Píratar vilja vísa jafnlaunavottun frá

Full­trúar Pírata í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd vilja vísa frum­varpi um jafn­launa­vottun frá þingi og til rík­is­stjórn­ar­innar. Þau segja engin mál­efna­leg rök fyrir því að sam­þykkja verði málið nú.

Píratar vilja að frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um jafn­launa­vottun verði sent til rík­is­stjórn­ar­innar til frek­ari með­ferðar og vísað frá þingi. Þetta kemur fram í minni­hluta­á­liti full­trúa Pírata í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis, Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur og Gunnars Ingi­bergs Guð­munds­sonar.

Þar kemur fram að þau styðji til­gang og mark­mið frum­varps­ins, um að koma á og við­halda jafn­rétti og jöfnum tæki­færum kvenna og karla og jafna stöðu kynj­anna á öllum sviðum sam­fé­lags­ins. „Það er því miður að mál þetta skuli fært til 3. umræðu og atkvæða­greiðslu þegar ljóst verður að telj­ast að málið er hvergi nærri til­búið til afgreiðslu.“

Tíminn til umfjöll­unar um málið hafi verið af mjög skornum skammti og margir þættir séu enn óskýrðir. Þá hafi engin mál­efna­leg rök komið fram sem rök­styðji að málið þurfi að afgreiða nú.

„Máls­með­ferðin hefur leitt til þess að ekki hefur verið raun­hæft að skoða breyt­ingar sem leitt hefðu til þess að frum­varpið yrði unnið í sátt allra aðila sem það snertir. Ef frum­varpið á að ná því mark­miði sem að er stefnt er nauð­syn­legt að málið sé unnið vel og í sátt. Verði frum­varpið að lögum á þessum tíma­punkti verður að telj­ast ólík­legt að það nái mark­miði sínu.“

Af þessum sökum leggja þau til að frm­varp­inu verði vísað frá og það sent til rík­is­stjórn­ar­innar.

Meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar hefur gert breyt­ing­ar­til­lögu á jafn­launa­vott­un­inni þar sem kveðið er á um að Stjórn­ar­ráð Íslands skuli vera fyrsti aðil­inn til að und­ir­gang­ast jafn­launa­vottun. Píratar segja að ekki hafi farið fram grein­ing á því hver kostn­aður rík­is­sjóðs verði af því, en þau telja nauð­syn­legt að kostn­að­ar­mat liggi fyrir áður en þetta verður að lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár