Sjálfakandi bílar lenda frekar í árekstrum

Rannsókn á slysa­tíðni sjálfa­kandi bíla gefur ekki góð með­mæli með þessum nýju tækjum. Er mann­eskjan betri í að keyra en tölvan?

Google hefur þróað sjálfakandi bíl. Hér sást stofnendur fyrirtækisins, þeir Larry Page og Sergey Brin, um borð í einum slíkum
Google hefur þróað sjálfa­kandi bíl. Hér sást stofn­endur fyr­ir­tæk­is­ins, þeir Larry Page og Sergey Brin, um borð í einum slíkum Mynd: Google

Sjálfa­kandi bílar virð­ast lenda í fleiri slysum og árekstrum en hefð­bundnir bílar. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar sem gerð varí Michigan-háskóla um virkni sjálfa­kandi bíla og öryggi þeirra. Nið­ur­staðan kann að hljóma þvertöf­ugt við það sem fram­leið­endur þess­ara bíla segja að sé mark­miðið. Vanda­málið er hins vegar enn það sama: mennskir öku­menn.

Bílar sem ekið er af tölvum eru hlaðnir skynj­urum og tækjum til að greina umhverf bíls­ins, allan hring­inn. Tölvan þarf svo að taka mið af þessum upp­lýs­ingum í akstri, líkt og mennskur bíl­stjóri. Svo virð­ist sem að tölvan geri það betur en mann­eskj­urnar.

Fram­leiðandur sjálfa­kandi bíla eru skyld­aðir sam­kvæmt banda­rískri lög­gjöf að taka saman og birta upp­lýs­ingar um fjölda slysa, árekstra eða óhappa sem sjálfa­kandi bílar lenda í. Nú þegar hefur þessum bílum verið ekið meira en milljón mílur (um 1,6 milljón kíló­metra) og þykir slysa­tíðnin vera nokkuð há, eða 11 áreksrar á hver­rjar milljón mílur. Í öllum til­fellum var það mennskur öku­maður sem olli slys­unum.

Samkvæmt frétt Vox.com um nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar verður hins vegar að líta til nokk­urra atriða þegar nið­ur­stöð­urnar eru skoð­aðar. Hið fyrsta er að sjálfa­kandi bílum hefur enn ekki verið ekið nægi­lega lengi til þess að mark­tæka spá megi gera. Ellefu slys eru ein­fald­lega of fá gildi í til að alhæfa um raun­veru­leik­ann.

Þá ríkir nokkur óvissa um hversu mörg bílslys verða almennt í umferð­inni, meðal mennskra öku­manna. Ekki er víst að öll slys séu til­kynnt til lög­reglu eða trygg­ing­ar­fé­laga, sér­stak­lega minni óhöpp þar sem ekki verða slys á fólki eða eigna­tjón. Þetta er mik­il­vægt því svo virð­ist sem að sjálfa­kandi bílar lendi frekar í minni­háttar óhöppum en slysum þar sem mikið eigna­tjón verður eða slys á fólki. Aðeins tvö af ell­efu slysum sjálfa­kandi bíla urðu til þess að fólk slas­að­ist. Í almennri umferð er hlut­fallið hins vegar 28 pró­sent.

Eins og Kjarninn greindi frá í sept­em­ber þá eru sjálfa­kandi bílar aðeins að slíta barnskónum og ekki nærri því til­búnir til þess að takast á við hvaða aðstæður sem er. Í sam­tali við Kjarnann sagði Dr. Ralf G. Herrtwich, stjórn­andi hjá Mercedes í deild sjálfa­kandi bíla, að sjálfa­kandi bílar gætu til dæmis ekki ráðið við mikla hálku, snjó og flókn­ari aðstæður. Til þess væri tæknin ein­fald­lega ekki nógu full­komin. Þeim bílum sem voru til rann­sóknar í Michigan var öllum ekið í Texas og Kali­forníu þar sem vetur eru mildir í versta falli.

Hlusta má á sam­talið við Dr. Herrtwich hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár