Ekkert samráð við ferðaþjónustuna í loftslagsmálum

Hags­muna­að­ilar eru fyr­ir­ferða­miklir í stefnu­mótun stjórn­valda í lofts­lags­málum. Lítið eða ekk­ert sam­ráð hefur verið haft við ferða­þjón­ust­una eða nýsköp­un­ar­geir­ann. Þing­maður boðar fram­halds­fyr­ir­spurn.

Stjórnvöld hafa ekki ráðfært sig við ferðaþjónustuna þegar kemur að loftslagsmálum.
Stjórn­völd hafa ekki ráð­fært sig við ferða­þjón­ust­una þegar kemur að lofts­lags­málum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stefnt er að því að ganga frá ábyrgð og útfærslu „flestra eða allra“ verk­efna sókn­ar­á­ætl­unar stjórn­valda í þessum mán­uði. Umhverf­is­ráð­herra hefur svarað fyr­ir­spurn Svan­dísar Svav­ars­dóttur um aðgerðir stjórn­valda í lofts­lags­málum. Svandís bar upp spurn­ingar sínar 7. des­em­ber, þegar lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna stóð yfir í París og unnið var að sam­komu­lag­inu sem náð­ist svo í lok ráð­stefn­unnar. Í svari ráð­herra kom fram að ekk­ert sam­ráð hefur verið haft við hags­muna­að­ila í ferða­þjón­ustu á Íslandi til þessa.

Svandís var umhverf­is­ráð­herra árið 2010 þegar aðgerð­ar­á­ætlun íslenskra stjórn­valda í lofts­lags­málum var sett af stað. Sú áætlun er enn í gildi og verður til 2020 þegar skuld­bind­ingar Kyoto-bók­un­ar­innar renna út. Sókn­ar­á­ætlun stjórn­valda var svo kynnt í húskynnum Veð­ur­stof­unnar í lok nóv­em­ber áður en sendi­nefnd Íslands hélt utan til Parísar. Sókn­ar­á­ætl­unin er hugsuð sem við­bót við aðgerða­á­ætl­un­ina. Ákveðið var að bíða með frek­ari útfærslu á eft­ir­fylgni með áætl­un­inni þar til búið væri að fjár­magna verk­efnin í fjár­lögum. Umhverf­is­ráðu­neytið mun svo, sam­kvæmt svari ráð­herra, hafa eft­ir­fylgni með verk­efn­unum 16 í sókn­ar­á­ætl­un­inni sem lögð verður áhersla á.

Fjöl­margir aðilar koma að gerð stefnu­mörk­unar og áætl­ana í lofts­lags­málum hjá umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Þar eru hags­muna­að­ilar fyr­ir­ferða­miklir; Samtök atvinnu­lífs­ins og full­trúar stór­iðju og flug­fé­laga hafa til dæmis reglu­bundið veitt umsögn um fram­kvæmd laga um evr­ópska við­skipta­kerfið með los­un­ar­heim­ildir sem Ísland er hluti af í gegnum EES-sam­starfið.

Í tengslum við áætlun núver­andi stjórn­valda hefur Hafið – önd­veg­is­setur fengið verk­efnið að búa til veg­vísi um minnkun los­unar í sjáv­ar­út­vegi og drög að slíkum veg­vísi liggja þegar fyrir. Hafið er sam­starfs­verk­efni fyr­ir­tækja sem vilja þróa og nýta græna tækni i sjáv­ar­út­vegi. Bænda­sam­tökin hafa fengið svipað verk­efni í land­bún­aði en þar er vinnan komin skemmra á veg, segir í svari umhverf­is­ráð­herra á Alþingi.

[adspot]

Lítið samráð við ferðaþjónustuna og fyrirtæki í nýsköpun

Ferða­þjón­ustan hefur ekki átt sam­starf um stefnu­mótun og áætl­ana­gerð stjórn­valda í lofts­lags­málum til þessa. Helga Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, sagði í sam­tali við Kjarnann að innan geirans hafi reglu­lega verið litið til lofts­lags­mál­anna þó það hafi ekki verið á form­legum grunni. Hún nefnir fjölda hóp­ferða­bíla og bíla­leigu­bíla í því sam­bandi. Reynt er að draga úr losun þess­ara öku­tækja og í und­ir­bún­ingi er að leggja til að auknar kvaðir verði settar á losun bíla­leigu­bíla við ráðu­neytið. „Ferða­þjón­ustan á auð­vitað mikið undir í þessum mála­flokki,“ segir Helga.

Í svari umhverf­is­ráð­herra á Alþingi segir að aðeins óform­leg sam­skipti hafi verið milli stjórn­valda og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja um aðgerðir í lofts­lags­málum. Oddur Sturlu­son, verk­efna­stjóri hjá Icelandic startups, sem rekur meðal ann­ars við­skipta­hrað­al­inn Startup Reykja­vík Energy sem leggur áherslu á nýsköpun í orku­iðn­aði, segir nútíma sporta­fyr­ir­tæki hafa lofts­lags­málin í hávegum, hvort sem það er með­vitað eða ekki.

Hvað mála­flokk­inn varðar þá segir Oddur fyr­ir­tæki í alþjóð­legum verk­efnum, sér­stak­lega í tengslum við mál­efni Norð­ur­slóða, vera mest áber­andi. Flest þeirra eru stofnuð um nýja og hreina orku­tækni. Nýsköpun eigi hins vegar ekki aðeins um nýstofnuð fyr­ir­tæki. „Undir nýsköp­un­ar­hatt­inum eru auð­vitað ný fyr­ir­tæki en einnig tæki­færi fyrir eldri og stærri fyr­ir­tæki til að takast á við þessi verk­efni hjá sér. Ég tel brýnt að hvatt sé til nýsköp­unar í þessum málum,“ sagði Oddur í sam­tali við Kjarnann.

Enn óvissa um skuldbindingar Íslands

Ísland sendi lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna sam­eig­in­legt mark­mið með Evr­ópu­sam­band­inu (ESB). Slíkt hafði verið gert áður, til dæmis á öðru skuld­bind­ing­ar­tíma­bili Kyoto-bók­un­ar­innar sem gildir 2020. Eins og Kjarninn greindi frá fyrr í þessum mán­uði hefur grund­völlur sam­starfs­ins við ESB ekki verið ákveð­inn. Noregur hefur eins og Ísland lýst yfir vilja til að taka þátt í mark­miði Evr­ópu­sam­bands­ríkja um 40 pró­sent minni losun árið 2030 miðað við árið 1990.

Í svari umhverf­is­ráð­herra segir að ESB hafi „tekið vel í þá mála­leitan í bréfi, en ekki hefur verið rætt um hvernig málið verður rætt áfram og hvaða form verður á því.“ Þessi óvissa mun að öllum lík­indum skýr­ast á næstu vikum, sam­kvæmt svari ráð­herra, þegar ríkin ráð­ast í eft­ir­fylgni við Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Þess vegna er enn ekki víst hverjar skuld­bind­ingar Íslend­inga verða vegna sam­komu­lags­ins í París. Íslenskir ráða­menn hafa þó ítrekað full­yrt að losun verði minnkuð um 40 pró­sent, en aldrei tekið jafn djúpt í árina og til dæmis Norðmenn sem hafa lofað að minnka losun „um að minnsta kosti“ 40 pró­sent og stefna að kolefn­is­hlut­leysi á næstu ára­tugum.

Sam­komu­lagið í París verður form­lega und­ir­ritað í höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna 22. apríl næst­kom­andi.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, segir aug­ljóst að svör ráð­herra kalli á fram­halds­fyr­ir­spurn. Hvergi komi fram hver áætl­unin er og það aðeins rakið hver staðan í mála­flokk­inum sé núna. „Það er full þörf á aðhaldi með íslenskum stjórn­völdum þegar kemur að lofts­lags­málum,“ segir Svandís og bendir á að það virð­ist vera sem að frum­kvæðið sé ekki hjá stjórn­völdum í mála­flokk­inum. Ekki sé gott að stefna stjórn­valda í lofts­lags­málum sé svo óskýr enda enn óvíst hverjar áherslur íslenskra stjórn­valda séu þegar kemur að við­ræðum við ESB.

Spurð hvað henni þætti að betur mætti fara seg­ist Svandís vilja sjá skýrar hvernig eigi að halda á sam­starfi stjórn­valda við atvinnu­lífið, þar sem breyt­ingar þurfa að vera eigi mark­mið í lofts­lags­málum að nást. Þá þykir henni skrýtið að lofts­lags­málin séu ekki mið­læg í sam­göngu­málum á Íslandi, en þar eru mestu tæki­færin í minnkun losun Íslend­inga sér stað. „Maður hefði búist við að ráðu­neytið væri komið lengra,“ segir Svandís.

Hún segir þó ánægju­legt að sjá hversu gott sam­starfið sé milli stofn­ana rík­is­ins um lofts­lags­málin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár