Vinstri græn stærsti flokkur landsins

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er ekki lengur stærsti flokkur lands­ins. Það er Vinstri­hreyf­ingin - grænt fram­boð. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnkar milli mæl­inga MMR og er nú 32,6 pró­sent.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 32,6% í nýrri könnun MMR á fylgi við stjórn­mála­flokk­ana. Það er minni stuðn­ingur en í síð­ustu könnun MMR í jan­úar, en þá mæld­ist stuðn­ing­ur­inn 35 pró­sent. Engin rík­is­stjórn hafði kom­ist nærri því að mæl­ast með svo lít­inn stuðn­ing í sinni fyrstu mæl­ingu síð­ustu 20 ár að minnsta kosti.

Vinstri græn mæl­ast stærsti flokkur lands­ins, með 27 pró­sent fylgi. Það er 3,8 pró­sentu­stiga aukn­ing frá með­al­fylgi flokks­ins í jan­úar síð­ast­liðnum, sem var 23,2 pró­sent.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er annar stærsti flokk­ur­inn sam­kvæmt könn­un­inni, og mælist með 23,8 pró­senta fylgi. Það er minnkun um 0,8 pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingu.

Píratar mæl­ast með 13,6 pró­sent, sem er sama fylgi og í síð­ustu könnun. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 9,7 pró­sent nú en mæld­ist með 12,5 pró­sent í síð­ustu könnun, og Sam­fylk­ingin mælist með 7,8 pró­sent en mæld­ist með 7 pró­sent síð­ast.. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir Viðreisn og Björt fram­tíð mæl­ast með 5,6 pró­sent og 5,3 pró­sent fylgi, en í síð­ustu könnun var fylgið 6,8 og 7 pró­sent.

Flokkur fólks­ins mælist með 3,6 pró­sent en aðrir flokkar innan við tvö pró­sent.

Könnunin var gerð dag­ana 1. til 5. febr­úar. 983 ein­stak­lingar átján ára og eldri svör­uðu könn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár