Neftóbakssala fer yfir 40 tonn á árinu

ÁTVR vill hækkun á tóbaks­gjaldi á nef­tó­bak, en sett verður met í sölu á því á þessu ári. ÁTVR treystir sér ekki lengur til þess að greina á milli munn­tó­baks og nef­tó­baks, og hefur leitað til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins með málið.

Sala á nef­tó­baki hefur marg­fald­ast á und­an­förnum árum og ÁTVR gerir ráð fyrir því að yfir 40 tonn af nef­tó­baki verði seld á árinu sem er að líða. Þetta kemur fram í umsögn fyr­ir­tæk­is­ins til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um frum­varp um ýmsar for­sendur fjár­laga­frum­varps­ins fyrir næsta ár.

ÁTVR vill að ríkið hækki tóbaks­gjald á nef­tó­bak og annað tóbak um 55,2-69%. Til­gang­ur­inn væri að sam­ræma tóbaks­gjald, en í núgild­andi lögum sé það svo að nef­tó­bak og annað tóbak beri tals­vert lægra tóbaks­gjald en sígar­ettur og vind­lingar. Það hafi verið umtals­vert mis­ræmi í gjald­töku eftir tóbak­s­teg­undum allt frá því að tóbaks­gjaldið var tekið upp árið 2001.

Aldrei hefur eins mikið selst af nef­tó­baki og í fyrra, þegar 36,1 tonn af tóbak­inu voru seld. Nú verður það met slegið á nýjan leik, því gert er ráð fyrir að 40,1 tonn selj­ist á þessu ári. Nef­tó­baks­salan er arð­bær og ÁTVR fékk 748 millj­ónir í kass­ann án virð­is­auka­skatts í fyrra. Tekj­urnar af söl­unni hafa auk­ist veru­lega, en þær juk­ust um 30% á tveimur árum til árs­ins 2016.

Árið 2000 seld­ust ríf­lega 10 tonn af nef­tó­baki, en síðan þá hefur salan auk­ist jafnt og þétt. Eina und­an­tekn­ingin er að salan minnk­aði árin 2012 og 2013 áður en hún jókst á ný. ÁTVR segir að salan hafi dreg­ist lít­il­lega saman þessi ár eftir að tóbaks­gjald á nef­tó­bak var tvö­faldað. Salan fór niður í 27,6 tonn árið 2013 en hefur svo auk­ist mikið á ný. Í fyrra voru 36,1 tonn seld af tóbak­inu og í ár er sem fyrr segir gert ráð fyrir að salan fari yfir 40 tonn. 

Í umsögn frá Ívari J. Arndal, for­stjóra ÁTVR, kemur fram að kann­anir sýni að það tóbak sem selt er og mark­aðs­sett sem nef­tó­bak á Íslandi er í yfir­gnæf­andi meiri­hluta til­vika tekið í munn og not­endur þess séu að stórum hluta ungt fólk og nýir tóbaks­neyt­endur. „Rétt er að benda á að ÁTVR treystir sér ekki lengur til þess að greina á milli munn­tó­baks og nef­tó­baks og hefur leitað leið­bein­inga hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu um hvernig skuli greina á milli nef­tó­baks og munn­tó­baks. Önnur varan er lög­leg á Íslandi, hin ólög­leg.“

Ein­okun lengi

Árið 1996 var fín­­kornað munn- og nef­tó­bak bannað með lögum á Íslandi. Það þýðir að nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­­leiðir hefur verið í nán­­ast ein­ok­un­­ar­­stöðu á mark­aðnum síðan lögin voru sett. Sam­hliða hefur neysla á munn­tó­baki auk­ist tölu­vert og þeir sem neyta þess kaupa ann­að­hvort smygl­varn­ing á svörtum mark­aði, þar sem er mikið fram­­boð, eða nota nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­­leið­ir, hinn svo­­kall­aða „Rudda“, sem munn­tó­bak. Þessi aukna neysla hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opin­bera svo um mun­­ar, bæði vegna hækk­­unar á tóbaks­­gjaldi og stór­auk­innar eft­ir­­spurn­­ar. Tóbaks­­­gjald á nef­tó­bak hækk­­aði til að mynda um 100 pró­­sent 1. jan­úar 2013. Gera má ráð fyrir tekju­aukn­ingu ef tóbaks­gjaldið verður hækkað enn frekar.

Sið­­ferð­is­­leg spurn­ing hvenær nef­tó­bak er munn­tó­bak

Í inn­­­gangi árs­­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2014, fjall­aði Ívar einnig um áhyggjur sínar af auk­inni nef­tó­baksneyslu. Þar sagði Ívar: „Kann­­anir sýna að neyslan á nef­tó­baki hefur færst í munn og nú er svo komið að yfir­­­gnæf­andi hluti nef­tó­baks­ins er not­aður í munn. Nýir not­endur eru helst ungir karl­­menn. Sam­­kvæmt lögum er sala munn­tó­baks ólög­­leg á Íslandi. Það er sið­­ferð­i­­leg spurn­ing hvenær íslenska nef­tó­bak­ið, sem búið er að fram­­leiða eftir sömu upp­­­skrift frá því fyrir stríð, er raun­veru­­lega orðið að munn­tó­baki og þar með ólög­­legt. Í dag er íslenska nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­­leiðir eina reyklausa tóbakið á mark­að­in­­um. Engin for­m­­leg skil­­grein­ing er til á því hvaða eðl­is­þættir það eru sem greina á milli nef­tó­baks og munn­tó­baks. ÁTVR hefur vakið athygli heil­brigð­is­yf­­ir­valda á mál­inu en ljóst er að neyslu­aukn­ingin á nef­tó­bak­inu er slæm og nauð­­syn­­legt að sporna við þró­un­inn­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár