Century Aluminum afskrifar álver í Helguvík

Móð­ur­fyr­ir­tæki Norð­ur­áls hefur fært niður álvers­verk­efni í Helguvík um 152 millj­ónir dala. Þar með virð­ist end­an­lega ljóst að ekk­ert verður af upp­bygg­ingu álvers þar, þó það hafi í raun blasað við lengi.

Helguvík.
Helguvík.

Century Aluminum, móð­ur­fé­lag Norð­ur­áls, hefur afskrifað álvers­upp­bygg­ingu í Helguvík, sam­kvæmt því sem fram kemur í árs­fjórð­ungs­tölum fyr­ir­tæk­is­ins fyrir síð­asta árs­fjórð­ung árs­ins 2016. Þar kemur fram að 152,2 millj­óna dala tap hafi verið skráð vegna álvers­verk­efn­is­ins í Helguvík. Það eru um 16,5 millj­arðar íslenskra króna.

Reyndar hefur lengi verið ljóst að upp­bygg­ing á álveri í Helguvík yrði ekki að veru­leika þó nú virð­ist það form­lega orðið ljóst. Síðast með alþjóð­legum gerð­ar­dómi sem féll fyrir jól, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að HS Orka þyrfti ekki að standa við ákvæði raf­orku­samn­ings sem fyr­ir­tækið und­ir­rit­aði við Norðurál Helguvík í apríl 2007. Sá samn­ingur var um hluta af þeirri orku sem átti að nota í álver­inu, en í mjög langan tíma hefur HS Orka reynt að losna undan samn­ingnum, enda verið stað­fest að hann gæti ekki skilað fyr­ir­tæk­inu arð­semi.

Gerð­ar­dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu undir lok síð­asta ár að samn­ing­ur­inn á milli HS Orku og Norð­ur­áls Helguvík væri ekki lengur í gildi. Fyr­ir­tækið tók þó ekki strax ákvörðun um að slá áformin af, og brást við með því segj­ast ætla að kanna hvort mögu­legt væri að afla orku til verk­efn­is­ins eftir öðrum leiðum.

Áður höfðu bæði for­stjóri HS Orku og for­stjóri Lands­virkj­unar bent á að heims­mark­aðs­verð á áli þyrfti að hækka um tugi pró­senta til þess að álver í Helguvík gæti borið sig og að virkj­anir sem ráð­ast þyrfti í til að sjá því fyrir orku gætu verið arð­bærar.

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sagði í sept­em­ber 2016 við sér­stakar umræður á Alþingi: „Ég sé ekki að það ál­ver sé að verða sér út um raf­­­magn. Það virð­ist ekki vera að fæð­ast nein lausn á því og að öðru leyti þá sé ég ekki að það sé afl til að stefna á slík verk­efni á næst­unn­i.“ Hann bætti við að hann sæi ekki fyrir sér að álverum muni yfir höfuð fjölga á Íslandi í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár