Bætist í hóp þeirra kvenna sem leiðir Norðurlöndin

Sanna Marin hefur verið valin næsta for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands og eru því fjórir af fimm for­sæt­is­ráð­herrum Norð­ur­land­anna nú konur. Marin verður jafn­framt yngsti for­sæt­is­ráð­herra lands­ins og yngsti sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra heims.

Sanna Marin verður næsti forsætisráðherra Finnlands.
Sanna Marin verður næsti for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands. Mynd: Finnska stjórnarráðið

Sanna Marin, vara­for­maður finnskra jafn­að­ar­manna og sam­göngu­ráð­herra, mun taka við em­bætti for­sætis­ráð­herra Finn­lands í vik­unni. Marin er 34 ára gömul og verður því yngsti for­sæt­is­ráð­herra í sögu lands­ins og jafn­framt yngsti sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra í heim­inum í dag. Þegar Marin tekur við emb­ætt­inu verða fjórir af fimm for­sæt­is­ráð­herrum Norð­ur­land­anna konur. Frá þessu er greint á vef Guardian.

Konur leiða ríkisstjórnarflokkana fimm

Í gær bar Marin sigur úr bítum í atkvæða­greiðslu meðal helstu áhrifa­manna í Jafn­að­ar­manna­flokknum í kjöl­far þess að Annti Rinne, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, sagði af sér í kjöl­far þess að Mið­flokk­­ur­inn, einn rík­­is­­stjórn­­­ar­­flokk­anna, lýsti yfir van­­trausti á hann eft­ir. Að lokum atkvæða­greiðsl­unnar sagði Marin við fjöl­miðla að mikil vinna væri fram undan við að end­ur­vinna traust. 

Þeir fimm flokkar sem mynda rík­is­stjórn Finn­lands eru allir leiddir af konum og þrjár þeirra hafa jafn­framt ekki náð 35 ára aldri.

Samkvæmt umfjöllun Guardian verður Marin yngsti for­sæt­is­ráð­herra í heim­inum í dag. For­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands, Jacina Ardern, er 39 ára og for­sæt­is­ráð­herra Úkraínu, Oleksiy Honcharuk er 35 ára. Leiðtogi Norður Kóreu, Kim Jong-un, er sagður vera 35 ára. [adspot]

Fjórir af fimm forsætisráðherrum konur

Þegar Marin tekur við emb­ætt­inu verða fjórir af fimm for­sæt­is­ráð­herrum Norð­ur­land­anna konur. Erna Solberg, leið­togi Hægri-flokks­ins, hefur verið for­sæt­is­ráð­herra Noregs síðan haustið 2013. Mette Frederik­sen, leið­togi jafn­að­ar­mann, tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur í sumar og Katrín Jak­obs­dóttir er jafn­framt for­sæt­is­ráð­herra Íslands.

For­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar er Stefan Löfven, for­maður Jafn­að­ar­manna­flokks­ins. Jafn­framt stýra tveir karl­menn lands­stjórn Græn­lands og Færeyja en það eru Kim Kielsen í Græn­landi og Bárður á Steig Neilsen í Færeyjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár