Losunarlaus áliðnaður í sjónmáli og nýr samningur við ESB

Árni Snævarr ræddi við Halldór Þor­geirs­son for­mann Lofts­lags­ráðs um stöðu Íslands í lofts­lags­málum, nýjan samn­ing við ESB og tækni­bylt­ingu í áliðn­aði sem gæti gjör­bylt ýmsum for­sendum.

Halldór Þorgeirsson (lengst til hægri) við háborðið í loftslagsviðræðum á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Halldór Þor­geirs­son (lengst til hægri) við háborðið í lofts­lags­við­ræðum á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Mynd: UN/Jean-Marc Ferré

Skammt er stórra högga á milli í lofts­lags­málum. Sam­komu­lag tókst nýverið við Evr­ópu­sam­bandið um skuld­bind­ingar Íslands gagn­vart Par­ís­ar­samn­ingnum, á sama tíma og lofts­lags­mál hafa aldrei verið jafn mikið í brennid­epli vegna fjölda­mót­mæla ung­menna. Þá hafa verð­hækk­anir á los­un­ar­kvótum ýtt undir tækninýj­ungar sem kunna að leiða til þess að koltví­sýr­ingslosun álvera heyri sög­unni til. Um leið verður losun og föngun koltví­sýr­ings eins og sú sem fram fer á Hell­is­heiði áhuga­verð­ari frá efna­hags­legu sjón­ar­horni.

Framundan er leið­toga­fundur Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál og menn ráða ráðum sínum um hvað Ísland setur þar á odd­inn, en þrýst­ingur er á að aðild­ar­ríkin kynni þar nýjar aðgerðir.

Halldór Þor­geirs­son var um ára­bil einn af æðstu mönnum stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna sem heldur utan um lofts­lags­sátt­mála sam­tak­anna (UNFCCC) í Bonn, en skömmu eftir að hann snéri aftur heim fyrir ári tók hann að sér að stýra nýju Lofts­lags­ráði.

Samningur við ESB

Halldór bendir á að sam­starf við nágranna­ríki okkar skiptir jafn­vel meira máli í lofts­lags­málum en á nokkru öðru sviði vegna sam­flots Íslands, Noregs og Lichtenstein ann­ars vegar og Evr­ópu­sam­bands­ins hins vegar við fram­kvæmd mark­miða Par­ís­ar­samn­ings­ins um lofts­lags­breyt­ingar.

Nýi samn­ing­ur­inn felur í sér að draga verður úr losun um 29% fyrir 2030 auk þess sem þak er sett á hve mikið til­lit er tekið til bind­ingar koltví­sýr­ings.

„Ísland er í nánu sam­starfi við nágranna­þjóðir okkar í Evrópu,“ segir Halldór Þor­geirs­son í við­tali við vef­síðu UNRIC. „Sam­eig­in­legar skuld­bind­ingar Íslands, Noregs og Lichtenstein með ESB gagn­vart Par­ís­ar­samn­ingnum er mjög nauð­syn­legur þáttur í íslenskri lofts­lags­stefnu. Það væri mjög erfitt fyrir Ísland að ætla sér að halda stór­iðju­losun ef það ætti bara að tengja það íslenskum skuld­bind­ingu, vegna stærð­argráðunnar. Allir stór­los­endur eru í svoköll­uðu Emission Trading Scheme (ETS), þar á meðal álf­ram­leið­endur. Íslensk álf­ram­leiðsla þarf að hafa los­un­ar­heim­ildir og verð á þeim hefur snar­hækkað und­an­farið, vegna þess að verðið var óraun­hæft.“

Þessi verð­hækkun á los­un­ar­heim­ildum koltví­sýr­ings hefur leitt til þess að áhugi hefur auk­ist að nýju á föngun og bind­ingu koltví­sýr­ings, eins og í CarbFix-verk­efni vís­inda­manna og Orku­veit­unnar á Hell­is­heiði.

„Verð á heim­ildum innan ETS er að kom­ast á sama verð­bil og kostn­að­ur­inn við að dæla niður koltví­sýr­ingi í berg. Það sem er mik­il­vægt við Carb Fix-verk­efnið við að fanga og binda koltví­sýr­ing er að ekki er aðeins búið að þróa tækn­ina og sýna fram á að hún virka, heldur er hún í notkun. Ef álverin myndu fanga og binda sína losun, þá þurfa þau ekki að taka alla los­un­ina í einu. Þau geta byrjað á 5% af útblæstir og aukið það smám saman.“

Bylting framundan í áliðnaði

En þetta eru ekki einu breyt­ing­ar­anar sem eru við sjón­deild­ar­hring­inn því tækni­bylt­ing er að verða í álf­ram­leiðslu sem er kennd við óvirk skaut.

„Hún felur í sér að hætt verður notkun kola­skauta við raf­grein­ingu en núver­andi koltví­sýr­ingslosun verður þegar þau brenna upp,“ segir Halldór. „Með þessu móti myndi hrein­lega öll losun álver­anna hverfa. Tæknin er ekki langt undan því Alcoa, Rio Tinto og Quebec fylki í Kanada sem hafa þróað þessa tækni í sam­ein­ingu búast við að hún verði komin í notkun árið 2024 -innan fimm ára.

Nýja tæknin er orku­frek­ari, sér­stak­lega í byrjun á meðan verið er að reyna hana.

Stóra spurn­ingin er hvar íslensku verk­smiðj­urnar lenda í bið­röð­inni, eftir nýrri tækni, en von­andi munu okkar álver njóta þess að þau eru drifin áfram af hreinni orku.

Fleira hangir á þarna á spýt­unni. Verður greitt hærra verð í fram­tíð­inni fyrir ál sem fram­leitt er með kolefn­is­snauðum aðferðum? Er hægt að fá fram að þetta verði sér vara? Með þeim hætti gætu kaup­endur tölva, bíla og svo fram­vegis geti valið vöru sem er fram­leidd með áli sem fram­leitt er á lofts­lagsvænan hátt.

Og þetta teng­ist svo því að Ísland þarf að búa sig undir að efla sam­keppn­is­færni sína á sviði kols­efn­issnauðs hag­kerfis. Forsenda þess er að upp­fylla mark­mið Par­ís­ar­samn­ings­ins um kolefn­is­jafn­vægi fyrir miðja öld­ina. Og reyndar er það svo að við þurfum að ná slíku jafn­vægi fyrir miðja öld­ina ein­fald­lega til að geta lifað öld­ina af, þetta er eina lausnin til að koma í veg fyrir skað­lega upp­söfnun koltví­sýr­ings í and­rúms­loft­inu.“

Föngun og bind­ing koltví­sýr­ings eins og á Heill­is­heiði er ekki óum­deilt fyr­ir­bæri því hingað til hefur þessu aðal­lega verið beitt í kola­iðn­aði og því tengja margir þetta við skálka­skjól, eins og konar afsökun til að halda áfram kola­notkun.

„Umhverf­is­vernd­ar­sam­tök sjá þetta bara í sam­hengi við kol,“ segir Halldór. „Og tengja þetta við við­leitni til að hvít­þvo kol með póli­tíska hug­tak­inu „hrein kol,“, en auð­vitað er slíkt ekki til nema einna helst í Hvíta hús­inu. En hugs­an­lega myndu umhverf­is­vernd­ar­sam­tök fagna „CarbFix“ því þar fara saman end­ur­nýj­an­leg orka og að koma fyrir losun frá iðn­aði, og hvorki kola- eða olíu­vinnsla eins og í Noregi.“

Markaðshvati

Banda­ríkja­menn fanga og binda meir en nokkur önnur þjóð en Norðmenn byrj­uðu snemma og ætla sér stóra hluti í Evrópu.

„Í Noregi gat Statoil unnið meiri olíu með því að dæla koltví­sýr­ingin iður,“ segir Halldór og bendir á að rík­is­ol­íu­fyr­ir­tækið hafi farið út í þetta í Norð­ur­sjó til þess að spara sér að greiða kolefn­is­skatt eftir að honum var komið á. Hann minnir á að hvað sem öðru líður muni ljóstillifínu plantna verða öfl­ug­asta tækið til að fanga koltví­sýr­ing. Sá hluti CarbFix verk­efn­is­ins á Hell­is­heiði muni lík­lega verða áhuga­verður jað­ar­mark­aður, en mestur áhugi verði á því að fanga koltví­sýr­ing í meiri styrk; beint úr strompi iðn- og orku­vera.

Hátt verð á „meng­un­ar­kvótum“ á ETS-mark­aðnum hefur orðið til þess að búa til mark­aðs­hvata til þess að þróa og taka í notkun nýja tækni. Halldór segir að lofts­lags­vand­inn hafa skap­ast meðal ann­ars af því að mark­aðslög­mál hafi ekki ráðið ferð.

„Það hefur ekk­ert kostað að setja koltví­sýr­ing út í and­rúms­loftið. Það er búið að tala um ný skaut í álverum frá því ég byrj­aði í lofts­lags­mál­unum 1998, fyrir meir en tveimur ára­tugum, en það var aldrei nægur áhugi. Ástæðan er ekki sú að fólkið sé svo vont, heldur að það er ekki fyrr en verðs­ins á losun koltv­sýr­ings fer að gæta í bók­hald­inu, sem tækni­lausn­irnar komu. Nú geta stjórn­endur rétt­lætt kostn­að­inn fyrir stjórnum fyr­ir­tækja og því er loks­ins farið í þessar fjár­fest­ingar.“

Skuld­bind­ingar Íslands sam­kvæmt Par­ís­ar­samn­ingum kalla þó flestar á aðgerðir inn­an­lands ef mark­mið­unum skal náð. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda jókst um 2,2% milli áranna 2016 og 2017.

Samgöngur og losun stóru málin

„Það sem eru stóru við­fan­gefnin í losun eru sam­göngur og úrgangs­mál og losun tengd land­notkun, og fjórða væri svo fisk­veiðar,“ segir Halldór. „Við notum um 300,000 tonn af olíu til að knýja sam­göngu­tækin. Þetta var á nið­ur­leið en síðan kom ferða­þjónu­spreng­ingin og er enn á upp­leið. Það standa vonir til þess að 2018 verði hámarks­árið í olíu­noktun í inn­an­lands­samöngum á landi. Þar kemur fyrst og femst til hrein­bíla­væð­ing (blend­ings og raf­magns­bílar, met­an­bílar).

Stóri vand­inn þar eins og víð­ast hvar er að þetta er ný tækni og það er ótti við hana. Það teng­ist líka einviðum að ein­hverju leyti en það er ekki eins stórt vanda­mála og fólk fill vera láta.“

Sjálfur ekur Halldór raf­bíl og er hinn ánægð­asti. Hann segir bíla­leigur og þunga­flutn­inga (dísel) vera stórar hindr­anir, en þessir aðilar treysti sér ekki í breyt­ingar. Meira að segja rútur á föstum leiðum eins og flug­rútan á milli Kefla­víkur og Reykja­víkur halda fast í bens­ínið.

Úrgangs­myndun er gríð­ar­legt vanda­mál, þótt árangur hafi náðst td.varð­andi ennota drykkj­arílat vegna skila­gjalds.

Hringrásin varla náð hingað

Hins vegar eru Íslend­ingar „heims­meist­arar í að kaupa einnota fatnað og annað. það er stór þátttur. Hringrás­ar­hag­kerfið er rétt að byrja hér,“ segir Halldór.

„End­ur­heimt vot­lendis er mjög spenn­andi mót­væg­is­að­erð ekki bara út af koelfn­inu, heldur hefur það líka jákvæð áhrif varð­andi fugla­líf sem er tengt lýð­heilsu og öðru slíku með auk­inni úti­vist, að ógleymdum áhrifum á vatns­miðlun.“

Þá er mikið verk óunnið í sjáv­ar­út­vegi. Þar hefur heild­ar­losun minnkað en mikil tæki­færi blasa líka við. „Það hefur lítið verið gert í kæli­m­iðlun og þessi sam­dráttaur sem hefur átt sér er fyrst og fremst til­kom­inn vegna fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins og svo að hætt var að fara í Smuguna,“ segir Halldór Þor­geirs­son, for­maður Lofts­lags­ráðs, að lokum.

Greinin er birt í sam­vinnu Kjarnans og Upp­lýs­inga­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNRIC).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár