Lyfjaþróunarfyrirtækið Alvotech í Vatnsmýrinni leigir fasteignir af félögum í eigu Róberts Wessman, stofnanda og stjórnarformanns fyrirtækisins, fyrir samtals 13,2 milljónir dollara, ríflega 1.735 milljónir króna á ári. Þetta kemur fram í skýrslu um Alvotech sem nýlega var skilað til bandaríska fjármálaeftirlitsins SEC vegna skráningar félagsins á markað þar í landi. Rík upplýsingaskylda hvílir á félögum sem til stendur og eru skráð á bandarískan hlutabréfamarkað og er skýrslan ítarleg.
Alvotech hefur leitað logandi ljósi að fjármögnun á Íslandi og erlendis með það fyrir augum að tryggja starfsgrundvöll félagsins. Meðal annars hefur fjárfestingin verið kynnt fyrir mörgum íslenskum lífeyrissjóðum. Einn íslenskur lífeyrissjóður hefur meðal annars fjárfest í Alvotech, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja.
Stundin hefur áður fjallað um viðskipti Alvotech og Alvogen, samheitalyfjafyrirtæki sem Róbert Wessman stofnaði einnig, við Róbert en nákvæmt umfang þeirra hefur ekki legið fyrir. Blaðið hefur meðal annars greint frá því að Alvogen kaupi kampavín sem Róbert …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir