Hin harða barátta um sjónvarpið og internetið

Síminn fékk nýverið níu millj­óna króna stjórn­valds­sekt fyrir að hafa marg­brotið ákvæði fjöl­miðla­laga, með því að í raun vöndla saman sölu á inter­neti og sjón­varpi. Brotin voru sögð með­vituð, mark­viss og ítrekuð.

Það er hart barist á sjón­varps- og inter­net­mark­aði á Íslandi. Tvö stærstu fyr­ir­tækin sem þar takast á, Síminn og Sýn, bjóða bæði upp á umfangs­mikla fjöl­miðla­starf­semi, efn­is­fram­leiðslu og keypt vin­sælt efni ásamt því að bjóða píp­urnar til flytja efnið í sjón­varp, eða eftir atvikum önnur tæki, lands­manna.

Samkvæmt nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn, sem sýnir stöð­una eins og hún var um mitt þetta ár, er Síminn ráð­andi þegar kemur að heild­ar­fjölda þeirra áskrif­enda fjar­skipta­fyr­ir­tækja sem eru með sjón­varp yfir svo­kallað IP-net. Það þýðir að fleiri eru með mynd­lykla frá Símanum en helsta sam­keppn­is­að­ilum. Þar er mark­aðs­hlut­deild hans 59,1 pró­sent en Vodafone, sem til­heyrir Sýn-sam­stæð­unni, er með 40,9 pró­sent.

Vöxtur í mynd­lyklum frá Símanum hefur hald­ist í hendur við mikla sókn Sjón­varps Símans, efn­is­þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins, á und­an­förnum árum.

Líka stærstur í internettenginum

Þegar kemur að inter­netteng­ingum þá er Síminn líka stærstur. Hlut­deild hans á mark­aði er 46,9 pró­sent sem er nán­ast sama hlut­fall og verið hefur und­an­farin ár. Fyr­ir­tæk­inu virð­ist ganga ágæt­lega að bæta við sig þeim við­skipta­vinum sem bæt­ast við á hverju ári og halda stöðu sinni.

Vodafone er hins vegar að tapa hlut­deild milli ára og er nú með 32,3 pró­sent við­skipta­vina sem kaupa inter­netteng­ingar á Íslandi. Staða fyr­ir­tæk­is­ins batn­aði umtals­vert í lok árs 2017 þegar það tók yfir inter­net­starf­semi 365 og fékk með tæp­lega 15 þús­und við­skipta­vini. Sú við­bót gerði það að verkum að fjöldi við­skipta­vina Vodafone jókst um rúm­lega 40 pró­sent frá miðju ári 2017 og fram á sama tíma í fyrra. Síð­ast­liðið ár hefur þeim hins vegar fækkað um rúm­lega fjögur þús­und auk þess sem fyr­ir­tæk­inu hefur mis­tek­ist að höfða til þeirra við­skipta­vina sem bæst hafa við mark­að­inn, en þeim fjölg­aði um á þriðja þús­und milli ára.

Nova seldi lengi vel ekki inter­net­þjón­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­kerfi. Á því varð breyt­ing á árinu 2016 þegar að fyr­ir­tæk­ið til­kynnti að það ætl­aði að hefja ljós­leið­ara­þjón­ust­u. Síðan þá hefur hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins vaxið hratt. Hún var 3,3 pró­sent um mitt ár 2017 en 10,9 pró­sent í lok júní 2019. Alls fjölg­aði þeim við­skipta­vinum sem keyptu inter­net­þjón­ustu hjá Nova um 50 pró­sent milli ára.

Hringdu hefur líka komið sér ágæt­lega fyrir á inter­net­mark­aðnum og er með 7,6 pró­sent hlut­deild, sem hefur hald­ist nán­ast óbreytt síð­ast­liðin tvö ár

Síminn braut gegn ákvæðum laga

Það er kergja á þessum mörk­uðum. Sér­stak­lega gagn­vart Símanum, en keppi­nautar hans telja fyr­ir­tækið brjóta vís­vit­andi ákvæði laga til að tryggja sér aukna mark­aðs­hlut­deild í bæði inter­neti og sölu á sjón­varps­þjón­ustu. Það geri hann með því að búa til vöndul úr vör­unum tveimur.

Í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins lagði Póst- og fjar­skipta­stofnun níu millj­óna króna stjórn­valds­sekt á Símann fyrir að hafa ítrekað brotið gegn fjöl­miðla­lögum með því að hindra aðra aðila á mark­aði frá því að dreifa ólínu­legu efni Sjón­varps Símans.

Samkvæmt ákvæði þeirra laga á við­skipta­vinur að geta keypt myndefni, eins og til dæmis Sjónvarp Símans, og fjar­skipta­fyr­ir­tæki sem selur inter­net­þjón­ustu eða miðlar sjón­varps­efni í gegnum net og mynd­lykil, án þess að binda sig til að kaupa bæði af sama fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu. Þetta er gert til að fyr­ir­tæki sem selja bæði efni og fjar­skipta­þjón­ustu mis­noti ekki aðstöðu sína með því að búa til svo­kall­aðan vöndul úr báðu. Þ.e. vöru sem er sam­þætt sjón­varps- og fjar­skipta­þjón­usta.

En nákvæm­lega það er Símanum gefið að hafa gert.

Mikill ætlaður ávinningur af brotinu

Það hafi hann meðal ann­ars náð fram með því að fyrst stöðva dreif­ingu á slíku yfir á kerfi Vodafone í októ­ber 2015. Eftir þann tíma þurfti að vera með mynd­lykil frá Símanum til að geta keypt Sjónvarp Símans. Það þýddi að til að ger­ast áskrif­andi að þeirri þjón­ustu þurfti að gera það í gegnum dreifi­kerfi Símans og að mestu leyti á neti Mílu, sem Síminn á að öllu leyti.

Síðar, frá sumr­inu 2018 eftir að Póst- og fjar­skipta­stofnun hafði sent frá sér úrskurð um að þetta væri óheim­ilt, er Síminn sagður hafa brotið af sér með því að gera við­skipta­vinum sam­keppn­is­að­ila Símans mögu­legt að nálg­ast sjón­varps­þjón­ustu Símans gegn því að leigja mynd­lykil af Símanum fyrir 2.200 krónur á mán­uði og borga svo áskrift­ar­gjald að Sjón­varpi Símans ofan á það, en áskrift að svo­kall­aðri Premium áskrift er í dag 6.000 krónur.

Póst- og fjar­skipta­stofnun taldi brot Símans hafa verið með­vituð og mark­viss og sagði í úrskurði sínum að þau hafi haft umtals­verð skað­leg áhrif á fjar­skipta­mark­að­inn. Hámarks­sekt sem stofn­unin gat lagt á Símann fyrir brotin er tíu millj­ónir króna og því sýnir það að Póst- og fjar­skipta­stofnun nán­ast full­nýtti þann ramma hversu alvar­legt stofn­unin telur brotið vera. Hún segir sömu­leiðis í úrskurði sínum að ávinn­ingur Símans af þeim brotum sem fyr­ir­tækið framdi hafi verið langt umfram þær sektir sem hægt væri að leggja á það. Orðrétt segir í úrskurð­inum: „Við ákvörðum um upp­hæð sekt­ar­innar verður að horfa til alvar­leika brots­ins og þess ávinn­ings sem ætla má að Síminn hafi notið af brot­inu og þess að um ítrekað brot er að ræða.“

Af þessu má ráða að það hafi marg­borgað sig fyrir Símann að brjóta gegn lög­unum, þar sem hámarks­sekt fyrir athæfið sem lög heim­ila var mun lægri en væntur ávinn­ingur.

Síminn segir ákvörð­un­ina óskilj­an­lega og hefur sagt að hann muni kæra nið­ur­stöð­una til úrskurð­ar­nefndar fjar­skipta- og póst­mála.

Enski boltinn breytti stöðunni

Setja verður ofan­greint í sam­hengi við það að gríð­ar­legur vöxtur hefur verið í sjón­varps­þjón­ustu Símans á und­an­förnum árum. Áskrif­endur að Sjón­varpi Símans Premium, helstu áskrift­ar­leið fyr­ir­tæk­is­ins, hefur fjölgað gríð­ar­lega á skömmum tíma. Þeir eru í dag taldir vera um 40 þús­und.

Ein af árang­urs­rík­ustu leið­unum sem Síminn hefur farið til að auka tekjur sínar af sjón­varps­þjón­ustu var sú að kaupa sýn­ing­ar­rétt­inn að enska bolt­anum í þrjú ár frá og með yfir­stand­andi tíma­bili. Greint var frá því að fyr­ir­tækið hefði náð þeim samn­ingi í nóv­em­ber í fyrra. Verðið sem Síminn greiddi fyrir að ná þess­ari vin­sælu sjón­varps­vöru af sínum helsta keppi­naut, Sýn, hefur aldrei verið gefið upp en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans bauð Síminn um 30 pró­sent hærra verð en keppi­naut­ur­inn. Við­mæl­endur Kjarnans segja að kostn­að­ur­inn við efn­is­kaupin hafi aldrei verið undir einum millj­arði króna.

Það lá hins vegar ekki strax fyrir hvernig Sím­inn ætl­aði að nýta sér þessa vöru sem hann hafði tryggt sér rétt­inn á, né hvort félag­inu tæk­ist að gera það með arð­væn­legum hætt­i. 

Hækkuðu áskriftina á alla

Sum­arið 2019 var loks sýnt á spil­in. Verð­inu á nýstofn­aðri Sím­inn Sport, sem myndi sýna leiki úr ensku úrvals­deild­inni, yrði stillt í hóf og stök áskrift seld á 4.500 krón­ur. Á sama tíma var hins vegar greint frá því að allir áskrif­endur að Sjón­varpi Sím­ans Premium, sem voru þá þegar 35 til 40 þús­und, myndu fá aðgang að enska bolt­an­um. Um leið var mán­að­ar­verðið fyrir þá þjón­ustu hækkað úr fimm þús­und krónum í sex þús­und krón­ur.

Ef vel til tæk­ist, og eng­inn við­skipta­vinur myndi hætta í Premium áskrift vegna hækk­un­ar­inn­ar, myndi Sím­inn þegar vera búinn að tryggja sér 420 til 480 millj­ónir króna í við­bót­ar­tekjur á árs­grund­velli með henn­i. Hið minnsta.

Í ljósi þess að nær ómögu­legt er að vera með Sjónvarp Símans án þess að kaupa inter­net­þjón­ustu að Símanum þá eru flestir við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins með svo­kall­aðan „Heim­il­i­s­pakka“, sem inni­heldur inter­net, heima­síma, IPTV aðgang (mynd­lykil), Premium-pakk­ann og nokkrar erlendrar stöðvar.

Á milli þess tíma sem Síminn keypti rétt­inn að enska bolt­anum og þess tíma sem áskrift að honum var bætt inn í Premium áskrift­ar­leið­ina var verð­mið­inn á Heim­il­i­s­pakk­anum hækk­aður tví­vegis, um sam­tals eitt þús­und krónur, ann­ars vegar í byrjun mars 2019 og hins vegar í byrjun ágúst 2019. Lang­flestir Premium áskrif­endur eru með þá áskrift í gegnum Heim­il­i­s­pakk­ann.

Tekjur upp um 330 milljónir milli ára

Áhrifin af þess­ari breyt­ingu á bæði Símann og Sýn hafa verið mikil. Þau komu fyrst almenni­lega fram á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2019, eftir að enski bolt­inn fór að rúlla í ágúst­mán­uði og hækk­anir á bæði Heim­il­i­s­pakka­leið Símans og Premium-sjón­varps­á­skrift tóku gildi.

Í nýlegri fjár­festa­kynn­ingu Símans vegna þriðja árs­fjórð­ungs sagði að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins af Premium sjón­varps­þjón­ustu hefðu vaxið um 330 millj­ónir króna milli ára, eða um 30 pró­sent. Heim­il­is­pökkum hefði sömu­leiðis fjölgað um 5.100 á sama tíma­bili.

Alls juk­ust tekjur Símans vegna sjón­varps­þjón­ustu um 19,6 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungnum einum saman miðað við sama tíma­bil í fyrra, eða um 233 millj­ónir króna. Þær voru í heild 1.423 millj­ónir króna á árs­fjórð­ungn­um.

Í fjár­festa­kynn­ingu kom fram að tekju­á­hrif af enska bolt­anum hefðu verið umfram vænt­ing­ar, að við­skipta­vinum sem keyptu Premium áskrift hefði fjölgað um þrjú þús­und frá því að Sím­inn Sport fór í loftið og að aug­lýs­inga­tekjur hefðu vaxið um 54 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi og ell­efu pró­sent milli ára.

Bilið í fjölmiðlatekjum minnkar verulega

Hjá Sýn var sagan önn­ur. Þar lækk­uðu tekjur vegna fjöl­miðla­rekstur um 144 millj­ónir króna miðað við þriðja árs­fjórð­ung í fyrra, eða um sjö pró­sent. Sam­tals námu tekjur Sýnar vegna fjöl­miðla 1.946 millj­ónir króna og engin ein tekju­stoð félags­ins dróst meira saman í krónum talið en fjöl­miðla­rekst­ur­inn. Hann nær til ann­arra fjöl­miðla sam­stæð­unnar en bara sjón­varps­stöðva. Miðlar Sýnar eru ­Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Félagið er því líka með umtals­verðar tekjur af útvarps­rekstri og rekstri frétta­mið­ils­ins Vís­is.

Á þriðja árs­fjórð­ungi 2018 höfðu tekjur Sýnar vegna fjöl­miðla verið 76 pró­sent hærri en tekjur Sím­ans vegna þeirrar tekju­stoð­ar. Í ár voru fjöl­miðla­tekjur Sýnar 37 pró­sent hærri en helsta keppi­naut­ar­ins. Bilið á milli þeirra minnk­aði 377 millj­ónir króna.

Hagn­aður Sím­ans var 2,3 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum þessa árs á meðan að hagn­aður Sýnar var 384 millj­ónir króna á sama tíma, en hann kemur til vegna þess að bók­færður var sölu­hagn­aður upp á 817 millj­ónir króna vegna sam­runa dótt­ur­fé­lags í Fær­eyj­um. Án þessa bók­­færða sölu­hagnað vegna þeirrar sölu væri tap Sýnar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 433 millj­­ónir króna.

Athugasemd frá Símanum bætt við klukkan 14:01:

„Í hádeg­inu í dag birt­ist á Kjarn­anum frétta­skýr­ing um mál­efni staf­ræns sjón­varps og inter­nets á Íslandi. Því ber að fagna að Kjarninn gefi þessum mik­il­vægu þjón­ustu­þáttum gaum og reyni að útskýra þessar marg­þættu atvinnu­greinar á manna­máli. Síminn telur að nokkur atriði þurfi að koma fram til við­bótar til að varpa skýru ljósi á mála­flokk­inn:

  • Neyt­endur þurfa ekki að kaupa inter­net þjón­ustu af Símanum til að kaupa sjón­varps­þjón­ustu af Símanum. Ekki þarf að kaupa inter­net teng­ingu af Símanum til að leigja IPTV mynd­lyk­ill Símans. Þá nýtir þjón­ustan Sjónvarp Símans óháð neti hið opna inter­net, hvar sem í verður kom­ist, jafn­vel yfir far­síma­kerfi. Sjón­varps­þjón­ustan hjá Símanum og sjón­varps­efnið sem Síminn selur áskrift að eru því með öllu ótengd því að keypt sé tengi­þjón­usta eða nokkur önnur þjón­usta af Símanum.
  • Síminn hefur áfrýjað úrskurði Póst- og fjar­skipta­stofn­unar (PFS) um að Síminn hafi í for­tíð­inni vöndlað saman mis­mun­andi þjón­ustu­þáttum í trássi við fjöl­miðla­lög. Jafnvel þótt Símann og PFS greini á um þennan þátt – og dóm­stólar muni skera úr um þennan ágrein­ing­inn – hefur PFS tekið fram að hið meinta reglu­brot sé ekki lengur við­haft.
  • Síminn hefur óskað eftir því að fyr­ir­tæki, sem sam­kvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu er mark­aðs­ráð­andi í sjón­varps­dreif­ingu á Íslandi, þ.e. Sýn, selji Símanum dreif­ingu á vör­unni Sjón­varpi Símans Premium. Síminn reynir þannig að nýta alla inn­viði og öll dreifi­kerfi til að ná til neyt­enda. Sýn hefur því miður hafnað því að selja Símanum dreifi­þjón­ustu fyrir Sjónvarp Símans Premium og hefur Síminn kvartað yfir þeirri ólög­legu sölu­synjun til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.
  • Síminn rekur hina opnu sjón­varps­stöð Sjónvarp Símans sem fjár­magnar rekstur sinn með sölu aug­lýs­inga. Sú starf­semi á í harðri sam­keppni, ekki síst við íslenska ríkið, þ.e. Rík­is­út­varpið. Síminn telur að Rík­is­út­varpið hafi rangt við í fyr­ir­komu­lagi aug­lýs­inga­sölu sinnar og hefur Rík­is­end­ur­skoð­andi stað­fest það. Síminn kaupir dreifi­þjón­ustu af öllum sem hana selja til að dreifa Sjón­varpi Símans sem víð­ast. Nær allt það efni sem Síminn selur áskrift að með ólínu­legum hætti í Sjón­varpi Símans Premium kemur fyrr eða síðar í opinni línu­legri dag­skrá (sem og með tíma­flakki) á sjón­varps­stöð­inni Sjón­varpi Símans.
  • Síma­sam­stæðan á í harðri sam­keppni við fleiri opin­bera aðila á Íslandi en Rík­is­út­varpið og Síminn telur ljóst að víðar sé ójafnt gefið. Borg­ar­fyr­ir­tækið Gagna­veita Reykja­víkur (GR) hefur fjár­fest fyrir tugi millj­arða í fjar­skipta­kerfi á suð­vestur horni lands­ins. Eft­ir­lits­stofnun EFTA hefur hafið rann­sókn á starf­semi GR vegna gruns um ólög­mæta opin­bera aðstoð. GR fjár­magn­aði starf­semi sína framan af með lánum og hluta­fjár­fram­lögum frá Orku­veitu Reykja­víkur (OR), en hefur und­an­farin ár fengið á annan tug millj­arða að láni frá Lands­bank­anum. Bankinn setur lán­veit­ingum sínum það skil­yrði að OR sé meiri­hluta­eig­andi GR, ella geti bank­inn gjald­fellt öll lánin. PFS hefur úrskurðað að þessi skil­yrði fyrir lán­veit­ingum til GR séu ólög­leg og stand­ist ekki skil­yrði um mein­tan fjár­hags­legan aðskilnað OR og GR.
  • Síminn hefur árum saman óskað eftir því að fá að leigja fjar­skipta­lagnir af GR, eins og félagið gerir í til­felli ann­arra net­lagna­fyr­ir­tækja á Íslandi. GR hefur hafnað því, eitt félaga á Íslandi, og selur ein­göngu lok­aða heild­stæða fjar­skipta­þjón­ustu með virkum bún­aði í stað þess að opna á óvirka inn­viði eins og aðrir gera. Þetta hefur valdið því að offjár­fest er í innviðum á suð­vestur horni lands­ins, og liggja millj­arðar óvirkra og ónot­aðra inn­viða í jörðu hér. Á móti er hægar fjár­fest víða úti um lands­byggð­ina en þörf er fyrir.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið undanfarið ár