns­ins Simon Kruse í danska dag­blað­inu Berl­inske um það sem á undan er gengið í hinu póli­tíska lands­lagi á Græn­landi. Í landi þar sem búa um 56 þús­und manns sem ætla aug­ljós­lega ekki að láta stór­fyr­ir­tæki utan úr heimi koma sér eða fjalli sínu úr jafn­vægi.

Orð Kruse lýsa stöð­unni vel. Hvernig áformuð námu­vinnsla fyr­ir­tækis sem heitir Greenland Minerals varð að stærsta kosn­inga­máli í hinu víð­feðma landi, stærstu eyju heims, og hvernig and­staðan við þau áform varð til þess að næsti for­maður lands­stjórn­ar­innar, for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands, verður að öllum lík­indum hinn 34 ára Múte Bourup Egede. Hann er for­maður vinstri flokks­ins Inuit Ataqatigiit (IA), flokks­ins sem barist hefur gegn námu­vinnsl­unni og sigr­aði í þing­kosn­ing­unum í síð­ustu viku, hlaut 37 pró­sent atkvæða og tryggði sér þar með 12 af 31 sæti á þing­inu í Nuuk, Inats­is­artut. IA jók fylgi sitt um heil tíu pró­sent frá síð­ustu kosn­ingum.

Siumut-flokk­ur­inn, sem hefur haldið um stjórn­ar­taumana í land­inu nær sam­fleytt ára­tugum saman, studdi áformin og lands­stjórnin, sem flokk­ur­inn Demokra­atit sat einnig í, sam­þykkti nýlega umhverf­is­mats­skýrslu Greenland Minerals. Mikill meiri­hluti Græn­lend­inga er hins vegar and­vígur vinnsl­unni og afstaða Siumut í mál­inu, sem þó hefur orðið óljós­ari síð­ustu mán­uði, er því ein helsta ástæða þess að Egede fær stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið. Hann er þegar far­inn að hitta for­menn ann­arra flokka á óform­legum kaffi­fundum. Það er verið að und­ir­búa jarð­veg­inn fyrir stjórn­ar­skipti.

Kosn­ing­arnar voru raunar um ári fyrr en til stóð. Inn­an­flokksá­tök í Siumut skýra það að miklu leyti en þar var gerð hall­ar­bylt­ing síð­asta haust er Erik Jensen bauð sig fram gegn sitj­andi for­manni, Kim Kielsen, og hafði betur.

Kínverskir fjárfestar í meirihluta

Greenland Minerals var stofnað árið 2007 og hefur allar götur síðan haft námu­vinnslu í land­inu sem það kennir sig við á stefnu­skrá sinni. En fyr­ir­tækið er ekki græn­lenskt þótt nafnið kunni að gefa það til kynna. Það er ekki einu sinni tengt herra­þjóð­inni Dönum. Það er ástr­alskt og höf­uð­stöðvar þess eru því að finna hinum megin á hnett­inum. Árið 2016 varð hins vegar kín­verskt fyr­ir­tæki, Shenghe Resources Holding Co Ltd., stærsti hlut­haf­inn.

Á heima­síðu Greenland Minerals segir að höf­uð­á­hersla sé lögð á þróun verk­efnis við vinnslu fágætra jarð­efna úr Kvanefjeld og að það muni verða „horn­steinn“ að fram­boði slíkra efna til fram­tíðar – efna sem séu „miðjan í þeirri bylt­ingu“ sem sé að eiga sér stað í orku­notkun.

Fjallstoppur sunnan Nuuk baðaður geislum sólar.
Fjall­stoppur sunnan Nuuk bað­aður geislum sólar.

Þetta bylt­ing­ar­kennda verk­efni Greenland Minerals átti að verða að veru­leika í bænum Narsaq. Sama bæ og Múte Egede ólst upp í. Hann kall­aði fjallið með sjald­gæfu efn­unum þó ekki Kvanefjeld (Hvann­ar­fjall á íslensku) heldur sínu græn­lenska nafni: Kuann­ersuit. Fjallið er sagt geyma eitt mesta magn mjög sjald­gæfra jarð­efna í víðri ver­öld. Sann­kölluð fjár­sjóðs­kista ef metið yrði til fjár. „Þetta er það stóra. Þetta er það risa­stóra,“ hefur Greg Barnes, for­stjóri ann­ars námu­fyr­ir­tækis, Tanbreez, sagt um umfang hinnar fyr­ir­hug­uðu námu­vinnslu. Þó að Barnes, sem er ástr­alskur jarð­fræð­ingur, hafi eytt tíu árum og miklum fjár­munum til rann­sókna á svæði þar sem einnig er að finna mikið magn hinna sjald­gæfu jarð­efna, seg­ist hann vera til­bú­inn að bíða enn lengur eftir leyf­inu til að byrja að bora og grafa. Svo risa­stórt sé þetta.

Námu­vinnsla sem þessi verður hins vegar ekki að veru­leika ef Egede fær ein­hverju um það ráðið. Sú ein­arða afstaða hefur örugg­lega þegar fengið blóðið að ólga í æðum kín­versku fjár­fest­anna en mögu­lega róað taugar ein­hverra í Hvíta hús­inu sem hafa varað við auknum umsvifum Kínverja á norð­ur­slóðum. Ekki þó af ein­tómri mann­gæsku heldur frekar vegna þeirrar stöð­ugu valda­bar­áttu sem verið hefur milli stór­veld­anna tveggja síð­ustu ár og ára­tugi. Og lík­lega ekki síst vegna þess að Banda­ríkja­menn þykj­ast sjá tæki­færi fyrir sjálfa sig opn­ast.

Hin sjald­gæfu frum­efni sem fjallið geymir, og hefur raunar geymt í millj­ónir ára, er hægt að nýta í alls konar fram­leiðslu á borð við vind­myllur og sól­ar­raf­hlöður en einnig til vopna­fram­leiðslu. Í því er m.a. úran og þótt það sé aðeins sagt „auka­af­urð“ vinnsl­unnar sem miðar að því að grafa eftir enn sjald­gæfari efnum er það efnið sem Græn­lend­ingar ótt­ast hvað mest og ekki að ástæðu­lausu. Úran er óstöðugt og geisla­virkt. Það yrði notað til fram­leiðslu kjarna­vopna. Græn­lenska hag­kerfið byggir í dag á fisk­veiðum, ferða­mennsku og land­bún­aði. Friðsæld og ró. Þetta rímar því að margra mati ekki saman.

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, fór fyrir nefnd um sam­starf Íslands og Græn­lands fyrir núver­andi utan­rík­is­ráð­herra Guðlaug Þór Þórð­ar­son. Hann lýsti fjall­inu með þessum hætti í morg­un­út­varp­inu á Rás 1 nýverið: „Þetta er gríð­ar­stór gíg­tappi, sem hefur storknað mjög hægt, lyfst upp úr jarð­skorp­unni, snú­ist þvert, skor­inn í tvennt af skrið­jökli. Þetta er fjall fullt af sjald­gæfum málmum og af því að þetta storkn­aði svo hægt þá sett­ist þetta eftir eðl­is­þyngd. Öðru megin fjarð­ar­ins eru svo­kall­aðir léttir sjald­gæfir málmar sem eru vinn­an­legir, hinu megin eru þungu málm­arnir þar sem úran­íum er líka.“

Í Nuuk.
Í Nuuk.

Græn­lend­ingar hafa verið undir stjórn Dana í aldir. Árið 1979 fengu þeir heima­stjórn og í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2008 var mik­ill meiri­hluti Græn­lend­inga fylgj­andi auk­inni sjálf­stjórn. Skref í þá átt var tekið um hálfu ári síðar er Græn­lend­ingar lýstu yfir fullum sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti í málum er tengj­ast rétt­ar­fari, stefnu­mótun og nátt­úru­auð­lindum. Danska ríkið heldur enn eftir stjórn utan­ríkis- og varn­ar­mála.

Talið er að nær hvergi í heim­inum finn­ist jafn margar teg­undir sjald­gæfra jarð­efna og í jafn miklu magni og á Græn­landi. Þetta hefur löngum orðum til þess að stór­veldin hafa gjóað þangað aug­unum en síð­ustu ár hafa þau farið í störu­keppni – þar sem leynt og ljóst er barist fyrir rétt­indum til vinnslu þess­ara auð­linda. Því hefur ítrekað verið haldið fram við fólkið sem byggir eyj­una stóru að fjöllin fögru séu lyk­ill þeirra að fram­tíð­inni. Að með því að heim­ila vinnslu jarð­efn­anna sé leiðin að auknum hag­vexti greið. Að þá verði hægt að skapa hund­ruð starfa í bæ á borð við Narsaq.

Allir horfa til norðurs

Áhugi stór­veld­anna á Græn­landi hefur orðið til þess að beina sjónum alþjóða­sam­fé­lags­ins og frétta­skýrenda til norð­urs. Kína er með algjöra sér­stöðu þegar kemur að því að vinna sjald­gæf jarð­efni, fer með 80 pró­sent af allri slíkri vinnslu í heim­inum. Kín­verska fyr­ir­tækið sem fer með meiri­hluta í Greenland Minerals er stór­tæk­ast allra slíkra fyr­ir­tækja ver­aldar. Þetta finnst valda­fólki í bæði Evrópu og Banda­ríkj­unum slæm þróun. Það vill ekki vera nær alfarið háð Kína með efni til að fram­leiða alla vega varn­ing, allt frá síma­skjám til vind­myllut­úrbína og raf­hlaðna í raf­magns­bíla. Áhyggj­urnar snú­ast þó lík­lega helst um ákveðna notkun efn­anna sem ekki er endi­lega flaggað opin­ber­lega: Til vopna­fram­leiðslu. Til að fram­leiða eina banda­ríska F-35 orr­ustu­þotu þarf hvorki meira né minna af 427 kíló af hinum sjald­gæfu efnum. Í hvern kjarn­orkukaf­bát þarf 4,2 tonn.

Við­skipta­stríð milli Kína og Banda­ríkj­anna, sem harðn­aði mikið í valda­tíð Donalds Trump, er nú farið að snú­ast um þessi sjald­gæfu jarð­efni. Kín­verjar hafa gefið til kynna að þeir hygg­ist setja útflutn­ings­bann á þau til Banda­ríkj­anna. Einn ráð­gjafi kín­versku rík­is­stjórn­ar­innar spurði ein­fald­lega: Myndi það koma ykkur illa þegar kemur að fram­leiðslu F-35 orr­ustu­þota?

Svarið við því er auð­vitað já. Það þarf að finna nýjar leiðir til að afla þess­ara dýr­mætu efna. Þess vegna eru bæði Banda­ríkin og Evr­ópu­sam­bandið lík­leg til að blikka ang­ur­blítt til Græn­lend­inga á næst­unni.

Sá sem þau þurfa núna að blikka er Múte Inequnaaluk Bourup Egede. Ungi stjórn­mála­mað­ur­inn á Græn­landi sem hefur engu að síður margra ára reynslu á hinu póli­tíska sviði. Hann varð for­maður IA árið 2018, þá aðeins 31 árs. Yngsti for­maður í fjöru­tíu ára sögu flokks­ins. Hann yrði einnig yngsti for­maður lands­stjórnar Græn­lands frá upp­hafi. „Já, ég er ungur og í því tel ég meðal ann­ars styrk minn fel­ast,“ sagði hann er hann tók við valda­taumunum í flokknum.

Það verður að telj­ast ólík­legt að stór­veldum heims­ins tak­ist að heilla Egede með því að veifa framan í hann seðla­búntum. Hann ætlar að setja menntun og upp­bygg­ingu inn­viða á odd­inn. Hann vill fjöl­breytt­ara atvinnu­líf og segir þessa tvo þætti und­ir­stoðir þeirrar fram­tíð­ar­sýnar. Hann hefur sagt að Græn­lend­ingar eigi að byggja sjálfir upp landið, að finna sjálfir sína styrk­leika.

Múte Inequnaaluk Bourup Egede.
Múte Inequnaaluk Bourup Egede.

IA hlaut meiri­hluta atkvæða í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í bænum Naleraq, heimabæ Egede. Það þykir til marks um það að íbú­arnir hafni námu­vinnslu í fjall­inu sem yfir bænum gnæfir.

Sigur Egede og flokks hans í þing­kosn­ing­unum er áfall fyrir þá sem studdu námu­vinnsl­una í Kuann­ersuit. Í sigrinum fel­ast einnig skila­boð til umheims­ins: Græn­lend­ingar láta ekki freist­ast af pen­ingum alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja. Eða eins og Aqqaluk Lyngje, einn stofn­andi Inuit Ataqatigiit-flokks­ins orðar það í sam­tali við Berl­inske: „Svarið sem gefið hefur verið námu­fyr­ir­ækj­unum er þetta: Þetta verður að ger­ast á okkar for­sendum. Við viljum ekki eyði­leggja vist­kerfin á Suður-Græn­landi, þar sem við byggjum okkar lífs­við­ur­væri á land­bún­aði, sauð­fjár­rækt sem er hluti af okkar fæðu­keðju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár