Forseti Íslands: Það gæti orðið erfitt fyrir Pírata að mynda ríkisstjórn

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, var í við­tali við Channel 4 í Bret­landi og tjáði sig þar um mögu­leika við stjórn­ar­myndun.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, telur að það gæti orðið snúið fyrir Pírata að gera mála­miðl­anir í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Þetta kom fram í við­tali við hann við Channel 4 í Bret­landi. Hann segir enn fremur að hug­sjóna­flokkar eins og Píratar geti lent í vand­ræðum þegar komi að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum, og að þær gætu orðið nokkuð erf­iðar eftir kosn­ing­arnar hér, sem fara fram 29. októ­ber.

Guðni fór til Bret­lands á þriðju­dag, meðal ann­ars til að flytja fyr­ir­lestur í Leeds á Englandi og vera við­staddur lista­sýn­ingu Guðrúnar Sigríðar Har­alds­dóttur í London.

Spyrill­inn spurði Guðna almennt út í stöðu mála á Íslandi, og sagði hana um margt for­vitni­lega. Banka­stjórar væru komnir í fang­elsi, for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði sagt af sér útaf Panama­skjöl­unum og framundan væru kosn­ingar. „Eru þið að vísa veg­inn?“ spurði hann.

Guðni sagði það ekki skipta máli, heldur frekar að Íslend­ingar væru að reyna að taka réttar ákvarð­anir. Ef það væri leið­ar­vísir fyrir aðrar þjóðir, þá væri það gott.

Píratar og Sjálf­stæð­is­flokkur hafa mælst stærstu flokk­arnir hér á landi á und­an­förnum mán­uðum. Samkvæmt nýj­ustu skoð­ana­könn­unum, og kosn­inga­spá Kjarnans, er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 26 pró­sent fylgi en Píratar ríf­lega 24 pró­sent. Aðrir flokkar eru með tölu­vert minna fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár