Athuga hvort auglýsingar ráðherra standist jafnræðisreglu

Unnið er að lög­fræði­legri úttekt fyrir for­stöðu­menn rík­is­stofn­ana um hvort Björt Ólafs­dóttir hafi mátt aug­lýsa öll störf stofn­ana sem undir hana heyra.

Björt Ólafsdóttir er umhverfis- og auðlindaráðherra í ríkisstjórn Bjarna Bendiktssonar. Hún ætlar að auglýsa allar stöður forstöðumanna undirstofnana ráðuneytisins lausar að loknum skipunartíma sitjandi forstöðumanna.
Björt Ólafs­dóttir er umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í rík­is­stjórn Bjarna Bendikts­sonar. Hún ætlar að aug­lýsa allar stöður for­stöðu­manna und­ir­stofn­ana ráðu­neyt­is­ins lausar að loknum skip­un­ar­tíma sitj­andi for­stöðu­manna. Mynd: Samsett mynd

Félag for­stöðu­manna rík­is­stofn­ana hefur óskað eftir lög­fræði­legri úttekt á ákvörðun umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um að aug­lýsa öll störf for­stöðu­manna stofn­anna sem heyra undir ráðu­neytið laus til umsóknar.

For­stöðu­manna­fé­lagið veltir fyrir sér hvort þessi ákvörðun ráð­herra stand­ist jafn­ræð­is­reglu stjórn­sýslu­laga. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu í dag.

Kjarninn greindi frá því á mið­viku­dag að Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hefði ákveðið að aug­lýsa stöðu for­stjóra Umhverf­is­stofn­unar lausa til umsóknar. Kristín Linda Árna­dóttir hefur gengt stöðu for­stjóra síðan árið 2008 og því fer öðru ráðn­ing­ar­tíma­bili hennar að ljúka. Kristín þarf að sækja um stöð­una á ný vilji hún gegna starf­inu áfram.

Aðrir for­stöðu­menn stofn­anna sem heyra undir ráðu­neyti Bjartar munu þurfa að sækja aftur um að loknum skip­un­ar­tíma sínum, ef þeir vilja gegna starf­inu áfram.

[adspot]

Í til­kynn­ing­unni frá Félagi for­stöðu­manna rík­is­stofn­ana segir að fram­an­greind ákvörðun sé „úr takti við vinnu sem nú stendur yfir í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu vegna breyt­inga Alþingis á lögum um kjara­ráð. Þær umbætur snúa að því að færa for­stöðu­menn rík­is­stofn­ana undan kjara­ráði varð­andi starfs­kjör og koma á nýju verk­lagi varð­andi til dæmis launa­kjör og starfs­lok.“ Nið­ur­stöður vinnu við umræddar umbætur muni liggja fyrir á næstu mán­uðum, segir í til­kynn­ing­unni.

[links]Ævi­ráðn­ingar í stjórn­sýsl­unni voru afnumdar með nýjum lögum um rétt­indi og skyldur opin­berra starfs­manna sem tók gildi um mitt ár 1996. Í 23. grein lag­anna segir að emb­ætt­is­menn séu skip­aðir í fimm ár í senn. Sá vani hefur þó verið á að ráða sitj­andi for­stjóra rík­is­stofn­ana áfram án þess að störf þeirra séu aug­lýst vilji þeir gegn starf­inu leng­ur.

Samkvæmt heim­ildum Kjarn­ans er vilji til að breyta þessu verk­lagi hjá hluta rík­is­stjórn­ar­innar og Björt hefur nú stigið fyrsta skrefið í þeim mál­um. Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að til standi að aug­lýsa fleiri stöður þegar skip­ana­tími rennur út.

„Félagið von­ast til þess að umhverfis- og auð­linda­ráð­herra muni aðlaga ákvörðun sína að hinu nýja verk­lagi, þegar það liggur fyrir, enda verði með því gætt með­al­hófs og jafn­ræðis á meðal fólks í sam­bæri­legum störfum hjá hinu opin­bera,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Félagi for­stöðu­manna rík­is­stofn­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár