Geimáætlun Eþíópíu

Í byrjun árs til­kynntu eþíópísk stjórn­völd að þau ætl­uðu sér að skjóta upp gervi­hnetti á næstu árum. Landið er eitt það fátæk­asta í heimi og hefur rík­is­stjórnin sætt gagn­rýni fyrir for­gangs­röðun.

Þrátt fyrir mikil samfélagsleg vandamál séu til staðar í Eþíópíu, þar á meðal hungursneyð, er ríkisstjórnin ákveðin í að láta drauma sína um að verða geimveldi verða að veruleika.
Þrátt fyrir mikil sam­fé­lags­leg vanda­mál séu til staðar í Eþíópíu, þar á meðal hung­ursneyð, er rík­is­stjórnin ákveðin í að láta drauma sína um að verða geim­veldi verða að veru­leika. Mynd: EPA

Geim­vís­inda­stofnun Eþíópíu var stofnuð árið 2004 en það var með bygg­ingu Entoto-geim­sjónaukans árið 2015 að geim­áætlun lands­ins komst á flug. Geim­sjón­auk­inn er í 3200 metra hæð yfir sjáv­ar­máli í nánd við höf­uð­borg lands­ins, Addis Ababa, en Eþíópía þykir henta sér­stak­lega vel til stjörnu­at­hug­ana vegna þess hversu hálent landið er og hversu nálægt það er við mið­baug. Kostn­að­ur­inn við áætl­un­ina og bygg­ingu sjón­aukans komu bæði frá stjórn­völdum og ríkum Eþíópum og er honum ætlað að fram­kvæma geim­rann­sóknir sem munu skila sér á sviði land­bún­aðar og lofts­lags­mála.

Áformin um að þróa og skjóta upp gervi­hnetti á næstu árum byggja á sömu rökum; til að hraða þróun land­bún­aðar í land­inu. Til við­bótar vilja stjórn­völd kom­ast hjá því að reiða sig á gervi­hnatta­gögn útbúin af erlendum fyr­ir­tækjum. Gervi­hnött­ur­inn mun verða smíð­aður í Kína og lík­lega skot­inn upp frá kín­verskum skot­palli en það er ekki vitað hver kostn­að­ur­inn við hann er eða hvort hann muni búa yfir tækni sem gæti nýst í hern­að­ar­til­gangi.

Dýrkeyptir draumar

Eþíópíu er stjórnað af harðri hendi af stjórn­mála­hreyf­ing­unni EPRDF (Ethi­opian People's Revolutionary Democratic Front) sem varð til sem and­spyrnu­hreyf­ing gegn ein­ræði Derg-stjórn­ar­innar svoköll­uðu sem steypti síð­asta keis­ara lands­ins, Haile Selassie I, af stóli árið 1974, og stjórn­aði land­inu með harðri hendi undir for­merkjum komm­ún­isma fram til árs­ins 1987. EPRDF, sem einnig er að minnsta kosti að nafn­inu til rót­tæk vinstri­hreyf­ing, hefur verið við völd síðan snemma á tíunda ára­tug síð­ustu aldar og hefur í dag 501 sæti af 547 á þingi.

Eþíópía er eitt hrað­ast vax­andi hag­kerfi í heimi með á milli 8-11% hag­vöxt und­an­farin ára­tug en er á sama tíma enn með fátæk­ari ríkjum í heimi, að hluta til vegna til­tölu­lega mik­illar fólks­fjölg­unar í land­inu. Í valda­tíð núver­andi for­sæt­is­ráð­herra Hailemariam Desalegn varð Eþíópía hrað­ast vax­andi hag­kerfi í Afríku árið 2015, sem er mikið afrek fyrir efna­hag sem bygg­ist á land­bún­aði, en landið hefur notið góðs af mik­illi þró­un­ar­að­stoð; einna helst gíf­ur­legra inn­viða­fjár­fest­inga og lána frá Kína sem hafa fjár­magnað verk­efni á borð við lest­ar­sam­göngu­kerfi til Djíbútí og Gibe III-stífl­una. Meles Zenawi, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, kall­aði upp­hafs­menn geim­áætl­un­ar­innar draum­óra­menn

en geim­áætl­unin lands­ins hefur orðið að öðru dæmi um metnað rík­is­stjórn­ar­innar í inn­viða­fjár­fest­ingum.

Hung­ursneyð vegna þurrku er reglu­legt vanda­mál í Eþíópíu og gekk landið í gegnum sér­stak­lega slæma þurrku orsak­aða af El Niño í fyrra en á þessu ári er búist við því að 5,6 milljón manns munu þurfa neyðar mat­ar­að­stoð og 9,2 millj­ónir manns munu þurfa aðstoð til að nálg­ast öruggt drykkj­ar­vatn. Þá hefur póli­tískur óstöð­ug­leiki ein­kennt landið uppá síðkastið; í kjöl­far mót­mæla sem áttu sér stað gegn stjórn­völdum á trú­ar­há­tíð í bænum Bishoftu sunnan við Addis Ababa í októ­ber í fyrra – þar sem 52 manns voru drepnir af örygg­is­sveitum stjórn­valda sam­kvæmt stjórn­völdum, en sam­kvæmt öðrum heim­ildum er þessi tala mun hærri, allt að 500 manns – lýstu stjórn­völd yfir neyð­ar­á­standi í land­inu í fyrsta sinn síðan EPRDF kom til valda. Óánægja með kerf­is­bundnar frels­is­skerð­ingar af hálfu stjórn­valda og ítrekuð brot þeirra á mann­rétt­indum liggur á bak­við mót­mælin en harka­leg við­brögð stjórn­valda við mót­mælin hafa ekki hjálpað til með að draga úr spenn­unni í land­inu en þau hafa hand­tekið tug­þús­undir manns og sam­kvæmt mann­rétt­inda­sam­tök­unum Human Rights Watch eru pynt­ingar iðu­lega not­aðar í gæslu­varð­haldi í land­inu.

Vafasöm forgangsröðun

Í ljósi ástands­ins eru rökin fyrir því að verja fé til að skjóta upp eig­inn gervi­hnetti til­tölu­lega veik. Það verður sífellt auð­veld­ara og ódýr­ara að fá aðgang að gervi­hnatta­gögnum og myndum, að minnsta kosti til þeirra nota sem stjórn­völd hafa gefið til kynna að sé fyrir stafni, enda fjöl­mörg fyr­ir­tæki sem bjóða upp á slíka þjón­ustu. Spennan í Eþíópíu gefur til kynna að ákveðið rof sé til staðar á milli stórra jað­ar­settra hópa innan sam­fé­lags­ins og áherslur rík­is­stjórn­ar­innar. Þró­un­ar­stig landa ætti í sjálfu sér ekki að vera rök gegn metn­að­ar­fullum áætl­unum á borð við geim­áætlun Eþíópíu sem hefur mögu­leika á að leiða af sér jákvæðar efna­hags- og tækni­fram­þró­anir sem á sama tíma getur hraðað iðn­væð­ingu og búið til starfs- og rann­sókn­ar­tæki­færi í landi þar sem vits­munaflótti er vanda­mál. Kring­um­stæð­urnar í Eþíópíu virð­ast hins vegar velta upp mun fleiri spurn­ingum en svörum um til­gang og nyt­semd geim­áætl­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Geimvísindi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár