Lyfjastofnun Evrópu gefur bóluefni Moderna grænt ljós

Bólu­efnið frá Moderna mun fá íslenskt mark­aðs­leyfi von bráðar, en Lyfja­stofnun Evrópu hefur mælt með því að fram­kvæmda­stjórn ESB veiti skil­yrt leyfi til notk­unar þess í Evrópu.

Höfuðstöðvar Moderna, í Massachusetts í Bandaríkjunum.
Höf­uð­stöðvar Moderna, í Massachusetts í Banda­ríkj­unum. Mynd: EPA

Lyfja­stofnun Evrópu (EMA) hefur mælir með því að bólu­efn­inu frá Moderna verði veitt skil­yrt mark­aðs­leyfi innan Evr­ópu­sam­bands­ins, en frá þessu er greint í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef stofn­un­ar­innar.

Á vef Lyfja­stofn­unar hér á landi segir að íslenskt mark­aðs­leyfi verði veitt von bráðar, eða strax í kjöl­far þess að fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins gefur út mark­aðs­leyfi sitt.[links]

Á vef EMA segir að sér­fræði­nefnd stofn­un­ar­innar um lyf fyrir menn hafi metið gögn um gæði, öryggi og virkni bólu­efn­is­ins frá Moderna og kom­ist að sam­hljóða nið­ur­stöðu um að mæla með dreif­ingu bólu­efn­is­ins og notkun þess fyrir ein­stak­linga yfir 18 ára aldri.

Þetta er annað bólu­efnið sem hefur verið fengið með­mæli frá Lyfja­stofnun Evrópu, en áður hafði bólu­efni Pfizer og BioNTech hlotið sam­þykki stofn­un­ar­innar og bólu­setn­ingar með því eru hafnar um alla Evrópu.

[adspot]

Í frétta­til­kynn­ingu frá stofn­un­inni er haft eftir Emer Cooke fram­kvæmda­stjóra að bólu­efni Moderna sé annað tól til að kom­ast út úr því neyð­ar­á­standi sem ríkir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

mRNA-tækni

Rétt eins og bólu­efni Pfizer og BioNTech not­ast Moderna við gena­upp­lýs­ingar (mRNA) fyrir svokölluð gadd­prótein sem er að finna á yfir­borði kór­ónu­veirunn­ar, SAR­S-CoV-2. Þegar bólu­efn­inu er sprautað í ein­stak­linga byrja frumur lík­am­ans þannig að fram­leiða sín eigin gadd­prótein og þjálfa sig í að takast á við veiruna.

Ónæm­is­kerfið lítur á gadd­próteinin sem fram­andi fyr­ir­bæri og tekur til varna með því að fram­leiða mótefni og T-frum­ur, sem gera kór­ónu­veirunni erf­ið­ara um vik við að valda bólu­settum skaða.

mRNA í bólu­efn­inu verður ekki eftir í lík­ama þeirra sem eru bólu­settir því það brotnar niður fljót­lega eftir bólu­setn­ingu.

Bólu­efnið frá Moderna þarf ekki að geyma við jafn mik­inn kulda og bólu­efnið frá Pfizer og BioNTech, sem þarf að geym­ast við allt að -80°C og flytja í sér­út­búnum kæli­kössum á milli staða. Bólu­efni Moderna er sagt geym­ast í allt að mánuð við 2-4 gráð­ur, sem er um það bil sama hita­stig og í ísskápnum heima hjá okkur flest­um.

Von á 5.000 skömmtum hingað í janúar og febrúar

Ísland hefur þegar tryggt sér um 128 þús­und skammta af bólu­efn­inu, sem duga fyrir um 64 þús­und ein­stak­linga. Gert er ráð fyrir að Ísland fái 5.000 bólu­efna­skammta frá Moderna í jan­úar og febr­úar en að eftir það verði afhend­ingin hrað­ari, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum bólu­efni.is.

Þetta er sögð hlut­falls­lega sama úthlutun og til ann­arra þjóða í Evr­ópu­sam­starfi um kaup á bólu­efnum, sem mið­ast við íbúa­fjölda þjóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár