Brynjar styður ekki heldur jafnlaunavottun

Fleiri þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins ætla ekki að styðja jafn­launa­vottun, sem er frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar og er kveðið á um í stjórn­ar­sátt­mál­anum.

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar ekki að styðja fyr­ir­hugað rík­is­stjórn­ar­frum­varp um jafn­launa­vottun. Þetta kemur fram í sam­tali við hann á mbl.is. Brynjar er annar þing­maður flokks­ins sem seg­ist ekki ætla að styðja frum­varpið, en auk hans hefur Óli Björn Kárson sagst ekki ætla að styðja frum­varpið. Þá lýsti Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra einnig yfir efa­semdum um kyn­bund­inn launa­mun og jafn­launa­vottun í grein í síð­ustu viku.

„Ég held að þetta sé bara van­hugsað og menn séu að gefa sér rangar for­sendur,“ segir Brynjar í sam­tali við mbl.is. Hann seg­ist ekki munu styðja frum­varpið. Ef fara eigi í svona mikið inn­grip í rekstur fyr­ir­tækja sé lág­mark að fyrir liggi án nokk­urs vafa að raun­veru­legt vanda­mál sé fyrir hendi. „Það er auð­vitað meg­in­for­sendan ef ætl­unin er að fara út í svona inn­grip að vanda­mál sem ætl­unin er að leysa sé örugg­lega til staðar. Það er alveg frum­for­sendan....Þetta er bara ein­hver vit­leysa. Ég vona að menn end­ur­skoði þetta.“

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, mun leggja frum­varpið um jafn­launa­vottun fram á þingi í vor fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar. Frum­varpið er í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar og kveðið er á um það í stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Í Silfrinu á RÚV í gær hvatti Þor­steinn til þess að þing­menn biðu eftir frum­varp­inu og tækju þá afstöðu. „Allar rann­sóknir sýna þennan launa­mun og að gliðni í sundur með kynj­unum eftir því sem líður á starfs­aldur þeirra,“ sagði hann í þætt­inum, og að með frum­varp­inu vilji hann varpa ábyrgð­inni á launa­mun yfir á stjórn­endur í fyr­ir­tækjum.

Jafn­launa­vottun var eitt helsta bar­áttu­mál Við­reisnar fyrir kosn­ingar, og flokk­ur­inn hét því að frum­varp um slíka vottun yrði for­gangs­mál. Eftir að slitn­aði upp úr fyrstu til­raun núver­andi rík­is­stjórn­ar­flokka til að mynda rík­is­stjórn greindi Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, núver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, frá því að lög­fest­ing jafn­launa­vott­unar hafi ekki hlotið mik­inn hljóm­grunn meðal Sjálf­stæð­is­manna í við­ræðum. „Því er ekki að leyna að þetta jafn­rétt­is­mál hlaut ekki mik­inn hljóm­grunn í við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um helg­ina ekki frekar en sjáv­ar­út­vegs­mál­in.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár