Fjórði hver án samnings

Yfir 50.000 launþegar á íslenskum vinnu­markaði eru nú án samninga. Meðal þeirra eru félags­menn í öllum stéttar­félögum kennara, allar fagstéttir heilbrigðis­starfsmanna, 5.000 félags­menn í Eflingu og 7.000 í BHM. Samningar um 97% starfs­manna Land­spítalans eru lausir, ótíma­bundið verkfall félags­manna Eflingar í Reykjavík hófst í byrjun vikunnar og verkfall hátt í 16.000 félags­manna í BSRB hefur verið boðað. Formenn stéttar­félaga segjast lang­þreyttir á aðgerða­leysi viðsemjenda og segja félags­menn sína vera farna að ókyrrast.

Um 120 kjara­samningar eru nú lausir og þessir samningar ná yfir um 25% af þeim tæplega 196.000 sem eru á vinnu­markaði hér á landi. 43 mál eru nú á borði ríkis­sátta­semjara, sem er óvenju mikill fjöldi samkvæmt upplýsingum frá embættinu og þar af hefur sjö verið vísað þangað það sem af er þessu ári. Yfir 60 sátta­fundir hafa verið haldnir í Karp­húsinu á þeim átta vikum sem liðnar eru af þessu ári, auk nokkurs fjölda vinnu­funda. 

Gylfi Dalmann Aðal­steinsson, dósent við viðskipta­fræði­deild HÍ og sérfræðingur í málefnum vinnu­markaðar, segir að það sé ekki nýtt að svo margir kjara­samningar hafi verið lausir á sama tíma, en athygli veki hversu lengi einstakir samningar hafi verið lausir. „En það sem vekur einna mesta athygli er hversu mikill órói er á almenna markaðnum. Líklega er þetta mesta ólga þar frá því fyrir 1990, áður en Þjóðar­sáttin var gerð,“ segir Gylfi.

Að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár