Óbærilegur hiti í borgum vegna loftslagsbreytinga

Borgir eru við­kvæm­astar fyrir hita­breyt­ingum vegna hlýn­unar jarðar. Gróð­ur­sæld á dreif­býlli svæðum gerir hita­breyt­ing­arnar mild­ari þar.

Sumur um víða ver­öld eru nú þegar orðin heit­ari en þau voru og útlit er fyrir að þau verði enn hlýrri við næstu alda­mót ef fram heldur sem horfir.

Og sumrin verða til­finn­an­lega heit­ari í borgum.

Íbúa­fjöldi borga heims­ins vex með hverju árinu sem líður og vegna hita­polla á þétt­byggðum svæðum munu aukin hlý­indi auka líkur á dauðs­föllum vegna hita.

Hita­breyt­ing­arnar eru meiri í borgum en í dreif­býlli svæðum sem eru gróð­ur­sælli og vinda­sam­ari. Um það bil 54 pró­sent mann­kyns býr í borgum. Gert er ráð fyrir því að árið 2050 muni 2,5 millj­arðar manna til við­bótar búa borgum heims­ins.

Með hlýnun jarðar verður veðrir óreglu­legra og líkur á gríð­ar­legum hita­bylgjum aukast veru­lega. Þetta hefur svo auð­vitað allt saman áhrif á heilsu íbúa og efna­hag sam­fé­laga.

Hér að neðan má sjá gagn­virkt kort, teiknað fyrir vef­inn Climate Center, sem sýnir með­al­hita í borgum miðað við spá Alþjóða­veð­ur­fræði­stof­unnar til árs­ins 2100.

Ef smellt er á, eða leitað að, borg má sjá hversu miklum mun hærra hita­stigið verður árið 2100 miðað við aðrar borgir. Í Kaup­manna­höfn er til dæmis gert ráð fyrir hita­stigið verði eins og í Búdapest á sumrin, um það bil 4,6 gráðum heit­ara en það er nú.

Borgir í Austur-Evrópu munu verða heit­ari að jafn­aði en aðrar borgir í heim­inum, miðað við þessa spá. Sofía, höf­uð­borg Búlgaríu, mun hitna mest á sumrin; Um heilar 8,4 gráður ef ekki verður gert meira til að stemma stigu við lofts­lags­breyt­ingar.

Tíu hrað­ast hlýn­andi borgir heims
Hlýnun að óbreyttuHlýnun ef útblástur minnkar meira
1Sofía – Búlgaríu8.4°c4.4°c
2Skopje – Makedóníu8.4°c4.4°c
3Belgrad – Serbíu8.3°c4.3°c
4Madríd – Spáni8.0°c4.3°c
5Búkarest – Rúmeníu7.9°c4.2°c
6Jerevan – Armeníu7.8°c4.3°c
7Zagreb – Króatíu7.8°c4.0°c
8Sarajevó – Bosníu7.8°c4.0°c
9Lju­blj­ana – Slóveníu7.7°c3.9°c
10Búdapest – Ung­verja­landi7.6°c3.9°c

Mestu hita­breyt­ingar í borgum til árs­ins 2100

Ef ekki verður meira að gert í lofts­lags­málum er lík­legt að nokkrar borgir í heim­inum muni hitna upp í hæðir sem þekkj­ast ekki í dag. Hitastig í Khartoum, höf­uð­borg Súdan, verður að jafn­aði 44,1 gráða á sumrin. Þetta und­ir­strikar að hita­stig á jörð­inni er lík­lega að hækka upp í þær hæðir sem mann­kynið hefur aldrei þekkt.

Jafnvel þó útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verði tak­mark­aður er ljóst að hita­stig mun hækka veru­lega í heim­inum. Það er samt sem áður skipta veru­legu máli enda verður auð­veld­ara fyrir mann­kynið að aðlag­ast mild­ari hita­breyt­ingum og það verður ódýr­ara fyrir efna­hag ríkja heims.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár