Lög á verkfall sjómanna voru tilbúin í ráðuneytinu

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra var til­búin með laga­setn­ingu á verk­fall sjó­manna áður en kjara­deila þeirra við útvegs­menn leyst­ist í nótt. Afstaða rík­is­ins í deil­unni er for­dæm­is­gef­andi fyrir kjara­deilur ann­ara stétta.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

„Ég get alveg við­ur­kennt það að ég var til­búin með lögin,“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um kjara­deilu sjó­manna og útgerð­ar­manna sem leyst­ist í nótt. Þor­gerður Katrín var í síma­sam­tali í Viku­lok­unum á Rás 1 í hádeg­inu.

Spurð hvort hún hafi hótað deilu­að­ilum í kjara­deil­unni með laga­setn­ingu segir Þor­gerður Katrín ekki svo hafa verið. Deilu­að­ilar hafi hins vegar vitað að hún hafi verið til­búin með laga­setn­ing­una ef að höggva þyrfti á hnút­inn. Ráðherra hitti samn­inga­nefndir beggja aðila í gær­kvöldi og lagði til mála­miðl­un­ar­til­lögu sem sjó­mönnum og útgerð­ar­mönnum þótti ganga of skammt.

Það lá því á fyrir báða aðila að ná samn­ingum í nótt til þess að leysa deil­una án aðkomu rík­is­ins. Það var og gert og það sam­þykkt að ríkið skyldi ekki hafa neina aðkomu að nýjum samn­ingum.

Þor­gerður Katrín seg­ist hafa verið búin að ræða það í rík­is­stjórn, á fundi á föstu­dag, að það gæti komið til þess að lög yrðu sett á verk­fallið. Hún seg­ist vera fegin að ekki hafi komið til þess og að aðilar deil­unnar hafi getað leyst ágrein­ing­inn án aðkomu rík­is­ins.

„Þetta eru mik­il­væg skila­boð inn í aðrar kjara­deilur,“ segir Þor­gerður Katrín. „Deilu­að­ilar geta klárað svona.“ Hún bendir á að þarna hafi það sann­ast að ríkið þurfi ekki að hafa aðkomu í erf­iðar kjara­deilur og að það eigi að líta á hegðan stjórn­valda í þess­ari deilu sem for­dæmi fyrir þær kjara­við­ræður sem fyr­ir­hug­aðar eru. „Ríkið mun ekki stíga inn í deilur.“

Þor­gerður Katrín segir að ríkið geti hins vegar komið að almennum kjara­deilum með almennum aðgerðum. Hún seg­ist hins vegar vera ósam­mála því að ríkið eigi að beita sér­tækum aðgerðum í kjara­deilum.

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra fagnar því að ekki hafi komið til þess að ríkið stigi inn í kjara­deil­una. „Það eru frá­bærar fréttir að samn­ingar hafi tek­ist,“ skrifar Bene­dikt á Face­book-­síðu sína í morg­un. „[E]kki síst að ríkið hafi ekki þurft að koma að samn­ing­un­um. Þor­gerður Katrín stóð sig eins og hetja, en það er eng­inn vafi á því að hennar afstaða markar tíma­mót í deilum á vinnu­mark­aði. Samn­ingar eiga að vera á kostnað vinnu­veit­enda en ekki rík­is­ins. Til ham­ingju sjó­menn, útgerð­ar­menn og Þor­gerð­ur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár