Sumir lántakar hjá sjóði verzlunarmanna að greiða vexti sem hafa ekki sést áður

Hópur lán­tak­enda hjá næst stærsta líf­eyr­is­sjóði lands­ins, sem varð fyrir vaxta­breyt­ingu, sem reynd­ist síðar óheim­ili fær brátt ofgreiddar greiðslur end­ur­greiddar. Vextir á lánum þeirra munu reikn­ast eftir fyrri reglu, og eru undir tveimur pró­sentum.

Tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins framkvæmdu ólögmæta breytingu á útreikningum á vöxtum á breytilegum verðtryggðum lánum í fyrra.
Tveir stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins fram­kvæmdu ólög­mæta breyt­ingu á útreikn­ingum á vöxtum á breyti­legum verð­tryggðum lánum í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefur boðið þeim sjóðs­fé­lögum sem ofrukk­aðir voru vegna vaxta­hækk­unar á verð­tryggðum lánum þeirra í fyrra sem stóðst ekki lög, að end­ur­greiða þeim upp­hæð­ina sem um ræðir eða nýta hana til að greiða niður höf­uð­stól láns þeirra.

[links]Auk þess hefur vaxta­út­reikn­ingur lána þeirra verður færður til fyrra horfs. Það þýðir að verð­tryggðir vextir þessa hóps eru nú 1,89 pró­sent, eða 16 pró­sent lægri ein ann­arra lán­taka sjóðs­ins sem áfram þurfa að borga nýju vext­ina, sem eru 2,26 pró­sent.

Stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna tók þá ákvörðun 24. maí í fyrra að hækka vexti á breyti­legum verð­tryggðum hús­næð­is­lánum úr 2,06 pró­sent í 2,26 pró­sent frá og með ágúst­byrjun 2019. Sam­hliða var ákveðið að hætta að að láta ávöxt­un­­­ar­­­kröfu ákveð­ins skulda­bréfa­­­­­­flokks stýra því hverjir vext­irnir eru og í stað þess myndi stjórn sjóðs­ins ákveða þá.

Ein­hverjir sjóðs­fé­lagar töldu þetta illa stand­ast og sendu ábend­ingar til Neyt­enda­stofu.

Neytendastofa sagði nei

Neyt­enda­stofa birti í jan­úar ákvörðun þess efnis að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), sem breytti líka útrekn­ingi á sínum vöxtum, hafi ekki mátt breyta því hvernig verð­tryggðir breyti­legir vextir hluta hús­næð­is­lána sjóðs­fé­laga þeirra voru reikn­aðir út. Það hafi verið í and­stöðu við ákvæði eldri laga um neyt­enda­lán.

Alls hefur ákvörðun Neyt­enda­stofu áhrif á öll lán með verð­tryggða breyti­lega vexti sem gefin voru út frá árs­byrjun 2001 til apríl 2017 og varðar vaxta­greiðslur frá maí 2019. Um er að ræða átta pró­sent af öllum sjóðs­fé­lags­lánum Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna en ekki liggur enn fyrir hversu mikil áhrifin eru á LSR.

[adspot]Í frétt sem birt­ist a vef Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna í síð­asta mán­uði sagði að gert væri ráð fyrir því að kostn­aður sjóðs­ins vegna þessa sé innan við 30 millj­ónir króna, eða að með­al­tali um tíu þús­und krónur á hvert lán.

Ákvörðun Neyt­enda­stofu þýðir að allir sem tekið höfðu hús­næð­is­lán á breyti­legum verð­tryggðum vöxtum hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna fyrir 1. apríl 2017 höfðu verið ofrukk­aðir um vexti í nokkra mán­uði. Þeir fengu til­kynn­ingu fyrir helgi um að sjóð­ur­inn bauð þeim end­ur­greiðslu á því sem oftekið hafði verið og inni á sjóðs­fé­laga­vef hvers og eins er hægt að velta hvort við­kom­andi lán­taki vill láta leggja upp­hæð­ina, sem í flestum til­fellum er nokkrir tugir þús­und króna, inn á banka­reikn­ing sinn eða hvort að sjóð­ur­inn eigi að ráð­stafa henni til nið­ur­greiðslu á höf­uð­stól hús­næð­is­láns.

Þótt upp­hæðin sem end­ur­greidd er sé lág í flestu sam­hengi, enda ofrukk­aði Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hóp­inn ein­ungis í nokkra mán­uði, þá er annað mik­il­væg­ara sem telur mjög fyrir þann hóp sem við á. Í bréfi sem sent var út til þeirra sem breyt­ingin nær til segir að stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins hafi, með vísan til þess sem fram kom í ákvörðun Neyt­enda­stofu, ákveðið að „færa við­mið fyrir vexti af láni þínu, þar sem það fellur undir ákvörðun stofn­un­ar­innar, til fyrra horfs. Viðmiðið verður því upp­haf­legt við­mið, þ.e. vaxta­flokk­ur­inn HFF150434, að við­bættu 0,75 pró­sentu­stiga álagi.“

Ávöxtunarkrafan sem lækkar og lækkar

Skulda­bréfa­flokk­ur­inn sem um ræðir hefur þró­ast þannig að við­skipti með hann hafa farið minnk­andi, og sam­hliða hefur ávöxt­un­ar­krafa flokks­ins lækkað mikið. Það er helsta ástæðan fyrir því að stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna tók ákvörðun um að hætta að binda vaxta­þróun við flokk­inn. Vext­irnir voru ein­fald­lega orðnir of lágir.

En þeir hafa haldið áfram að lækka. Og sam­kvæmt greiðslu­seðli fyrir næstu afborgun sem lán­tak­endum sem ákvörðun Neyt­enda­stofu á við um barst í vik­unni eru vextir lána þeirra fyrir tíma­bili 3. febr­úar til 3. mars 1,89 pró­sent, eða rúm­lega 16 pró­sent lægri en vextir þeirra sem tóku verð­tryggt lán á breyti­legum vexti hjá sama sjóði eftir 1. apríl 2017. Þeir borga 2,26 pró­sent vexti.

[adspot]Í byrjun viku náði svo ávöxt­un­ar­krafa umrædds flokks sögu­legum lág­punkti, þegar hún var rétt undir 0,72 pró­sent. Ef sú krafa yrði við­mið fyrir vexti lán­tak­enda væru verð­tryggðir vextir þeirra, sam­kvæmt reikni­regl­unni sem nú hefur verið end­ur­vakin, 1,47 pró­sent. Til sam­an­burðar eru lægstu verð­tryggðu vextir sem bjóð­ast á hús­næð­is­lána­mark­aði í dag 1,69 pró­sent, hjá Birtu líf­eyr­is­sjóði.

Vert er að taka fram að ávöxt­un­ar­krafan getur auð­vitað líka hækkað ef við­skipti með flokk­inn aukast, jafn­vel þannig að vextir þeirra sem eru með lán sín bundin við þróun hans fari yfir 2,26 pró­sent. Það hefur þó ekki gerst frá því snemma í mars í fyrra.

Á sama tíma er verð­bólga, sem leggst ofan á verð­tryggða lánið, nú um stundir 1,7 pró­sent, og því tölu­vert undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði. Hún hefur ekki verið lægri frá því síðla árs 2017.

Þótt ómögu­legt sé að spá fyrir um hvernig verð­bólga þró­ast til fram­tíðar þá hefur tek­ist að halda henni að mestu undir verð­bólgu­mark­miði frá því í febr­úar 2014 og fram til dags­ins í dag, ef undan er skilið rúm­lega eins árs tíma­bil frá miðju ári 2018 og fram til nóv­em­ber í fyrra. Spár gera ráð fyrir því að hún hald­ist lág í nán­ustu fram­tíð.

Hættur að lána verðtryggt á breytilegum vöxtum

Í októ­ber greindi Kjarn­inn frá því að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefði breytt lána­reglum sínum þannig að skil­yrði fyrir lán­töku voru þrengd mjög og hámarks­­fjár­­hæð láns var lækkuð um tíu millj­­ónir króna. Hámarks­lán er nú 40 millj­ónir króna. Þá ákvað sjóð­­ur­inn að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­­tryggð lán á breyt­i­­legum vöxt­­um.

Um var að ræða við­bragð við því að Líf­eyr­is­­sjóður verzlunarmanna var kom­inn út fyrir þol­­mörk þess sem hann réð við að lána til íbúð­­ar­­kaupa. Sjóð­­ur­inn greindi sam­hliða frá því að eft­ir­­spurn eftir sjóðs­­fé­laga­lánum hefði auk­ist mikið frá því að lána­­reglur voru rýmkaðar í októ­ber 2015. Á þeim tíma voru sjóðs­­fé­laga­lán um sex pró­­sent af heild­­ar­­eignum sjóðs­ins en í októ­ber í fyrra voru þau um 13 pró­­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár