Gunnar Bragi á leið í landbúnaðarráðuneytið - Lilja Alfreðs verður utanríkisráðherra

Lilja Alfreðs­dóttir verður nýr utan­rík­is­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Gunnar Bragi Sveins­son stefnir í atvinnu­vega­ráðu­neytið. Greidd voru atkvæði á milli Ásmundar Einars Daða­sonar og Lilju á þing­flokks­fundi í gær, sem Lilja vann.

Gunnar Bragi Sveinsson er sagður ætla að víkja úr utanríkisráðuneytinu fyrir Lilju Dögg Alfreðsdóttur.
Gunnar Bragi Sveins­son er sagður ætla að víkja úr utan­rík­is­ráðu­neyt­inu fyrir Lilju Dögg Alfreðs­dóttur. Mynd: Birgir Þór

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri í Seðla­bank­anum og fyrr­ver­andi verk­efn­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, verður utan­rík­is­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar. Gunnar Bragi Sveins­son verður þá nýr sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Þetta herma heim­ildir Kjarnans.

Sig­mundur Davíð lagði fram þá til­lögu á þing­flokks­fundi Fram­sóknar í gær að Lilja yrði nýtt ráð­herra­efni flokks­ins og sæti utan þings. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans kom einnig upp sú hug­mynd á fund­inum að Ásmundur Einar Daðason þing­flokks­for­maður yrði nýr ráð­herra.

Ásmundur studdi Lilju á fundinum

Ásmundur tók til máls á fund­inum þar sem hann lagði til að Lilja yrði frekar ráð­herra heldur en hann. Hann mundi halda áfram að sinna þeim mik­il­vægu störfum fyrir flokk­inn sem hann hefur gert hingað til.

Ákveðið var að halda leyni­lega atkvæða­greiðslu um málið og þar bar Lilja sigur úr býtum.

Gunnar Bragi hefur verið utan­rík­is­ráð­herra í tæp þrjú ár og hefur verið mikið erlendis, eins og greint hefur verið frá. Búist er við því að hann taki sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu fagn­andi, þar sem hann getur þá sinnt kjör­dæmi sínu betur og tengt sig betur við inn­an­lands­málin. Ásmundur Einar og Gunnar Bragi koma báðir úr norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Hægt er að fylgj­ast með atburðum dags­ins hér í beinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár