Dómsmálaráðherra: Ekkert hægt að fullyrða um „kynbundinn“ launamun

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra segir „kyn­bund­inn“ launa­mun vera of lít­inn til að hægt sé að full­yrða nokkuð um kyn­bundið mis­rétti. Karlar afli almennt meiri tekna en þeir vinni meira. Á sama tíma fái konur fleiri „dýr­mætar stundir með börnum sínum.“

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra segir að ekki sé hægt að full­yrða nokkuð um að það fyr­ir­finn­ist kyn­bundið mis­rétti á launa­mark­aði. Þetta kemur fram í grein hennar í nýút­komnu árs­há­tíð­ar­riti Orators, félags laga­nema við Háskóla Íslands.

„Það er rétt að karlar afla almennt meiri tekna en það skýrist af meiri vinnu þeirra utan heim­ilis. Vafa­laust er ástæðan meðal ann­ars sú að konur eiga enn fleiri dýr­mætar stundir með börnum sínum en karlar. Hvernig fólk kýs að haga þeim málum hverju sinni er eitt­hvað sem for­eldrar ákveða innan fjöl­skyld­unnar og sú ákvörðun á skilið fulla virð­ingu,“ skrifar ráð­herr­ann meðal ann­ars.

Hún segir ýmsa þætti til staðar sem ekki sé hægt að mæla í launa­könn­unum, hug­læga og ómæl­an­lega þætti.

„Það má því segja að þótt kann­anir mæli enn um 5% „kyn­bund­inn“ launa­mun þá er hann of lít­ill til að hægt sé að full­yrða nokkuð um kyn­bundið mis­rétti á launa­mark­aði. Til þess eru kann­an­irnar of tak­mark­aðar ásamt því að mann­leg sam­skipti verða aldrei felld að fullu í töflu­reikni. Þær munu því seint geta metið hina hug­lægu þætti sem skipta svo miklu máli í sam­bandi vinnu­veit­enda og starfs­manns.“

Þá vitnar Sigríður í skýrsl­una Launa­munur karla og kvenna, sem vel­ferð­ar­ráðu­neytið lét vinna árið 2015, þar sem kemur fram að ekki sé með vissu hægt að álykta að sá óút­skýrði launa­munur sem mælist sé ein­göngu vegna kyn­ferðis. „Það leikur ekki nokkur vafi á því að þrýst­ingur á opin­berar aðgerðir í jafn­rétt­is­málum, til dæmis kynja­kvóta og jafn­launa­vott­anir, myndi minnka ef þessu væru gerð betri skil í opin­berri umræðu,“ segir ráð­herr­ann um það.

Umrædd jafn­launa­vottun er eitt af þeim frum­vörpum sem eru á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir vor­þing. Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hyggst leggja málið fram á Alþingi í mars næst­kom­andi, en málið var eitt stærsta kosn­inga­mál Við­reisnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár